333. spurningaþraut: Fyrsta spurningin er létt, spurning svo með hinar

Lítið á þrautina frá því í gær.

— — —

Fyrri auka­spurning:

Lítið á myndina hér að ofan. Hvaða fólk er þetta?

— — —

Lítið þá á þessar aðal­spurningar:

1.   Hvað heitir áin sem rennur um heims­borgina London?

2.   Hverrar þjóðar var barnabóka­höfundurinn Dr. Seuss?

3.   Julian Duranona var fasta­maður í landsliði Íslands í handbolta karla í mörg ár. Hvaðan kom hann upphaf­lega?

4.  Hver er höfuð­borgin á spænska sjálf­stjórnar­svæðinu Katalóníu?

5.   En hver ætli sé höfuð­borgin á sjálf­stjórnar­svæðinu Andalúsíu?

6.   Hvað hét hinn skammlífi söngvari rokk­hljóm­sveitarinnar The Doors?

7.   Í hvaða heimsborg fjarri heima­slóðum andaðist hann?

8.   Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs­dóttir settist á Alþingi þegar annar þingmaður sagði af sér þing­mennsku. Fyrir hvaða flokk situr Þorbjörg Sigríður á þingi?

9.   Hvaða ríki tilheyrir eyjan Tasmanía?

10.   Frá 2002-2016 voru frum­sýndar fimm hasar­myndir um óeirða­manninn Jason Bourne og blóðug ævintýri ýmis sem hann lendir sífellt í. Hver leikur Jason Bourne í fjórum af þessum bíómyndum?

— — —

Seinni auka­spurning:

Lítið á myndina hér að neðan. Þessi fræga íþrótta­kona var upp á sitt besta fyrir 30 árum eða svo, en var þá nánast ósigrandi í sinni grein. Hvað heitir hún?

— — —

Lítið á svörin við aðal­spurningunum:

1.   Thames.

2.   Bandarískur.

3.   Frá Kúbu.

4.   Barcelona.

5.   Sevilla.

6.   Jim Morrison.

7.   Í París.

8.   Viðreisn.

9.   Ástralíu.

10.   Matt Damon.

— — —

Lítið á þessi svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni eru Neanderdalsmenn.

Á neðri myndinni er þýska tennis­drottningin Steffi Graf.

— — —

Og lítið á þrautina frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár