Umdeildur ferill Ólafs Helga lögreglustjóra litaður af hneykslismálum

Dóms­mála­ráð­herra hefur beðið Ólaf Helga Kjart­ans­son að láta af störfum í kjöl­far deilu­mála um fram­ferði á vinnu­stað en hann hefur ekki orðið við því. Ferill hans hefur ein­kennst af umdeildum ákvörð­unum og hefur hann ítrekað sætt gagn­rýni.

Umdeildur ferill Ólafs Helga lögreglustjóra litaður af hneykslismálum
Ólafur Helgi Kjart­ans­son Lög­reglu­stjóri Suð­ur­nesja, Ólafur Helgi Kjart­ans­son, hefur end­ur­tekið verið við­rið­inn deilu­mál og hefur fram­ferði hans ítrekað verið gagn­rýnt sem harka­legt og ófag­legt.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur beðið Ólaf Helga Kjart­ans­son um að láta af störfum, en hann hefur ekki orðið við því. Klúr texti sem hann prent­aði úr sam­eig­in­legum prent­ara skrif­stof­unnar sem hann fer með yfir­stjórn­un­ar­stöðu við sem lög­reglu­stjóri Suð­ur­nesja hleypti mál­inu af stað í maí. Tvær kvart­anir liggja nú á borði trún­að­ar­manns sem settar voru fram af hálfu sam­starfs­fólks hans við skrif­stofu emb­ætt­is­ins. 

Ólafur Helgi á langa og umdeilda sögu að baki sér, en hann hefur verið við­rið­inn fjölda hneyksl­is­mála í gegnum árin. Í sam­an­tekt DV frá árinu 2014 er saga hans rakin vegna óánægju með skipun hans í emb­ætti lög­reglu­stjóra af hálfu Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi ráð­herra. Frá árinu 2002 hafði Ólafur starfað sem sýslu­maður og lög­reglu­stjóri á Selfossi, en fyrir það gegndi hann stöðu sýslu­manns og bæj­ar­fó­geta á Ísafirði.

Ill­deilur hafi ríkt meðal æðstu emb­ætt­is­manna lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum sam­kvæmt frétt Vísis, þar sem fylk­ingar hafi mynd­ast með og á móti Ólafi Helga. Fjórir af sjö yfir­mönnum eru þá sagðir vinna gegn honum með beinum hætti. Ólafur Helgi hefur lengi verið umdeildur, en ítrek­aðar athuga­semdir hafa verið lagðar fram um fram­ferði hans í hinum ýmsu málum í gegnum árin. 

Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis, segir það aug­ljóst að dóms­mála­ráð­herra eigi að hafa umboð til þess að leysa frá störfum óhæfa emb­ætt­is­menn sem starfa innan lög­regl­unnar. Hann segir stöðu lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum vera með öllu óboð­lega.

Fréttir RÚV herma að deilur innan skrif­stof­unnar hafi verið und­ir­liggj­andi. Upp úr sauð þegar lög­reglu­stjóri prent­aði út klúran texta úr sam­eig­in­legum prent­ara lög­reglu­stöðvar. Ekki er vitað nákvæm­lega hvers eðlis hann var. Í frétt RÚV kemur fram að prent­ar­inn hafi orðið uppi­skroppa með pappír og því hafi aðeins hluti skjals­ins prent­ast út í fyrri atrennu, en restin skilað sér þegar annar starfs­maður fyllti á prent­ar­ann.

Taldi rétt staðið að verki í þvagleggsmálinu

Árið 2007 varði Ólafur aðgerðir lög­reglu­manna í hinu alræmda þvag­leggs­máli á Selfossi. Kona hafði verið stöðvuð við akstur og neit­aði að veita sýni, en lög­reglu­menn­irnir girtu niður um hana með valdi og héldu henni nauð­ugri á meðan þeir þving­uðu þvag­legg í hana. Taktlaus ummæli Ólafs til varnar lög­regl­unni vöktu athygli í kjöl­farið. 

„Ég kann­ast ekki við að það að nokkur karl­mann­anna hafi talið að um kyn­ferð­is­lega áreitni hafi verið að ræða“

Konan kærði lög­regl­una til rík­is­sak­sókn­ara í kjöl­farið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og voru henni dæmdar bætur. „Það hefur margoft gerst hjá okkur að settur hafi verið upp þvag­leggur hjá karl­mönnum. Ég minn­ist þess hins vegar ekki að áður hafi þurft að setja upp þvag­legg hjá kven­manni. Ég kann­ast ekki við að það að nokkur karl­mann­anna hafi talið að um kyn­ferð­is­lega áreitni hafi verið að ræða,“ sagði Ólafur um málið.

Taldi barnaníðing ekki ógna almannahagsmunum

Barn­a­níð­ingur gekk laus í Vest­manna­eyjum eftir að lög­reglu barst mynd­bands­upp­taka af nauðgun hans á stjúp­dóttur sinni, en þar að auki fannst mikið magn af barnaklámi í hans fórum. Maðurinn var einnig grun­aður um brot gegn þremur öðrum stúlkum. Ólafur taldi almanna­hags­munum ekki stafa hætta af mann­inum og krafð­ist því ekki gæslu­varð­halds yfir honum, en sagði að hver maður væri sak­laus uns sekt hans væri sönnuð. Maðurinn gekk laus í um það bil ár, en málið kom að lokum inn á borð sak­sókn­ara sem krafð­ist þess fyrir Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands að hann sætti gæslu­varð­haldi. Í kröfu­gerð sak­sókn­ara var verk­ferli Ólafs sem lög­reglu­stjóra gagn­rýnt, þar sem skýrt þótti að mað­ur­inn væri ógn við sam­fé­lagið.

Þá var Ólafur Helgi sak­aður um að hafa valdið fjöl­skyldu van­líðan eftir slys. Í opnu bréfi Helgu Jóns­dóttur, lög­fræð­ings, sem birt var í Frétta­blað­inu árið 2008 lýsir hún furðu sinni á því að maður hennar hefði í óþökk hennar verið ákærður fyrir bílslys sem olli aðeins þeim tveimur skaða. Hún seg­ist hafa gert allt sem í hennar valdi stóð til þess að fá sýslu­mann, Ólaf Helga, til þess að verða af kærunni en hafi það fallið í grýttan jarð­veg. Álagið sem mála­ferlin ollu fjöl­skyld­unni og henni sjálfri var að mati læknis til þess fallið að aftra bata hennar. Maðurinn var lát­inn greiða sekt og dæmdur í tveggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.

Harkaleg framganga í garð skuldara

Árið 2009 í emb­ætti sýslu­manns á Selfossi boð­aði Ólafur Helgi hand­töku 370 ein­stak­linga í Árnes­sýslu þar sem þeir höfðu ekki skilað sér til fjár­náms í kjöl­far efna­hags­hruns­ins. Vöktu harka­legar aðgerðir hans athygli, en þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, Björn Bjarna­son, tók fyrir hend­urnar á honum og sagði þær ekki vera í sam­ræmi við ákvarð­anir rík­is­stjórnar. 

Stefna Ólafs Helga í garð skuld­ara hélt áfram, en árið 2011 lét hann fram­kvæma nauð­ung­ar­sölu án laga­heim­ildar. Tveir aðilar sem áttu hús til helm­ings í Þor­láks­höfn áttu í hlut, en hafði annar þeirra leitað til umboðs­manns skuld­ara. Íbúða­lána­sjóður og Byko höfðu sóst eftir nauð­ung­ar­sölu en dregið hana til baka eftir sam­skipti við umboðs­mann skuld­ara. Ólafur Helgi fór engu að síður fram á nauðg­un­ar­sölu, en hún var dæmd ólög­leg og í kjöl­farið var sýslu­manni gert að greiða eig­endum húss­ins 200.000 krónur í máls­kostnað. 

„Hélt sýslu­maður áfram lög­lausum gern­ingi og þótt­ist fram­kvæma upp­boð án þess að nokkuð heyrð­ist til þeirra verka“

Árið 2013 var hann gagn­rýndur á ný fyrir nauð­ung­ar­upp­boð á Selfossi. Ólafur varð upp­vís af því að lofa gerð­ar­þola frest á upp­boði til níu um kvöldið og voru fyr­ir­heit hans fest á mynd­bönd sem birt voru á net­inu. Hann skipti síðan um skoðun og þvertók fyrir að hafa nokkurn tíma sagt að upp­boði yrði frestað. Bjarni Harð­ar­son, fyrr­ver­andi þing­maður og bók­sali, var við­staddur en hann lýsti aðstæðum: „Hélt sýslu­maður áfram lög­lausum gern­ingi og þótt­ist fram­kvæma upp­boð án þess að nokkuð heyrð­ist til þeirra verka og fékk svo við­stadda lög­menn og full­trúa banka til að und­ir­rita hina ímynd­uðu upp­boðs­gerð sína sem svo sann­ar­lega fór ekki fram í heyranda hljóði.“ Fram­ferði Ólafs í máli Sverris Sverri­sonar vakti jafn­framt athygli um svipað leyti, en hann sagði sýslu­mann hafa neitað að bóka athuga­semdir sínar við nauð­ung­ar­sölu og meinað vitnum að vera við­stödd. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár