Ellefu ára drengur fannst látinn í Garðabæ

Málið ekki rann­sakað sem saka­mál.

Ellefu ára drengur fannst látinn í Garðabæ
Harm­leikur Andlát drengs­ins bar ekki að með sak­næmum hætti. Mynd: Pixabay

Ellefu ára drengur fannst lát­inn á heim­ili sínu í Garðabæ á þriðju­dag. Mannlíf greindi fyrst frá því í morgun. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar lést dreng­ur­inn af völdum skotsárs. Rætt hefur verið við börn í Garðabæ um að þarna hafi skelfi­legt slys átt sér stað. 

Málið er ekki rann­sakað sem sak­næmt athæfi. 

Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um málið þegar eftir því hefur verið leitað. Aðrir sem Stundin hefur rætt við og hafa komið að mál­inu lýsa því sem hræði­legum harm­leik.

Uppfært klukkan 13:15.
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendi nú eftir hádegi frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu vegna máls­ins:

Vegna umfjöll­unar í fjöl­miðlum um and­lát barns í Garðabæ á þriðju­dag þá vill Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu koma því á fram­færi að um er að ræða mik­inn harm­leik, en ekk­ert bendir til þess að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað.

Lög­reglan mun ekki veita frek­ari upp­lýs­ingar um málið og biður jafn­framt fjöl­miðla um að veita aðstand­endum svig­rúm til að syrgja á þessum erf­iðum tímum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár