Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun

„Stórslys“, sem er í upp­sigl­ingu varð­andi heilsu íslenskra kvenna, er hvat­inn að und­ir­skrifta­söfn­un­inni „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“. Aðdrag­and­inn er að grein­ing leg­háls­sýna á að fara fram í Danmörku í stað Íslands. Erna Bjarna­dóttir, for­sprakki söfn­un­ar­innar, segir vanta upp á virð­ingu við not­endur krabba­meins­skim­ana.

Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun
Erna Bjarna­dóttir For­sprakki Stöðvum aðför að heilsu kvenna fer fram á að öryggi og heilsu kvenna sé tryggð með því að grein­ing leg­háls­sýna verði fram­kvæmd hér á landi í stað Danmörku

„Greining leg­háls­sýna hefur verið flutt úr landi, þvert á ráð­legg­ingar sér­fræð­inga. Við förum fram á að þessu verði breytt og öryggi og heilsa kvenna verði tryggð.“

Með þessum orðum byrjar ákall til heil­brigð­is­ráð­herra í formi und­ir­skrift­ar­söfn­un­ar­innar „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“ en vísar til þess að um ára­mót tók heilsu­gæslan yfir leg­hálskimanir af Krabba­meins­fé­lag­inu en eftir stóðu tvö þús­und og fjögur hund­ruð sýni ógreind sem send átti til Danmörku til grein­ingar en svo hefur ennþá ekki verið gert. 

Und­ir­skrifta­söfn­unin var sett af stað þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn af Ernu Bjarna­dóttur og Margréti Hildi Rík­arðs­dóttur og hafa þegar 2.188 manns skrifað undir. Erna Bjarna­dóttir segir í sam­tali við Stundina hafa með því að stofna til und­ir­skrift­ar­söfn­unar vilja reyna að „ljá þeim rödd sem þetta brennur á“.

Nafnið fengið frá varaformanni læknaráðs 

Nafnið er að sögn Ernu fengið úr við­tali við Gunnar Bjarna Ragn­ars­son, vara­for­mann lækna­ráðs Land­spít­ala, sem birt­ist síð­ast­lið­inn laug­ar­dag á RÚV en hann sagði í téðu við­tali að það fyr­ir­komu­lag að senda leg­háls­sýni úr landi til grein­ingar vera aðför að heilsu kvenna.

„Læknaráð sjái sig knúið til að vekja athygli á því að stór­slys sé í upp­sigl­ingu. Þúsund leg­háls­sýni sem tekin voru í jan­úar og febr­úar hafa enn ekki verið send til grein­gar í Danmörku,“ sagði í frétt­inni. „Þetta er engin smá yfir­lýs­ing frá þessum stað,“ segir Erna í sam­tali við Stundina. 

Eftir að hafa séð frétt­ina ákvað hún yrði að stofna hóp á Facebook undir sama heiti og koma af stað und­ir­skrifta­söfnun. „Ég var heima hjá mér á laug­ar­dags­kvöld­inu og horfði á þessar fréttir og horfði á Helga Björns og hugs­aði með mér, þetta gengur ekki, það er eitt­hvað mikið að hérna, það er eng­inn að ná utan um þessa umræðu og nú þarf eitt­hvað gott fólk að stíga fram og koma ein­hverju viti í þetta,“ segir hún.

Hún stofn­aði hóp­inn þá dag­inn eftir eða á konu­deg­inum og hugs­aði sér að halda bar­átt­unni áfram fram að 8. mars næst­kom­andi, sem er alþjóða­legur bar­áttu­dagur kvenna.

Meðhöndlaðar eins og excel skjal

Sjálf hefur Erna þurft að bíða eftir nið­ur­stöðum úr krabba­meins­skoðun en þó aðeins í nokkra daga. „Ég hef einu sinni þurft að fara í ástungu á brjósti eftir að mynda­taka sýndi eitt­hvað. Ég man bara hvað mér leið illa að vera bíða eftir ein­hverjum nið­ur­stöðum og það voru bara nokkrir dagar. Ég hugsa með mér, hvernig líður þessum konum sem eru í þessum sporum, að vera bara með­höndl­aðar eins og eitt­hvað excelskjal og það skipti engu máli hvort skjalið sé skoðað í dag eða þrjá mán­uði, þú færð ekki einu sinni að vita hvar skjalið þitt er í ferl­inu.“ Af þessu þykir henni að það vanti virð­ingu fyrir not­endum þjón­ust­unnar.   

Treysta ekki þjónustunni

Um leið og und­ir­skrifta­söfn­unin og hóp­ur­inn var kom­inn í loftið létu við­brögðin ekki á sér standa. „Ég fékk við­brögð frá fjöld­anum öllum af konum. Margar eru til dæmis óánægðar með það að færa eigi skimun­ina inn á heilsu­gæsl­una, þær hafa verið ánægðar með þjón­ust­una í Skóg­ar­hlíð en not­endur þjón­ust­unnar, konur, eru ekki spurðar álits þegar henni er breytt,“ segir Erna.

Traustið á þjón­ust­unni er að hennar mati algjör­lega rúið. „Þeir sem hafa haft sam­band við mig lýsa því þannig að þær bera ekki traust til þessa nýja fyr­ir­komu­lags. Það vantar mikið upp á fræðslu til þeirra og svo eru þeir aldrei spurðir hvað þeir vilja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár