Landlæknir, ljósmæður og Barnaheill gagnrýna nýtt frumvarp um fæðingarorlof

Frumvarp Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra um fæð­ing­ar­or­lof er gagn­rýnt fyrir að taka fremur mið af rétti for­eldra en barna. Gagnrýnt er í umsögnum um frum­varpið að það hafi verið unnið af aðilum sem tengj­ast vinnu­mark­aði en engin með sér­þekk­ingu á þörfum barna hafi komið þar að.

Landlæknir, ljósmæður og Barnaheill gagnrýna nýtt frumvarp um fæðingarorlof
Vilja tryggja rétt barns­ins Fjöl­margar umsagnir hafa borist um frum­varp til laga um fæð­ing­ar­or­lof. Mynd: Shutterstock

Barna­heill, Geð­vernd­ar­fé­lagið og félag Fjöl­skyldu­fræð­inga leggj­ast gegn frum­varpi til laga um fæð­ingar- og for­eldra­or­lof í þeirri mynd sem það hefur verið lagt fram af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barna­mála­ráð­herra. Félögin þrjú telja að með frum­varp­inu sé ekki verið að tryggja barni rétt til sam­vista við for­eldra sína, heldur sé verið að tryggja rétt for­eldr­anna. Þau leggja til að börn fái 12 mán­aða sjálf­stæðan rétt til orlofs með öðru for­eldri sínu eða báðum.

Fleiri félög og opin­berir aðilar taka í sama streng, þar á meðal Ljós­mæðra­fé­lag Íslands og emb­ætti land­læknis. Þá er gagn­rýnt harð­lega að vinnu­hópur sem stóð að til­lögu­gerð um end­ur­skoðun lag­anna hafi ekki haft innan sinna raða neina þá sem hefði sér­þekk­ingu á börnum eða þörfum þeirra „heldur virð­ast full­trúar einna helst tengj­ast atvinnu­málum,“ eins og segir í umsögn land­læknis.

Of lítill sveigjanleiki

Í frum­varpi Ásmundar Einars er til­tekið að for­eldrar eigi rétt til fæð­ing­ar­or­lofs í allt að sex mán­uði en heim­ilt sé að fram­selja einn mánuð á milli for­eldra. Þannig geti fæð­ing­ar­or­lof ann­ars for­eldris aldrei orðið lengra en sjö mán­uðir en réttur til fæð­ing­ar­or­lofs geti aldrei orðið minni en fimm mán­uðir. Með frum­varp­inu er fæð­ing­ar­or­lof lengt úr tíu mán­uðum í tólf.

Í yfir­lýs­ingu sem félögin þrjú hafa sent frá sér segir að í 2. grein frum­varps­ins sé til­tekið að mark­mið lag­anna sé að tryggja barni sam­vistir við báða for­eldra. Það sé hins vegar ekki svo þegar laga­text­inn er skoð­aður, því að í 7. grein frum­varps­ins sé til­tekið að for­eldrar eigi sjálf­stæðan rétt til fæð­ing­ar­or­lofs í sex mán­uði sem ekki sé fram­selj­an­legur, nema einn mán­uður svo sem rakið er hér að framan. Sú regla „brýtur gegn bæði barn­inu og mark­miðs­grein lag­anna,“ segir í yfir­lýs­ingu félag­anna.

„Við teljum hins vegar að börn eigi ekki að gjalda þess að ann­að­for­eldrið nýti sér ekki þennan rétt“

Tekið er dæmi af barni ein­stæðra for­eldra þar sem hitt for­eldrið geti ein­hverra hluta vegna ekki verið sam­vistum við barnið, sökum veik­inda, sökum þess að ekki er vitað hver fað­ir­inn er eða for­eldri vilji ekki umgang­ast barnið, svo dæmi séu tekin. Þau börn fái aðeins sjö mánð­uði í sam­vistir með for­eldri sínu verði frum­varpið sam­þykkt, meðan önnur börn fái tólf mán­uði.

Félögin segja í yfir­lýs­ingu að þeim sé ljóst það mark­mið lag­anna að stuðla að þátt­töku beggja for­eldra í umönnun barna fyrstu mán­uð­ina. „Við teljum hins vegar að börn eigi ekki að gjalda þess að ann­að­for­eldrið nýti sér ekki þennan rétt heldur eigi orlofs­tím­inn að vera merktur börn­unum óháð því.“

Enginn með sérþekkingu á þörfum barna kom að málinu

Þá er gagn­rýnt að í starfs­hópi félags- og barna­mála­ráð­herra sem vann að til­lögum um heild­ar­end­ur­skoðun lag­anna hafi aðeins verið skip­aðir aðilar vinnu­mark­að­ar­ins auk full­trúa frá ráðu­neytum og Vinnu­mála­stofnun. „Enginn með sér­þekk­ingu á börnum og þörfum þeirra, s.s. frá Ljós­mæðra­fé­lagi Íslands, Félagi íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga, Geð­lækna­fé­lag­inu, Félagi íslenskra félags­ráð­gjafa, Sál­fræð­inga­fé­lagi Íslands, Kenn­ara­sam­band­inu, Félagi leik­skóla­kenn­ara eða frjálsum félaga­sam­tökum sem vinna að mál­efnum barna var skip­aður í hóp­inn. Með þeirri skipan má draga þá ályktun að ekki hafi staðið til að setja þarfir barna í for­grunn, heldur að líta á fæð­ing­ar­or­lof fyrst og fremst sem vinnu­mark­aðsúr­ræði til að ná fram öðrum mark­miðum en vel­ferð barna.“

Frum­varpið var birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og hafa, þegar þetta er ritað, 253 umsagnir borist um frum­varpið. Lang­flestar umsagn­irnar koma frá ein­stak­lingum, og að miklum meiri­hluta frá konum. Mjög mis­jafnar skoð­anir eru á efni frum­varps­ins, þó almennt sé því fagnað að lengja eigi fæð­ing­ar­or­lof.

„Virðast full­trúar einna helst tengj­ast atvinnu­málum“

Nokkur fjöldi umsagna hefur borist frá félaga­sam­tökum og opin­berum aðilum. Þannig bendir Jafn­rétt­is­stofa á að þeim mark­miðum lag­anna, að tryggja barni sam­vistir við báða for­eldra, sé best náð ef for­eldrar eigi hvort um sig sjálf­stæðan rétt til töku fæð­ing­ar­or­lofs. Þá leggur Ljós­mæðra­fé­lag Íslands til að rétt­ur­inn til orlofstöku verði fram­selj­an­legur „að nokkru eða fullu leyti til hins for­eldr­is­ins.“

Tryggja þurfi rétt barna

Embætti land­læknis segir í sinni umsögn að mik­il­vægt sé að tryggja að öll börn sitji við sama borð hvað varði tæki­færi til að verja fyrsta ævi­ár­inu í umsjá for­eldra, óháð hjú­skap­ar­stöðu og for­sjár­til­högun. „Í þeim til­vikum þar sem ein­ungis annað for­eldrið kemur að upp­eldi barns­ins þarf því að vera hægt að ráð­stafa fæð­ing­ar­or­lofi þannig að barn­inu sé tryggður sami fjöldi mán­aða í umsjá for­eldris og öðrum börnum.“ Þá leggur emb­ætti land­læknir enn fremur til að sveigj­an­leiki verði aukin í því hvernig for­eldrar geti ráð­stafað orlofi sín á milli, þannig að fjórir mán­uðir fari til hvors for­eldris en hina fjóra mán­uð­ina sem eftir standi geti for­eldrar ráð­stafað sín á milli eins og best henti þörfum barns og aðstæðum fjöl­skyld­unnar.

Þá hnýtir land­læknir einnig í skipun nefnd­ar­innar sem vann að end­ur­skoðun lag­anna enda þurfi, við frek­ari end­ur­skoðun, að kalla eftir aðkomu full­trúa sem hafi sér­þekk­ingu á geð­heilsu og þroska ungra barna. „Það vekur athygli að engan slíkan full­trúa virð­ist að finna í þeim starfs­hópi sem nú hefur lagt fram til­lögur að breyt­ingu lag­anna heldur virð­ast full­trúar einna helst tengj­ast atvinnu­málum. Við frek­ari end­ur­skoðun lag­anna er mik­il­vægt að tryggja aðkomu fag­fólks með þekk­ingu á sviði geð­heilsu og þroska barna sem verður best tryggð með því að grund­valla lögin jafn­framt sem rétt­indi og geð­heil­brigð­is­mál barna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár