Laugar landsins

Margir Íslend­ingar setja sund­bol­inn og sund­skýl­una í ferða­tösk­una eða bak­pok­ann þegar farið er í ferða­lag, enda er að finna fjöld­ann allan af glæsi­legum sund­laugum og heitum laugum víða um land. Stundin tók saman fimm laugar úr hverjum lands­hluta.

Laugar landsins

Krauma

Vesturland

Krauma er stór­glæsi­legur bað­staður sem fellur vel inn í umhverfið við Deild­ar­tungu­hver rétt hjá Reyk­holti.  Deild­ar­tungu­hver er vatns­mesti hver á Íslandi og var nýttur ti þvotta og matsuðu öldum saman. Fyrir þremur árum síðan voru gerðir þar skemmti­legir heitir pottar og einn kaldur pottur með fal­legu útsýni, slök­un­ar­her­bergi, gufu og veit­inga­stað þar sem meðal ann­ars er hægt að panta sér krásir frá nær­liggj­andi geit­fjár­búi. Eins má geta þess að gestir geta keypt sér óafenga eða áfenga drykki til að dreypa á í pott­unum.


Hreppslaug í Skorradal

Vesturland

Sund­laugin í Borg­ar­nes­inu er  frá­bær og býður upp á 25 metra úti­laug og vatns­renni­brautir. En en ef þið viljið ekta litla sveita­laug mælum við með heim­sókn í Hrepps­laug sem er skammt undan.  Laugin var byggð árið 1928 af ung­menna­fé­lag­inu Íslend­ing og hún er frið­lýst sam­kvæmt lögum. Í hana er sírennsli heits vatns úr upp­sprettum í nán­asta umhverfi. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðasumarið 2020

Gleymdi garður töframannsins i Tungudal
NærmyndFerðasumarið 2020

Gleymdi garður töfra­manns­ins i Tungudal

Á Ísafirði er að finna fal­inn högg­mynda­garð ljós­mynd­ar­ans, lista­manns­ins og töfra­manns­ins Martinus Simson sem var danskur og sett­ist að á Íslandi árið 1916. Simsons-garður er stað­settur í Tungudal þar sem Simson fékk úthlut­aða lóð á þriðja ára­tugnum en í dag liggur garð­ur­inn í órækt, fal­inn minn­is­varði um merki­legan og list­rænan ein­stak­ling með ástríðu fyrir skóg­rækt á Íslandi.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár