Styrinn um Hafrannsóknarstofnun: Starf forstjórans auglýst á næstu vikum

Atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið mun birta aug­lýs­ingu um starf for­stjóra á næst­unni. Ráðu­neytið svarar spurn­ingum Stund­ar­innar um störf núver­andi for­stjóra, Sigurðar Guð­jóns­sonar, og for­sendur aug­lýs­ingar ráðu­neyt­is­ins bara að hluta.

Styrinn um Hafrannsóknarstofnun: Starf forstjórans auglýst á næstu vikum
Líklegt að nýr for­stjóri taki við Líklegt er að nýr for­stjóri verði ráð­inn yfir Haf­rann­sókn­ar­stofnun á næsta ári. Kristján Þór Júl­í­us­son, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, mun skipa í emb­ættið. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Starf for­stjóra Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar verður aug­lýst laust til umsóknar á næstu vikum og er lík­legt að nýr for­stjóri verði ráð­inn yfir stofn­un­ina í stað Sigurðar Guð­jóns­sonar sem mun hafa gegnt starf­inu í fimm ár þann 1. apríl. Upp­lýs­ing­arnar um aug­lýs­ing­una um starfið koma fram í tölvu­pósti frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem svar við spurn­ingum Stund­ar­innar. 

Í svar­inu segir: „Fimm ára skip­un­ar­tími for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­unar lýkur í mars á næsta ári. Á grund­velli 23. gr. laga  nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins verður emb­ættið aug­lýst laust til umsóknar á næstu vikum.“ Ráðu­neytið svar­aði hins vegar ekki þeirri spurn­ingu Stund­ar­innar hvort ónægja væri með störf Sigurðar hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun. 

Í grein­inni sem vísað er til í svar­inu segir ekki að nauð­syn­lega þurfi að aug­lýsa starf sitj­andi rík­is­for­stjóra laust til umsóknar ef til stendur að ráða við­kom­andi aftur. Afar ólík­legt verður að telj­ast að Kristján Þór hygg­ist skipa Sigurð aftur fyrst starfið er aug­lýst laust, þó dæmi séu um að þetta hafi gerst í til­fellum rík­is­for­stjóra á Íslandi. Í lög­unum segir: Emb­ætt­is­menn skulu skip­aðir tíma­bundið, til fimm ára í senn, nema annað sé tekið fram í lögum. Ef maður hefur verið skip­aður í emb­ætti skv. 1. mgr. skal honum til­kynnt eigi síðar en sex mán­uðum áður en skip­un­ar­tími hans rennur út hvort emb­ættið verði aug­lýst laust til umsóknar. Sé það ekki gert fram­leng­ist skip­un­ar­tími hans í emb­ætti sjálf­krafa um fimm ár, nema hann óski eftir að láta af störfum með þeim hætti sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 37. gr.“

Styrinn um Hafró

Nokkur styr hefur staðið um starf­semi Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar á liðnum árum í for­stjóra­tíð Sigurður. Meðal ann­ars vegna lax­eldis í sjó­kvíum og eins vegna útgáfu loðnu­kvóta en Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur mælst gegn því að gef­inn verði út loðnu­kvóti vegna bágs ástands hans síð­ast­liðnar þrjár ver­tíðir. Ekki eru allir á eitt sáttir um afstöðu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar í loðnu­mál­inu.  Íslenskar útgerðir hafa síð­ustu vikur kostað loðnu­rann­sóknir úti fyrir ströndum lands­ins með skip­inu Polar Amaroq í sam­vinnu við Haf­rann­sókn­ar­stofnun.

„Á grund­velli 23. gr. laga  nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins verður emb­ættið aug­lýst laust til umsóknar á næstu vikum“

Í lax­eld­inu hefur Haf­rann­sókn­ar­stofnun verið gagn­rýnd fyrir að hafa upp­haf­lega lagst gegn lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi í áhættu­mati árið 2017 og að taka ekki nægi­legt til­lit til mót­væg­is­að­gerða sem sporna eiga við mögu­legri erfða­blöndun eld­is­laxa við villta laxa­stofn­inn. Áhættu­mat­inu var svo breytt og er nú heim­ild til að stunda lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi, allt að 12 þús­und tonn. Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur því breytt mati sínu um Djúpið í kjöl­far gagn­rýni. 

Þá hafa vís­inda­leg til­mæli Hafró um lækkun afla­marks á fisk­teg­undum, meðal ann­ars þorski, valdið umræðum og sagði Kristján Þór Júl­í­us­son meðal ann­ars fyrr á árinu að þessar til­lögur væri „von­brigði“. 

Loks voru upp­sagnir innan Hafró í fyrra umdeildar. 

Tilkynnti starfsmönnum um auglýsinguna

Sigurður Guð­jóns­son sagði við Stundina aðspurður fyrir skömmu að hann hefði til­kynnt starfs­mönnum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar það á starfs­manna­fundi í haust að starf hans yrði aug­lýst laust til umsóknar á fyrri hluta næsta árs. „Ég get stað­fest það að ráð­herra hafi til­kynnt mér að hann hygg­ist aug­lýsa stöð­una og ég mun sækja um stöð­una,“ segir Sigurður í sam­tali við Stundina. Hann verður því meðal umsækj­enda um starfið þegar þar að kemur. 

Sigurður var val­inn úr hópi sex umsækj­enda um for­stjóra­starfið árið 2016. Hinir umsækj­end­urnir voru Guðni Magnús Eiríks­son, Soffía B. Guð­munds­dóttir, Þor­leifur Ágústs­son, Þor­steinn Sig­urðs­son og Þór Heiðar Ásgeirs­son.  

Einn af þeim sem nefndur er nú sem mögu­legur arf­taki Sigurður er Þor­steinn Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem ráð­inn var til atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, fyrr á árinu. Þor­steinn var sviðs­stjóri upp­sjáv­ar­sviðs hjá Hafró. 

Nýráðinn for­stjóri Hafró, hvort sem það verður áfram Sigurður eða ekki, mun svo taka við starf­inu eftir 1. apríl næst­kom­andi en þá er tæpt hálft ár til næstu Alþing­is­kosn­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár