Undanþága til hjúskapar barna verður felld úr gildi

Samkvæmt frum­varpi dóms­mála­ráð­herra verður ekki lengur heim­ilt að veita und­an­þágu til barna undir 18 ára aldri til að ganga í hjú­skap.

Undanþága til hjúskapar barna verður felld úr gildi
Und­an­þága afnumin Börn fá ekki að ganga í hjú­skap ef frum­varpið verður sam­þykkt. Mynd: Shutterstock

Heimild til að veita und­an­þágu fyrir fólk yngra en 18 ára til að ganga í hjú­skap verður afnumin, ef frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra nær fram að ganga. Hátt í tugur slíkra und­an­þága hefur verið veittur síð­ustu tvo ára­tugi.

Samkvæmt núgild­andi lögum er dóms­mála­ráðu­neyt­inu heim­ilt að veita slíka und­an­þágu liggi fyrir jákvæði afstaða for­sjárað­ila. Frá árinu 1998 hefur 18 manns verið veitt slík und­an­þága, 17 stúlkum og einum pilti. Í öllum til­vikum var um að ræða 17 ára gam­alt fólk, utan tveimur þar sem 16 ára gamlar stúlkur fengu und­an­þágu. Verði frum­varpið afgreitt fellur þessi und­an­þágu­heim­ild niður.

Í frum­varp­inu er einnig gert ráð fyrir að lög­fest verði sú meg­in­regla að hjóna­vígslur sem fari fram erlendis verði við­ur­kenndar hér á landi. Frávikið frá þessu er að hjóna­vígslur þeirra sem yngri eru en 18 ára og farið hafa fram erlendis verða ekki við­ur­kenndar. Þó er und­an­þágu­á­kvæði í frum­varp­inu hvað þetta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár