Siggi hakkari aftur af stað og kærður fyrir að falsa skjöl

Sigurður Þórð­ar­son, öðru nafni Siggi hakk­ari, kemur nú að sex félögum og segir lög­maður und­ir­skrift sína hafa verið fals­aða til að sýna fram á 100 millj­óna hlutafé í tveimur fast­eigna­fé­lögum. Siggi hakk­ari hefur verið eitt af lyk­il­vitnum í rann­sókn FBI á WikiLeaks. Við­skipta­fé­lagar segj­ast hafa verið blekktir, en að eng­inn hafi hlotið skaða af.

Siggi hakkari aftur af stað og kærður fyrir að falsa skjöl
Sigurður Þórð­ar­son Siggi hakk­ari hefur verið í sviðs­ljós­inu í ára­tug vegna afbrota, leka sem tengj­ast Wikileaks og upp­ljóstr­anir til FBI. Mynd: Pressphotos/Geirix

Und­ir­skrift lög­manns á gögnum tveggja félaga sem Sigurður Þórð­ar­son stofn­aði og átti að stað­festa 100 milljón króna hluta­fjár­inn­borgun er fölsuð. Þetta stað­hæfa við­skipta­fé­lagar Sigurðar og lög­mað­ur­inn sem hyggst leggja fram kæru. Sigurður hefur stofnað og keypt fjölda félaga með mis­mun­andi til­gang und­an­farin ár og eru sum þeirra skráð með lög­heim­ili í þekktum skrif­stofu­bygg­ingum án þess að þar sé skrif­stofur þeirra að finna. Við­skipta­fé­lagar Sigurðar, sem Stundin ræddi við, segj­ast hafa verið blekktir og að um mann­legan harm­leik sé að ræða. 

Nýtt nafn og ásakanir um fölsun

Sigurður, einnig þekktur sem Siggi hakk­ari, kom fyrst fram í sviðs­ljósið vegna tengsla hans við leka­mál, deilur við sam­tökin WikiLeaks og upp­ljóstr­anir til banda­rísku lög­regl­unnar FBI í mála­ferlum gegn Julian Assange, stofn­anda Wikileaks. Sigurður hefur síðan þá tvisvar hlotið fang­els­is­dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn drengjum og einnig tveggja ára dóm fyrir ítrekuð fjár­svik þar sem hann þurfti að end­ur­greiða háar upp­hæðir. Sigurður hefur …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár