Fiskistofa semur án útboðs við fyrirtæki tengt fjármálastjóra ríkisstofnunarinnar

Ríkis­stofnunin Fiskistofa útvistaði tölvu­vinnslu hjá stofnuninni til einka­fyrirtækis á Akureyri sem heitir Þekking Tristan í nýafstöðnum skipu­lags­sbreyt­ingum. Fjármála- og mannauðs­stjóri Fiskistofu, Hildur Ösp Gylfa­dóttir, er vara­formaður stjórnar KEA sem er annar hluthafi tölvu­fyrir­tækisins. Hún segist hafa sagt sig frá aðkomu að málinu vegna hagsmuna­tengslanna.

Samið án útboðs
Samið án útboðs Fiski­stofa, rík­is­stofnun sem Ögmundur Knútsson stýrir, samdi í sumar við tölvu­fyr­ir­tækið Þekkingu-Tristan sem er í eigu sam­vinnu­fé­lags­ins KEA. Fjármála- og starfs­manna­stjóri Fiski­stofu er vara­for­maður stjórnar KEA.

Ríkis­stofnunin Fiskistofa hefur gert samning um kaup á þjónustu við tölvu­fyrirtækið Þekkingu Tristan ehf. á Akureyri sem tengist fjármála- og mannauðs­stjóra stofnunarinnar, Hildi Ösp Gylfa­dóttur. Hildur Ösp situr í stjórn KEA, samvinnu­félags á Akureyri, sem á 50 prósenta hlut í tölvu­fyrirtækinu sem um ræðir, og er jafnframt vara­formaður stjórnarinnar.

Samningur Fiskistofu við Þekkingu-Tristan ehf. var gerður í kjölfar skipulags­breytinga hjá stofnuninni í sumar. Breytingarnar fólu í sér að tveimur fastráðnum starfs­mönnum, sem sinnt höfðu tölvu­vinnu í gegnum upplýsinga­tæknisvið Fiskistofu, var sagt upp störfum.

Þá þurfti að finna utan­aðkomandi aðila til að sinna þeirri vinnu og var leitað til þessa fyrir­tækis á Akureyri.  

Ögmundur Knútsson fiskistofu­stjóri segir að Fiskistofa hafi orðið að hafa hraðar hendur við að finna fyrirtæki til að sinna þessari vinnu fyrir stofnunina: „Vegna stutts tíma til viðbragðs var gerður skammtíma­samningur um flutning starfseminnar í gagnaver Þekkingar og þannig staðið að honum að auðvelt á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár