362. spurningaþraut: „Hann mun og geyja að hverjum manni“

362. spurningaþraut: „Hann mun og geyja að hverjum manni“

Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist fugl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða Íslend­ingur fékk fyrir tveim dögum alþjóð­leg verð­laun upp­ljóstr­ara, sem veitt eru í Svíþjóð?

2.   Hvað heitir Lína langsokkur á sænsku?

3.    Kona nokkur hefur sinnt marg­vís­legum bók­mennta­störfum í ára­tugi, verið rit­stjóri og blaða­maður, gagn­rýn­andi, þýð­andi og rit­höf­undur. En hún er líka kunn fyrir að vera sér­legur hjálp­ar­kokkur og yfir­les­ari Bubba Morthens áður en hann sendir frá sér texta eða ljóð. Hvað heitir hún?

4.    Bubbi og Rúnar Júl­í­us­son ráku einu sinni hljóm­sveit sem nefnd­ist GCD. Hvað þýðir sú skamm­stöfun?

5.   John Grant heitir banda­rískur söngv­ari sem hefur árum saman búið á Íslandi. Lang­fræg­asta lagið hans þykir hafa svo dóna­legt heiti að í umfjöllun erlendis er það yfir­leitt bara kallað GMF. Hvað þýðir sú skamm­stöfun?

6.   Fyrir nokkrum vikum gaf Grant út lag sem hann syngur á íslensku ásamt kunnri íslenskri söng­konu. Lagið heitir Veldu stjörnu, en hver er söng­konan?

7.   Í Njáls­sögu segir: „Eg vil gefa þér [...] hund er mér var gef­inn [...]. Hann er mik­ill og eigi verri til fylgdar en röskur maður. Það fylgir og að hann hefir manns­vit. Hann mun og geyja að hverjum manni þeim er hann veit að óvinur þinn er en aldrei að vinum þínum því að hann sér á hverjum manni hvort til þín er vel eða illa. Hann mun og líf á leggja að vera þér trúr.“ Hvað hét hund­ur­inn sem Ólafur pá gaf Gunnari á Hlíð­ar­enda með þessum orðum?

8.  En hvar hafði Ólafur pá eign­ast hund­inn?

9.   Hvað er stærsta ríki heims­ins?

10.   Hver skrif­aði barna­bæk­urnar Ballið á Bessa­stöðum og Prinsessan á Bessa­stöðum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fata­fram­leið­and­inn sem notar krókó­díl­inn hér að neðan sem lógó sitt?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Jóhannes Stef­áns­son.

2.   Pippi Långstrump.

3.   Silja Aðal­steins­dóttir.

4.   G, C og D eru þrír algeng­ustu gít­ar­hljóm­arnir.

5.   Greatest Motherfucker.

6.   Ellen Krist­jáns­dóttir.

7.   Sámur.

8.   Á Írlandi.

9.   Rússland.

10.   Gerður Kristný.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fuglinn kall­ast sigð­nefur á íslensku. Það dugar hins vegar vel að þekkja erlenda heitið íbis.

Og krókó­díl­inn notar fyr­ir­tækið Lacoste.

***

Hér er þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár