Tíu þættir um íslenska kvikmyndasögu

Um 200 kvik­myndir koma við sögu í þátta­röðinni Ísland: bíóland.

Ísland: bíóland
Ísland: bíó­land Á annað hund­rað við­mæl­enda kemur fram í þátt­unum.

Þátta­röðin Ísland: bíóland hefur göngu sína á RÚV sunnu­daginn 14. mars. Þættirnir eru í tíu hlutum og fjalla um sögu íslenskra kvikmynda frá byrjun tuttugustu aldarinnar til dagsins í dag.

Ásgrímur Sverrisson er leik­stjóri þáttanna, skrifar handrit og er þulur, en hver hluti tekur ákveðið tímabil fyrir, þar sem fjallað er um kvik­myndir þess tíma og valdir kaflar sýndir úr þeim. Farið er yfir inntak þeirra, áherslur, nálgun og aðstæðurnar sem þær eru gerðar í.

Alls eru í kringum 200 kvik­myndir nefndar til sögu og sýnd brot úr fjölmörgum heimilda­myndum og -þáttum sem komið hafa út um íslenskar kvik­myndir. Rúmlega 120 viðmælendur koma fram í þáttunum úr röðum leik­stjóra, fram­leiðenda, handrits­höfunda, leikara, annarra kvikmynda­gerðarmanna, auk fjölmargra innlendra og erlendra kvikmynda­sérfræðinga.

Undir­búningur og rannsóknar­vinna vegna þáttanna hófst árið 2016 og lauk vinnslu þeirra í árslok 2020. Þættirnir eru gerðir í samvinnu við Kvik­myndasafn Íslands, en framlag safnsins og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár