Forstöðumaður í Seðlabankanum vill ekki svara hvort hann starfaði fyrir ráðgjafa Samherja

Fyrr­ver­andi for­stöðu­maður rann­sókn­ar­deildar gjald­eyr­is­left­ir­lits Seðla­banka Íslands vill ekki svara því hvort hann fór síðar að vinna fyrir ráð­gjafa útgerð­ar­innar. Hann var við­mæl­andi um rann­sókn Seðla­bank­ans á Samherja í kost­uðum þætti á Hring­braut.

Forstöðumaður í Seðlabankanum vill ekki svara hvort hann starfaði fyrir ráðgjafa Samherja
Eiinn af við­mæl­end­unum í kost­uðum þætti Hreiðar Eiríks­son, sem stýrði rann­sókn­ar­deild gjald­eyr­i­r­eft­ir­lits Seðla­bank­ans, var við­mæl­andi í kost­uðum þætti Samherja um Seðla­banka­málið. Hann vill ekki svara því hvort hann hafi unnið fyrir ráð­gjafa Samherja. Þor­steinn Már Bald­vins­son og föru­neyti hans sjást hér á leið á fund í Seðla­banka Íslands um málið. Mynd: Haraldur Jónasson/Hari

Fyrr­ver­andi for­stöðu­maður rann­sókn­ar­deildar gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, Hreiðar Eiríks­son, vill ekki svara því hvort hann hóf að starfa fyrir ráð­gjafa Samherja eftir að hann hætti í bank­anum árið 2013. Hreiðar stofn­aði þá einka­hluta­fé­lag sem hélt utan um rekstur hans sem sjálf­stætt starf­andi lög­manns. 

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið sem Hreiðar er spurður um heitir Juralis-ráð­gjaf­ar­stofa slhf., síðar PPP slhf., og er í eigu afbrota­fræð­ings­ins og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins, Jóns Óttars Ólafs­sonar, sem hefur unnið fyrir Samherja síð­ast­liðin ár, meðal ann­ars í Seðla­banka­mál­inu en einnig í Namibíu.

Heim­ildir Stund­ar­innar herma að Hreiðar hafi unnið fyrir umrætt ráð­gjafa­fyr­ir­tæki. 

Fyrr­ver­andi starfs­menn opin­berra eft­ir­lits­stofn­ana geta búið yfir upp­lýs­ingum úr störfum sínum sem geta gagn­ast fyr­ir­tækjum eða ein­stak­lingum sem telja að þessar stofn­anir hafi brotið á sér, líkt og gildir um Samherja í þessu til­viki. Hreiðar Eiríks­son var til …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu