SFS munu ekki beita Hraðfrystihúsið Gunnvöru viðurlögum

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi von­ast til að fram­ganga stjórn­enda hjá Hrað­frysti­hús­inu Gunnvöru valdi því ekki að sam­fé­lags­stefna í sjáv­ar­út­vegi bíði hnekki af. Fyr­ir­tæki verði hins vegar að haga sér með for­svar­an­legum hætti gagn­vart starfs­fólki.

SFS munu ekki beita Hraðfrystihúsið Gunnvöru viðurlögum
Fyr­ir­tæki þurfa að haga sér með for­svar­an­legum hætti Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) munu ekki, og geta ekki, beitt Hrað­frysti­húsið Gunnvöru við­ur­lögum fyrir að hafa brotið gegn sam­fé­lags­stefnu í sjáv­ar­út­vegi með fram­göngu sinni gagn­vart skip­verjum Júlíusar Geir­munds­sonar. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er fram­kvæmda­stjóri SFS. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hrað­frysti­húsið Gunnvör verður ekki beitt við­ur­lögum af hálfu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), þrátt fyrir að fyr­ir­tækið hafi aug­ljós­lega brotið gegn sam­fé­lags­stefnu SFS. Slíkt sé ekki í verka­hring SFS. Hrað­frysti­húsið Gunnvör verður eftir sem áður aðili að sam­fé­lags­stefn­unni. „En það er á ábyrgð fyr­ir­tækj­anna sjálfra að inn­leiða stefn­una og fram­fylgja. Því það er til lít­ils að und­ir­gang­ast stefnu ef ekki á að fara eftir henni,“ segir í svari SFS við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Víðtækt Covid-19 smit kom upp í tog­ar­anum Júlíusi Geir­munds­syni í síð­asta veiði­túr tog­ar­ans. Allt í allt hefur verið stað­fest að 22 af 25 skip­verjum smit­uð­ust af kór­óna­veirunni. Veik­indin munu hafa komið upp strax á fystu dögum veiði­t­úrs­ins og lagst þungt á suma af skip­verj­unum. Þrátt fyrir það voru menn, sam­kvæmt lýs­ingum skip­verja, látnir vinna áfram, sumir hverjir fár­veikir. Skortur var á verkja­lyfjum í skip­inu og beiðnir skip­verja um að haldið yrði í land vegna veik­ind­anna voru huns­aðar. Skip­verjum var meinað að tjá sig um málið af útgerð­inni.

Hegðunin nú í samræmi við það sem áður hefur verið

„Hegðun HG [Hrað­frysti­húss­ins Gunn­varar] í þessum kór­ónu­vírusskandal núna er í nákvæmu sam­ræmi við hegðun fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart starfs­mönnum hvað varðar öryggi og heilsu starfs­manna í for­tíð­inni,“ sagði Arnar Hilm­ars­son, 21 árs skip­verji á Júlíusi Geir­munds­syni, í við­tali við Rík­is­út­varpið síð­ast­lið­inn laug­ar­dag.

„Það er ekki í verka­hring að SFS að beita aðild­ar­fé­lög við­ur­lögum“

Hrað­frysti­húsið Gunnvör hefur und­ir­ritað sam­fé­lags­stefnu SFS en í henni er meðal ann­ars til­tekið að stjórn­endum fyr­ir­tækj­anna sem und­ir­ritað hafa stefn­una sé „ljós sú ábyrgð sem við berum gagn­vart starfs­fólki okkar og við höfum virð­ingu að leið­ar­ljósi í öllum okkar sam­skiptum.“ Enn fremur segir: „Við leggjum áherslu á heilsu og öryggi starfs­fólks og vinnum mark­visst að því að draga úr hættu við vinnu og í starfs­um­hverfi.“

SFS segir málið sýna þörfina á samfélagsstefnu

Í svari SFS við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um það hvort fram­ganga stjórn­enda Gunn­varar muni hafa ein­hverjar afleið­ingar, í ljósi þess að fyr­ir­tækið hafi und­ir­ritað sam­fé­lags­stefn­unu, kemur fram að málið verði rætt á vett­vangi sam­tak­anna og einnig sér­stak­lega við fyr­ir­tækið. „Stefnan er sett til þess að vera til leið­bein­ingar fyrir fyr­ir­tækin. Þetta atvik fyrir vestan sýnir þörf­ina á því að stefna sé til staðar sem veitir leið­sögn um ábyrgð og skyldur fyr­ir­tækja gagn­vart starfs­mönnum,“ segir í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn­inni.

Þá segir einnig í svar­inu að Gunnvör geti eftir sem áður verið aðili að sam­fé­lags­stefnu sjáv­ar­út­vegs­ins. „Stefnan er sett til þess að fyr­ir­tæki geti gert betur. Það er alltaf svig­rúm til þess og þá er nauð­syn­legt að hafa stefnu og leið­bein­ingu til að styðj­ast við.“

„Það er til lít­ils að und­ir­gang­ast stefnu ef ekki á að fara eftir henni“

Engin við­ur­lög eru við því að brjóta gegn umræddri sam­fé­lags­stefnu, að því er kemur fram í svari SFS. „Það er ekki í verka­hring SFS að beita aðild­ar­fé­lög við­ur­lögum, enda ekki á færi sam­tak­anna. Sam­fé­lags­stefnan er stefna hvers fyr­ir­tækis fyrir sig og er ætlað að vera fyr­ir­tækj­unum leið­sögn um hvernig gera megi betur og sýn á hvernig sjáv­ar­út­vegur við ætlum að vera til fram­tíðar.“

Innan SFS von­ast fólk til þess að sam­fé­lags­stefna sjáv­ar­út­vegs­ins hafi ekki beðið hnekki af fram­göngu for­svars­manna Gunn­varar í garð skip­verja á Júlíusi Geir­munds­syni. „Vonandi ekki. Það mætti kannski frekar segja að atvikið fyrir vestan sýni fram á þörf slíkrar stefnu, því það skiptir máli hvernig fyr­ir­tæki haga sér gagn­vart sínu starfs­fólki og sam­fé­lag­inu almennt. Það er það sem lögð er áherslu á í stefn­unni; að fyr­ir­tæki hagi sér með for­svar­an­legum hætti.“

Sem fyrr er nefnt hyggst SFS ræða málið við for­svars­menn Gunn­varar. Í sam­fé­lags­stefn­unni kemur fram að hún verði upp­færð eftir því sem þurfa þykir. „En það er á ábyrgð fyr­ir­tækj­anna sjálfra að inn­leiða stefn­una og fram­fylgja. Því það er til lít­ils að und­ir­gang­ast stefnu ef ekki á að fara eftir henni,“ segir í svari SFS.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár