331. spurningaþraut: Hvað þýða F-in í nöfnum Kennedy-bræðra?

Hlekkurinn á þrautina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurning:

Hver er konan á myndinni hér að ofan?

***

Aðal­spurningar:

1.   Höfuð­staðurinn Tórshavn er stærsti bær Færeyja, um það hef ég þegar spurt. En hvað heitir næst­stærsti bær Færeyja?

2.   Hvaða arkitekt teiknaði Þjóð­leikhúsið?

3.   Hvað þýddi F-ið í nafni John F. Kennedys Bandaríkja­forseta?

4.   En hvað þýddi F-ið í nafni Roberts F. Kennedys bróður hans, sem hefði sennilega orðið Bandaríkja­forseti ...

5.    ... ef HVER hefði ekki myrt hann?

6.   Hvaða mexíkóski myndlistar­maður (1907-1954) málaði ekki síst litríkar sjálfs­myndir?

7.   Hvað heitir kastali bresku konungs­fjöl­skyldunnar í Skotlandi?

8.   Í hvaða landi heitir höfuð­borgin Santiago?

9.   Hvað þýðir skamm­stöfunin YSL — sér í lagi þegar menn eru að tala eða skrifa um tísku?

10.   Tveir ráðherrar í núverandi ríkis­stjórn gegndu sömu embættum í síðustu ríkis­stjórn líka. Hverjir eru þeir? Nefna verður báða ráðherrana.

***

Seinni auka­spurning.

Hér að neðan má sjá enska rokk­stjörnu. Hann kom fram á sjónar­sviðið með hljómsveit sinni á síðasta áratug síðustu aldar. Hljóm­sveitin þykir vera ein sú allra virtasta í rokkinu og plötur hennar seljast vel, en er sennilega of „tilrauna­kennd“ til að þessi söngvari geti talist í hópi stærstu „poppstjarna“. En hvað heitir hann?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.   Klaksvik.

2.   Guðjón Samúelsson.

3.   Fitzgerald.

4.   Francis.

5.   Sirhan Sirhan.

6.   Frida Kahlo.

7.   Balmoral.

8.   Tjíle.

9.   Yves Saint Laurent.

10.   Guðlaugur Þór og Þórdís Kolbrún.

***

Svör við auka­spurningum:

Konan á efri myndinni er Marilyn Monroe:

(Bíðið bara eftir spurninga­þraut númer 794, þegar ég mun spyrja: Hver er karl­maðurinn á myndinni!)

Á neðri myndinni er söngvari Radiohead, Thom Yorke.

***

Á hlekkurinn gær frá þrautina í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár