361. spurningaþraut: Jones, Stewart, Taylor, Wyman

361. spurningaþraut: Jones, Stewart, Taylor, Wyman

Hjer er þrautin frá í gjær.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Sú breska leik­kona, sem sést á mynd­inni hér að ofan, lést á dög­unum, aðeins rúm­lega fimm­tug. Hún er mörgum kunn úr sjón­varpi og bíó­myndum. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Klæðis­plagg nokk­urt, sem notað er hér á landi og vit­an­lega út um heim­inn líka, það er kennt á íslensku við ákveðið hús­dýr, eða rétt­ara sagt til­tek­inn ból­stað dýr­anna. Hvað er þetta klæðis­plagg nefnt?

2.   Hvað heitir banda­ríski lög­reglu­mað­ur­inn sem var fyrir tveim dögum dæmdur fyrir að hafa myrt George Floyd?

3.   Hver er aðal­lit­ur­inn á treyjum spænska fót­boltaliðs­ins Real Madrid?

4.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Belgrad?

5.   Kona nokkur hefur verið í sviðs­ljós­inu vegna bar­áttu sinnar fyrir því að vera við­ur­kennd hæf til að taka að sér fóst­ur­barn þrátt fyrir fötlun. Hvað heitir hún?

6.   Hvað hét írska söng­konan sem flutti lagið All Kinds of Everyt­hing í Eurovision fyrir ein­hverjum 50 árum eða svo?

7.   Hinn norski Magnus Carlsen er heims­meist­ari í ... hverju?

8.   Hvað heitir for­seti Sýrlands?

9.   Áður en Vera Ill­uga­dóttir hóf þátta­röð sína Í ljósi sög­unnar sá hún um aðra vin­sæla útvarps­þætti á RÚV sem kenndir voru við dýr eitt. Hvaða dýr?

10.   Brian Jones, Ian Stewart, Mick Taylor og Bill Wyman. Hvað eiga þessir fjórir menn sam­eig­in­legt — og engir aðrir?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Leik­konan, sem við sáum mynd af hér að ofan, lék meðal ann­ars í vin­sælum sjón­varps­þáttum, þar sem karl­arnir á mynd­inni hér að neðan komu við sögu. Hvað nefn­ist sería þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Lamb­hús­hetta.

2.   Chauvin.

3.   Hvítur.

4.   Serbía.

5.   Freyja Har­alds­dóttir.

6.   Dana.

7.   Skák.

8.   Assad.

9.   Leð­ur­blakan.

10.   Þeir eru allir fyrr­ver­andi með­limir í The Rolling Stones.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Leik­konan hét Helen McCrory. Eft­ir­nafnið dugar, og ég ætla að leyfa ákveðið svig­rúm — menn fá til dæmis rétt fyrir McRory!

Þætt­irnir heita Peaky Blinders.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær, sem snýst um fyrri heims­styrj­öld­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár