Ferðaðist um Ameríku á húsbíl í áratug

Eggert Ólafsson keypti sér stóran húsbíl úti í Ameríku og tók uppsafnaða yfirvinnu út í fríum til að ferðast á honum. Það gerði hann í og með til að halda sem mestu sambandi við börn og barnabörn sem þar bjuggu.

Ameríka er ansi stór
Ameríka er ansi stór Eggert ferð­að­ist mjög víða um Norður-Ameríku á hús­bílnum, með fjöl­skyldu sinni. Hann seg­ist þó ekki hafa komið alls staðar enda sé álfan víð­áttu­mikil. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég átti stóran húsbíl um margra ára skeið úti í Ameríku. Ég bjó sjálfur úti í Banda­ríkjunum en það var eftir að ég flutti heim sem ég keypti mér húsbílinn, ætli það hafi ekki verið tíu ár sem ég átti hann þar úti. Ég gat tekið út yfir­vinnuna mína í fríum, ég vann sem flugvirki og það var ansi drjúg yfirvinna svo ég hafði tök á að ferðast mikið um Banda­ríkin þess vegna.

Þetta var svona húsbíll eins og sést í bíómyndunum, stofa, eldhús, bað og svefn­herbergi. Svo var ég með fólksbíl sem ég gat hengt aftan á húsbílinn, fram­dekkin voru þá bara tekin upp og hann dreginn á eftir. Þannig keyrði maður þar til komið var á stæði fyrir húsbílinn, þá lagði ég honum og svo ferðuðumst við um á minni bílnum út frá því.

Ég á tvö börn úti í Banda­ríkjunum og barnabörn og þau komu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár