Kristján Þór auglýsir starf forstjóra Hafró: Sigurður á útleið

Sigurður Guð­jóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar, er lík­lega á útleið úr stofn­un­inni þar sem Kristján Þór Júl­í­us­son hefur til­kynnt honum að til standi að aug­lýsa starfið á næsta ári. Styr hefur staðið um Hafró vegna lax­eldis og útgáfu loðnu­kvóta. Sigurður ætlar að sækja aftur um starfið.

Kristján Þór auglýsir starf  forstjóra Hafró: Sigurður á útleið
Starfið aug­lýst For­stjóra­starf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar verður aug­lýst laust til umsóknar og segir Sigurður Guð­jóns­son, núver­andi for­stjóri, að hann hygg­ist sækja um aftur.

Starf for­stjóra Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar verður aug­lýst laust til umsóknar en Sigurður Guð­jóns­son, núver­andi for­stjóri, mun hafa gegnt starf­inu í fimm ár þann 1. apríl næst­kom­andi. Kristján Þór Júíusson, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, til­kynnti Sigurði þetta í sér­stöku bréfi í sept­em­ber síðlast­liðnum sam­kvæmt því sem Sigurður Guð­jóns­son segir aðspurður. 

Styr um Haf­rann­sókn­ar­stofnunStyr hefur staðið um Haf­rann­sókn­ar­stofnun vegna lax­eldis og loðnu­kvóta. Kristján Þór Júl­í­us­son er atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Þetta þýðir að Sigurður fær ekki sjálf­krafa end­ur­ráðn­ingu í starfið og verður að telj­ast lík­lega að ráð­herra hygg­ist skipa nýjan for­stjóra yfir Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Ef til hefði staðið að end­ur­ráða Sigurð hefði bréfið ekki verið sent til hans í sept­em­ber en ráð­herrar eiga, lögum sam­kvæmt, að senda slíkar til­kynn­ingar til for­stjóra rík­is­stofn­ana ef til stendur að aug­lýsa störf þeirra. Til­kynn­ing ráð­herr­ans verður að hafa borist sex mán­uðum fyrir lok skip­un­ar­tíma for­stjór­ans. 

Styr um laxeldi og loðnukvóta

Nokkur styr hefur staðið um Haf­rann­sókn­ar­stofnun á liðnum árum í for­stjóra­tíð Sigurður. Meðal ann­ars vegna lax­eldis í sjó­kvíum og eins vegna útgáfu loðnu­kvóta en Haf­rann­sókn­ar­stofnun hefur mælst gegn því að gef­inn verði út loðnu­kvóti vegna bágs ástands hans síð­ast­liðnar þrjár­ver­tíðir. Ekki eru allir á eitt sáttir um afstöðu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar í loðnu­mál­inu. 

Í lax­eld­inu hefur Haf­rann­sókn­ar­stofnun verið gagn­rýnd fyrir að hafa upp­haf­lega lagst gegn lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi í áhættu­mati árið 2017. Áhættu­mat­inu var svo breytt og er nú heim­ild til að stunda lax­eldi í Ísa­fjarð­ar­djúpi, allt að 12 þús­und tonn.

 „Ég get stað­fest það að ráð­herra hafi til­kynnt mér að hann hygg­ist aug­lýsa stöð­una og ég mun sækja um stöð­una“

 Sigurður hefur því ekki setið á frið­ar­stóli hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun síð­ast­liðin fimm ár. 

Sigurður ætlar að sækja um aftur

Sigurður Guð­jóns­son segir aðspurður að hann hafi til­kynnt starfs­mönnum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar um að starf hans verði aug­lýst laust til umsóknar á starfs­manna­fundi í októ­ber „Ég get stað­fest það að ráð­herra hafi til­kynnt mér að hann hygg­ist aug­lýsa stöð­una og ég mun sækja um stöð­una,“ segir Sigurður í sam­tali við Stundina. Hann verður því meðal umsækj­enda um starfið þegar þar að kemur. 

Sigurður var val­inn úr hópi sex umsækj­enda um for­stjóra­starfið árið 2016. Hinir umsækj­end­urnir voru Guðni Magnús Eiríks­son, Soffía B. Guð­munds­dóttir, Þor­leifur Ágústs­son, Þor­steinn Sig­urðs­son og Þór Heiðar Ásgeirs­son.  

Einn af þeim sem nefndur er nú sem mögu­legur arf­taki Sigurður er Þor­steinn Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar sem ráð­inn var til atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins, fyrr á árinu. Þor­steinn var sviðs­stjóri upp­sjáv­ar­sviðs hjá Hafró. 

Nýráðinn for­stjóri Hafró, hvort sem það verður áfram Sigurður eða ekki, mun svo taka við starf­inu eftir 1. apríl næst­kom­andi en þá er tæpt hálft ár til næstu Alþing­is­kosn­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár