Líf okkar er undirlagt af misfullum málningardósum, púðakaffi og pokaskyri, parketi og flísaprufum, steypuryki í vösum, hári á skóm, gluggakistum, í púða-kaffibollum og á mínum framtaksglöðustu dögum lekur grá steypuryksdrullan í hægum straumum úr nefinu á mér.
En byrjum á byrjuninni. Ekki alveg stórahvelli kannski, en einhvers staðar hóflega langt í fortíðinni þannig að eitthvert samhengi myndist. Kannski.

Enginn í skútunni
Sumarið 2019 keypti ég 50 feta skútu og sigldi henni ásamt vösku liði frá heitum höfnum Sikileyjar á Ítalíu alla leiðina í kalda og stormasama höfn Reykjavíkur og síðar aðeins minna stormasama höfn Hafnarfjarðar. Planið var sem sagt að afla tiltekinna leyfa til þess að hefja, sumarið …




















































Athugasemdir