Samherji vill að Seðlabankinn endurgreiði laun sem útgerðin greiddi fyrrverandi starfsmanni bankans

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji vill 306 millj­ónir í skaða­bætur frá Seðla­banka Íslands. Hluti upp­hæð­ar­innar er vegna greiðslna til ráð­gjafa Samherja sem svo var með fyrr­ver­andi starfs­mann bank­ans í vinnu hjá sér.

Samherji vill að Seðlabankinn endurgreiði laun sem útgerðin greiddi fyrrverandi starfsmanni bankans
End­ur­greiðslur vegna greiðslna til félags Jóns Óttars Rúmlega 130 millj­ónir af skaða­bóta­kröfu Samherja, sem Þor­steinn Már Bald­vins­son á og stýrir, eru vegna vinnu Jóns Óttars Ólafs­sonar fyrir útgerð­ina. Myndin er úr dóms­sal í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Mynd: Davíð Þór

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji vill að Seðla­banki Íslands, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, end­ur­greiði útgerð­inni þær 131 milljón krónur sem fyr­ir­tækið greiddi ráð­gjafa­fyr­ir­tæki afbrota­fræð­ings­ins og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins, Jóns Óttars Ólafs­sonar, á árunum 2013-2015. Kjarninn greindi frá þessu í dag og byggir á upp­lýs­ingum sem fram komu í aðal­með­ferð skaða­bóta­máls Samherja gegn Seðla­banka Íslands sem hófst í morgun. 

Ekki allir þessir fjár­munir runnu á end­anum til Jóns Óttars sjálfs þar sem ráð­gjafa­fyr­ir­tæki hans, Juralis-ráð­gjaf­ar­stofa slhf., réði einnig til sín aðra aðila, und­ir­verk­taka ef svo má segja, sem einnig unnu að Seðla­banka­mál­inu fyrir hönd Samherja. 

Félag með 26 milljóna tekjur á tveimur árum

Vitni SamherjaHreiðar Eiríks­son var vitni Samherja í skaða­bóta­mál­inu í dag.

Að minnsta kosti einn af þessum aðilum var félag í eigu fyrr­ver­andi starfs­manns Seðla­banka Íslands, lög­fræð­ings­ins Hreiðars Eiríks­sonr, en hann var for­stöðu­maður rann­sókn­ar­deildar gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands í upp­hafi rann­sóknar Seðla­banka Íslands á útgerð­inni árið 2012. Stundin fjall­aði um mál Hreiðars fyrir stuttu. Hreiðar stýrði sem sagt rann­sókn­inni á Samherja um hríð inni í bank­anum. 

Árið 2013 stofn­aði Hreiðar einka­hluta­fé­lagið Exitus ráð­gjöf ehf. Árið eftir voru tekjur þessa félags tæp­lega 13,5 millj­ónir króna, ári síðar 12,9 millj­ónir og svo tæp­lega 900 þús­und árið 2016. 

Neitaði Samherja en ekki Juralis

Þegar Stundin spurði Hreiðar hvort hann hefði unnið fyrir Samherja neit­aði hann því. En þegar hann var spurður að því hvort félag hans hefði unnið fyrir Juralis ráð­gjaf­ar­stofu, félag Jóns Óttars, vildi hann ekki svara. „Ég hef aldrei unnið neitt fyrir Samherja .[…] Ég er ekki að fara að svara neinum spurn­ingum frá fjöl­miðla­mönnum um þetta mál. Ég ætla ekki að svara neinum spurn­ingum um það fyrir hverja ég vann sem lög­maður,“ sagði Hreiðar aðspurður fyrst um Samherja og svo Juralis ráð­gjaf­ar­stofu. 

„Ég ætla ekki að svara neinum spurn­ingum um það fyrir hverja ég vann sem lög­maður“

Síðar átti Hreiðar eftir að verða við­mæl­andi í þætti um Seðla­banka­málið sem sjón­varps­stöðin Hring­braut gerði fyrir hönd Samherja um rann­sókn bank­ans á meintum brotum útgerð­ar­fé­lags­ins á lögum um gjald­eyr­is­mál. Í þætt­inum var Hreiðar kynntur með þeim hætti að rætt hafi verið við „Hreiðar Eiríks­son, yfir­mann rann­sókna hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­bank­ans“. Hreiðar sagði við Stundina að hann hafi ekki vitað að þátt­ur­inn hafi verið kost­aður af Samherja og að ef hann hefði vitað það þá hefði hann lík­lega ekki tekið þátt í þætt­inum. 

Í við­tal­inu sagði Hreiðar frá fundi sem hann sat með rík­is­sak­sókn­ara á meðan hann starf­aði í Seðla­bank­anum. Á fund­inum var rætt um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál. Þagn­ar­skylda hvílir á starfs­mönnum Seðla­bank­ans um það sem þeir gera í störfum sínum. 

Vitni Samherja í dag

Staðan er því sú að hluti af skaða­bóta­kröfu Samherja snýr að því að félagið vill fá end­ur­greiðslur frá Seðla­bank­anum fyrir vinnu ráð­gjafa­fyr­ir­tækis Jóns Óttars og und­ir­verk­taka þess, meðal ann­ars fyrr­ver­andi starfs­manns Seðla­banka Íslands.

131 miljónGreiðslur Samherja til ráð­gjafa­fé­lags Jóns Óttars Ólafs­sonar námu 131 milljón á árunum 2013 til 2015. Jón Óttar sést hér fyrir utan Hér­aðs­dóm Reykja­víkur í morgun áður en hann gaf skýrslu í mál­inu.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar byggð­ist við­skipta­sam­band félags Hreiðars og Juralis upp á vinnu hans fyrir Seðla­bank­ann þar sem hann einn bjó yfir upp­lýs­ingum um málið og Samherji, eða Juralis-ráð­gjaf­ar­stofa fyrir hönd útgerð­ar­innar, gat vart leitað annað eftir sömu þjón­ustu.  

Hreiðar kom einnig fyrir í dóms­salnum í dag sem vitni Samherja í skaða­bóta­mál­inu gegn Seðla­banka Íslands. Lokað var á aðkomu fjöl­miðla að vitna­skýrslu hans þar sem hann var að greina frá upp­lýs­ingum sem vörð­uðu banka­leynd. Að Hreiðar er vitni Samherja í skaða­bóta­mál­inu í dag sýnir einnig þá stöðu sem hann er í sem fyrr­ver­andi starfs­maður bank­ans og þau not sem Samherji telur sig getað haft af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár