Mannfjöldarannsókn spáir hörmungum

Tíðni fæð­inga er að hrynja víð­ast hvar í heim­inum og ný rann­sókn bendir til þess að fólks­fjöldi fari brátt lækk­andi í flestum eða nær öllum ríkjum heims. Um leið marg­fald­ast hlut­fall eldri borg­ara.

Mannfjöldarannsókn spáir hörmungum

Á Íslandi má reikna með að fólk yfir 65 ára aldri verði fjórð­ungur þjóð­ar­innar innan þriggja ára­tuga. Ómögu­legt verður að reka vest­ræn vel­ferð­ar­kerfi í núver­andi mynd eftir því sem vinn­andi fólki fækkar en um leið er Afríka tif­andi tíma­sprengja.

Því hefur lengi verið spáð að óstjórn­leg fjölgun mann­kyns muni á end­anum leiða til mik­illa hörm­unga þegar jörðin geti ekki lengur borið mann­fjöld­ann. Slíkar spár eru stundum kenndar við Thomas Robert Malthus, sem skrif­aði höf­uð­rit sitt árið 1798: ‘An essay on the principle of population’.

Þar færði Malthus rök fyrir því að iðn­bylt­ingin myndi leiða til þess að verka­lýð­ur­inn fjölg­aði sér óstjórn­lega ef ekk­ert yrði að gert. Hinir fátæku söfn­uð­ust á þessum tíma saman í iðn­að­ar­borgum og eign­uð­ust fleiri börn en yfir­stéttin. Taldi Malthus að fátæk­lingar myndu því smám saman ganga á allar auð­lindir þar til ríkið yrði gjald­þrota og almenn hung­ursneyð tæki við.

Það væri ekki við verk­smiðju­eig­endur og kap­ít­alista …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár