Breiðir yfir „Hugurinn fer hærra“ í stað jólatónleika

Frí­stunda­leið­bein­and­inn Sædís Sif Harð­ar­dóttir tók mennta­stefnu Reykja­vík­ur­borgar, „Látum draumana ræt­ast,“ til sín og ákvað að verða fyr­ir­mynd fyrir nem­endur sína með því að skrá sig í lang­þráð tón­list­ar­nám.

Breiðir yfir „Hugurinn fer hærra“ í stað jólatónleika

Eftir ára­tug sem frí­stunda­leið­bein­andi fór Sædís Sif Harð­ar­dóttir að finna fyrir kulnun og ákvað að bregð­ast við því með því að skrá sig í lang­þráð tón­list­ar­nám í haust. Þegar jólatón­leikum hennar var aflýst tók Sædís til þess ráðs að gera lág­stemmda ábreiðu á „Hugurinn fer hærra“ eftir Íslensku dív­urnar. Lagið er komið út á Spotify og mynd­bandið á Youtube.

Mennta­stefna Reykja­vík­ur­borgar til árs­ins 2030 er kölluð „Látum draumana ræt­ast“, en Sædís segir við Stundina að hún hafi hreyft við sér. „Ég fór að hugsa að við þurfum að vera fyr­ir­myndir í að láta drauma okkar ræt­ast; ef við gerum það ekki, af hverju ættu krakk­arnir okkar að reyna það? Þannig að ég dreif mig í söng­nám, sem mig hefur lengi langað að gera.“

Sædís segir að börnin og sam­starfs­fólk hennar hafi hvatt hana til þess að halda fyr­ir­ætl­uðu jólatón­leik­ana. Þegar þeim var aflýst segir hún að það hafi verið von­brigði, en að hún hafi ekki viljað láta allan und­ir­bún­ing­inn verða að engu og því ákvað hún að taka upp áður­nefnda ábreiðu og tón­list­ar­mynd­band.

„Þetta var drauma­lagið mitt og það átti að vera aðal dívu­lagið,“ segir Sædís. „Ég hlakk­aði til að gera árið upp á tón­leik­unum. Ég varð að gefa eitt­hvað af mér, í stað­inn fyrir að gef­ast bara upp eftir þetta erf­iða ár. Það ferli, að taka lagið upp og gefa út, breytt­ist í aðra drauma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár