Gefum loftslagsráði meiri tíma

Umhverfis- og auðlinda­ráðherra telur ekki tímabært að breyta eigi skipan og hlutverki lofts­lagsráð þrátt fyrir gagnrýni Land­verndar og þingmanns.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra, segir að ekki þurfi að styrkja sjálf­stæði ráðsins frá stjórn­völdum og hagsmuna­aðilum þar sem ráðið sé nú þegar sjálfstætt í sínum störfum. Hann segir ráðið enn vera nýtt og að gefa þurfi ráðinu meiri tíma og reynslu. Því séu breytingar ótíma­bærar.

Ráðið er sjálfstætt

Í samtali við Stundina segir Guðmundur að samkvæmt lögum sé lofts­lagsráð sjálfstætt í sínum störfum og varðandi það hvort styrkja þurfi sjálf­stæði ráðsins frá hagsmuna­aðilum og stjórn­völdum, telji hann ráðið nógu sjálfstætt. 

Þá telur hann til kosta að í ráðinu sitji hagsmuna­aðilar vegna þess að þá sé hægt að taka umræðuna um ráðgjöf og aðhald til stjórn­valda á breiðum grund­velli.

„Það eykur líka að mínu mati þekkingu og reynslu allra þessa aðila að vera í ráðinu og að taka til umfjöllunar þessi verkefni stjórn­valda sem verið er að rýna og gagnrýna,“ segir Guðmundur.

Loftslagsráð ekki það eina

Hann segir eðlilegt að umræða sé um það hverjir eigi að sitja í ráðinu og hvort það eigi að vera hreint fagráð. „Mín skoðun er sú að við eigum að gefa þessu aðeins meiri tíma, ráðið er búið að vera í eitt ár, “ segir hann þá. 

Aðspurður hvort ráðið hafi ekki verið starfrækt síðan 2018 segir hann að umgjörðina sem ráðið vinni eftir sé ársgömul þar sem ráðið var lögfest árið 2019.

Ráðið var stofnað árið 2018 á grund­velli þings­ályktunar­tillögu en Guðmundur vildi setja ákvæði inn í lög til að skýra umgjörð þess sem var gert 2019. „Svo það færi ekki á milli mála í löggjöfinni hvert hlutverk ráðsins ætti að vera,“ segir hann. Ráðið hefur því starfað í tvö ár og hefur nú sinn þriðja starfs­vetur.

Sömuleiðis nefnir hann í því samhengi að hann vilji fá meiri reynslu af ráðinu áður en teknar séu ákvarðanir um hvort ætti að breyta því. „Ég er ekki þar með að segja að við ættum að kíkja á þetta árið 2028 heldur miklu fyrr í tíma. Ef það yrði þá metið þannig að það gæti verið skynsamlegra að gera þetta með þeim hætti að það væri fagráð, meira í takt við það sem er á Norður­löndunum, eða áfram eins og það er, eins og er að finna sums staðar annars staðar, þá er það umræða sem við ættum að taka og vera óhrædd við að gera breytingar ef við teljum það vera betra fyrir loftslags­málin í heild sinni,“ segir hann. 

Frumvarp Andrésar

Eins og kemur fram í umfjöllun Stundarinnar hefur Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, lagt til frumvarp sem breyta á skipan og hlutverki loftslags­ráðs. Guðmundur telur frum­varpið vera ótímabært vegna þeirrar skoðunar að gefa ætti ráðinu meiri tíma og reynslu. Þá segist hann einnig vera ósammála gagnrýni Land­verndar að endur­skipuleggja þurfi lofts­lagsráð að svo stöddu. 

Þá nefnir Andrés Ingi í umfjöllun Stundarinnar að betra væri að skipta núverandi loftslags­ráði í tvo mismun­andi vettvanga. Annars vegar væri þá lofts­lagsráð sem sinnti aðhalds­hlutverki og hins vegar settur á stofn samráðs­vettvangur hagsmuna­aðila og umhverfis­samtaka, því að hans mati sé hagsmuna­aðilum illa komið fyrir í núverandi skipulagi, að það stangist á við aðhalds­hlutverk ráðsins.

Guðmundur segir að gengið sé út frá því að núverandi uppbygging ráðsins sé slæm og því er hann ekki sammála. „Það sem Andrés hefur lagt fram er ein leið og núverandi staða er önnur leið. Leyfum þessu að fá meiri meltingar­tíma. En gleymum því ekki að lofts­lagsráð með sitt aðhalds­hlutverk og ráðgjafa­hlutverk er ekki það eina sem er að gerast í loftslags­málum. Það er mín tilfinning að fókusinn sé þannig í þessari umræðu,“ segir hann.

Umræða á þingi

Í umræðu á þingi um lofts­lagsmál, dagsett 20. október síðastliðinn, sagði Guðmundur að hann fagnaði aðhaldi og að lofts­lagsráð hefði það hlutverk. „En ég tel að þar megi skerpa á, ég tek undir með hátt­virtum þingmanni, Andrési Inga Jónssyni með það.“

Andrés hafði þá tekið til máls á undan honum og nefndi þá frumvarp sitt um aukið aðhalds­hlutverk loftslags­ráðs. „Ríkis­stjórnin hefur jafnframt sett fram metnaðar­fulla loftslags­stefnu, segir ráðherrann. Það væri nú gott að geta metið það af einhverjum óháðum aðila,“ sagði hann og hélt svo áfram.

„Mig langar að nefna frumvarp mitt um aukið aðhalds­hlutverk loftslags­ráðs, sem ég mælti fyrir í gær, sem snýst akkúrat um það að lofts­lagsráð geti lagt mat á trúverðuleika áætlana stjórn­valda. Ekki er vanþörf á þegar fjórum mánuðum eftir fram­lagningu loftslags­áætlunar í vor var allt í einu hætt við urðunar­skatt, sem er ein af aðgerðunum í þeirri áætlun.“

Takmörkuð vitund um ráðið

Varðandi það að í skýrslu Capacent komi fram að vitund um ráðið, hlutverk þess og eðli sé mjög takmarkað, bæði hvað varðar stjórn­sýsluna og almenning segir Guðmundur í samtali við Stundina það vera vegna þess hve nýtt ráðið er. „Maður hefur heyrt rugling í umræðunni (um ráðið), sumir halda að lofts­lagsráð sé að vinna að aðgerðar­áætlun stjórn­valda í loftslags­málum, sem er alls ekki raunin. Ráðið rýnir þær áætlanir til að geta svo komið með mat á þeim og til að aðstoða stjórn­völd til að gera betur. Ég held að með tímanum ætti lofts­lagsráð að verða þekktara og fólk muni skilja betur hvert hlutverk þess er. Það er alveg óháð því hvernig það er saman sett. Ráðið þarf að taka sér meira rými.“

„Mér finnst ekki rétt að ég svari því.“

Aðspurður um það hvernig ráðið veiti stjórn­völdum aðhald segir hann besta dæmið vera rýni ráðsins á aðgerðar­áætlun stjórn­valda og gerð úttektar á stjórn­sýslu í loftslags­málum. „Sú áætlun sem við gáfum út í júní fór á fyrri stigum til ráðsins, sem ég tel mjög gott. Við fengum athuga­semdir frá ráðinu um ákveðna þætti sem þyrfti að veita meiri athygli og í kjölfarið tókum við athuga­semdir til greina sem breytti loka­útkomu áætluninnar. Mér finnst þetta gott aðhald. Ég vil líka nefna gerð stjórnsýslu­úttektarinnar. Þegar ég kem inn í ráðuneytið og er að koma loftslags­málum á fót, beini ég ákveðnum verkefnum til ráðsins og eitt af þeim verkefnum var að fara yfir stjórn­sýslu loftslags­mála því hún er flókin, það er staðreynd.“

Þá vísar hann til þess að úttekt Capacent á stjórn­sýslu loftslags­mála hjálpi til við yfirsýn á mála­flokknum.

„Ég held að úttektin, sem var algjör­lega unnin á forsendum loftslags­ráðs, ég bað þau um að gera þetta en síðan fara þau í þessa vinnu og þetta er loka úttektin, þetta hjálpar okkur að vinna áfram og halda betur utan um alla þræði stjórn­sýslunnar því loftslags­málin eru bæði í mörgum ráðuneytum og stofnunum,“ segir hann. 

Einnig nefnir hann skýrslu ráðsins um aðlögun að loftslags­málum og greinar­gerðir um kolefnis­hlutleysi. Verkefni sem ráðherra fól ráðinu. Hvað varðar frumkvæði ráðsins að sinna verkefnum segir hann ráðið hafa fullt sjálfdæmi að gera það sem þau vilja og láta kanna það sem þau vilja kanna. „En það er líka gert ráð fyrir því í lögunum að ráðherra geti falið þeim verkefni. Þau geta tekið þá ákvörðun, af því að þau eru sjálfstæð, að vinna ekki tiltekin verkefni.“

Aðspurður hvaða verkefni ráðið hefur unnið að sínu frumkvæði segir hann ekki rétt að hann svari fyrir það heldur sé það í hlutverki ráðsins. „Mér finnst ekki rétt að ég svari því,“ segir hann.

Ánægður með formanninn

Hvað varðar hlutleysi formannsins sem óformlegur ráðgjafi núverandi og fyrrum ríkis­stjórna segir Guðmundur að fyrir það fyrsta hafi formaðurinn enga stöðu sem formlegur eða óformlegur ráðgjafi ríkis­stjórnarinnar, hann sé formaður loftslags­ráðs. Hins vegar sé mikið leitað til hans vegna yfirburðar­þekkingar hans á mála­flokknum og svo hafi fyrrum ríkis­stjórnir einnig gert.

„Mér finnst Halldór hafa staðið sig vel sem formaður loftslags­ráðs í því hlutverki að veita stjórn­völdum ráðgjöf og aðhald.“

„Mér finnst Halldór hafa staðið sig vel sem formaður loftslags­ráðs í því hlutverki að veita stjórn­völdum ráðgjöf og aðhald. Það er mikið leitað til hans og mér finnst það ekkert óeðlilegt miðað við þekkingu hans og reynslu. Ég held að hann sem formaður loftslags­ráðs hafi ákveðin sveigjanleika til að tala við stjórn­völd og ráðleggja þeim. Þegar ég hef talað við Halldór hefur hann gefið ráð með þeim hætti að verður til þess að við stöndum okkur betur í loftslags­málum. Hann er ekki að vinna gegn þeim, hann er að vinna að því að við gerum betur,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár