Ekki pláss fyrir fjölmiðla í dómssalnum í Samherjamálinu

Aðal­með­ferð í skaða­bóta­máli Samherja gegn Seðla­banka Íslands hófst í morgun. Dóms­sal­ur­inn í mál­inu er svo lít­ill að ekki er pláss fyrir fjöl­miðla inni í honum. Í mál­inu geta komð fram nýjar upp­lýs­ingar, sem hingað til hafa ekki verið opin­berar, um rann­sókn Seðla­bank­ans á Samherja.

Ekki pláss fyrir fjölmiðla í dómssalnum í Samherjamálinu
Fyrir utan dóms­sal­inn Á mynd­inni sést hvernig full­trúar fjöl­miðla þurftu að koma sér fyrir utan við dóms­sal­inn í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun til að fylgj­ast með aðal­með­ferð­inni í skaða­bóta­máli Samherja gegn íslenska rík­inu. Mynd: Davíð Þór

Starfs­fólk fjöl­miðla kemst ekki fyrir í dóms­salnum til að fylgj­ast með aðal­með­ferð­inni í skaða­bót­máli útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja gegn Seðla­banka Íslands. Dóms­sal­ur­inn er svo lít­ill að þar er ein­ungis pláss fyrir örfáa áhorf­endur í sætum auk þess sem eins metra reglan vegna COVID-19 tak­markar enn frekar þann fjölda sem má vera inni í salnum. Enginn full­trúi fjöl­mið­ils náði einum af þessum sætum í morgun. Myndir frá vett­vangi sýna hvernig fjöl­miðla­fólk þarf að vera utan dóms­sal­inn og fylgj­ast með gangi máls­ins eftir bestu getu með þeim hætti í gegnum opna hurð fyrir utan sal­inn. 

Skaða­bóta­mál Samherja gegn Seðla­banka Íslands snýst um til­raun útgerð­ar­fé­lags­ins til að sækja 316 mill­ljóna króna bætur frá íslenska rík­inu vegna máls­með­ferðar bank­ans á rann­sókn á meintum gjald­eyr­is­brotum félags­ins á árunum 2012 til 2015. 10 millj­ónir af fjár­kröf­unni er miska­bótakrafa en 306 millj­ónir er krafa fyrir alls kyns kostnað eins og laun allra starfs­manna Samherja þegar hús­leitir fóru fram í höf­uð­stöðvum Samherja árið 2012. Þá er einnig gerð krafa um að Seðla­banki Íslands greiði laun starfs­manna útgerð­ar­innar sem rann­sök­uðu málið á sínum tíma fyrir hönd Samherja. 

Sú stað­reynd að fjöl­miðlar kom­ast ekki inn í dóm­sal­inn vegna smæðar hans til að fylgj­ast með mál­inu þýðir að aðgengi fjöl­miðla að upp­lýs­ingum um eðli rann­sóknar Seðla­bank­ans á Samherja er tak­markað og skert. Lögmaður Seðla­bank­ans, Jóhannes Karl Sveins­son, mun þurfa að fjalla efn­is­lega um rann­sókn­ina að ein­hverju leyti í vörnum bank­ans gegn kröfu Samherja. Þá geta mögu­lega komið fram nýjar upp­lýs­ingar um málið og rann­sókn­ina; upp­lýs­ingar sem hingað til hafa ekki verið opin­berar. 

Í grein­ar­gerð lög­manns­ins eru meint sak­ar­efni í kærum Seðla­banka til­greind þótt búið sé að krota yfir umfjall­anir um inn­tak þess­ara kæru­liða sökum þess að mál­inu gegn stjórn­endum Samherja var á end­anum vísað frá.  „Í fyrsta lagi laut kæran að meintum brotum gegn skila­skyldu á erlendum gjald­eyri; [...] í öðru lagi laut kæran að fjár­fest­ingum í erlendum gjald­eyri;[...] í þriðja lagi laut kæran að meintum brotum í tengslum við svo­kall­aða milli­verð­lagn­ingu.“

Seðlabankinn neitar að afhenda upplýsingar

Seðla­bank­inn hefur ítrekað neitað fjöl­miðlum um gögnin í mál­inu á grund­velli þagn­ar­skyldu um starf­semi bank­ans og er þessi aðal­með­ferð því ein af leið­unum sem er mögu­leg fyrir fjöl­miðla til að fá betri vit­neskju um rann­sókn­ina. 

Nú síð­ast fyrir nokkrum dögum neit­aði Seðla­bank­inn að afhenda Stund­inni þær gagna­beiðnir sem Samherji sendi bank­anum þar sem útgerðin leit­aði eftir upp­lýs­ingum frá stofn­un­inni. 

Í svari Seðla­bank­ans sagði: „Rík þagn­ar­skylda hvílir á starfs­mönnum Seðla­bank­ans um allt það sem varðar hagi við­skipta­manna bank­ans, við­skipti og rekstur eft­ir­lits­skyldra aðila, tengdra aðila eða ann­arra og mál­efni bank­ans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vit­neskju um í starfi sínu og leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, nema dóm­ari úrskurði að upp­lýs­ingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lög­reglu eða skylt sé að veita upp­lýs­ingar lögum sam­kvæmt, sbr. 1. mgr. 41. gr. laga nr. 92/2020. Upp­lýs­ingar þær sem þú óskar eftir telj­ast ekki til opin­berra upp­lýs­inga og eru þær háðar þagn­ar­skyldu.“

Vildi opinbera gögnin

Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóri, hefur sagt opin­ber­lega að hann vildi helst að öll gögnin í Seðla­banka­mál­inu yrðu opin­ber og hefur hann und­ir­strikað að skaða­bóta­mál eins og það sem hófst í morgun leiði til þess að opin­bera þurfi upp­lýs­ingar um málið sem hingað til hafa verið háðar þagn­ar­skyldu.

„Fari Samherji hins vegar í skaða­bóta­mál verður ekki undan þess­ari umræðu vik­ist“

Út af þessu sagði Már í bréf til for­sæt­is­ráð­herra í fyrra að hann vildi helst að gögnin í mál­inu yrðu opin­ber. „Það er vand­með­farið að ræða það opin­ber­lega hvort mála­til­bún­aður Seðla­bank­ans í Sam­herj­a­mál­inu hafi verið til­hæfu­laus eins og full­yrt hefur verið í fjöl­miðlum. Ýmis helstu gögn máls­ins sem skipta máli varð­andi þá spurn­ingu eru ekki opin­ber, eins og t.d. end­ur­send­ing­ar­bréf sér­staks sak­sókn­ara. […] Fari Samherji hins vegar í skaða­bóta­mál verður ekki undan þess­ari umræðu vik­ist og að a.m.k. ein­hver máls­skjöl yrðu lögð fyrir dóm­inn og yrðu í þeim skiln­ingi opin­ber. Ég hefði reyndar ekk­ert á móti því að öll gögn máls­ins yrðu gerð opin­ber.“

Af þessu verður lík­ast til ekki en aðal­með­ferðin í skaða­bóta­mál­inu er ein leið fyrir fjöl­miðla til að nálg­ast upp­lýs­ingar um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
6
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár