Sólveig Anna: „Mér sárnar að vera kölluð strengjabrúða“

Formaður Eflingar seg­ist hætt því að fyr­ir­líta sjálfa sig fyrir að vera „of við­kvæm“. Hún segir Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, beita and­legu ofbeldi og vill berj­ast fyrir því að kven­hatandi karl­menn missi völd sín.

Sólveig Anna: „Mér sárnar að vera kölluð strengjabrúða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Björn Bjarna­son Dóms­mála­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi sagði for­mann Eflingar vera strengja­brúðu tveggja karl­manna.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir það vera kven­rétt­indi að verða leið þegar karl­menn gera lítið úr verkum kvenna. Hún sakar Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, um and­legt ofbeldi fyrir skrif sín.

Björn skrif­aði um for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar á vef­síðu sinni á föstu­dag: „Það sann­ast enn í við­tali sem sagt er frá á dv.is í dag (24. júlí) að Drífa Snædal, for­seti ASÍ, stendur á vinstri jaðr­inum og hrópar þaðan. Hún vill knýja fram öfga­full mark­mið í anda Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, sós­í­alist­ans í for­mennsku Eflingar-stétt­ar­fé­lags, strengja­brúðu Viðars Þor­steins­sonar og Gunnars Smára Egils­sonar, höf­uðsmiða Sós­í­alista­flokks Íslands. Þar er skugga­stjórn ASÍ.“

Sólveig Anna svarar skrifum Björns í pistli á Facebook í dag. „Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, kallar mig á vef­síðu sinni enn á ný „strengja­brúðu“ tveggja karl­manna. Áður hefur hann að ég sé „gerð út“ af þessum sömu mönnum.“

Hún seg­ist hafa hugsað um orð hans áður en hún hafi farið að sofa í gær­kvöldi. Útlistar hún öll þau störf sem hún hefur unnið um ævina og verk­efni sín í gegnum tíð­ina. „Ég hugs­aði um lif­aða ævi konu,“ skrifar hún. „Um það sem ég hef reynt og gert, sagt og hugsað. Um að ég hef ávallt, frá því að ég var lítil stelpa, verið eins ein­beitt og ég get í því að hugsa um skoð­anir mínar, af hverju ég hef þær, hvers vegna ég geri það sem ég geri. Að ég er vissu­lega óskóla­gengin, „bara“ með grunn­skóla­próf, en hef samt alltaf verið mjög ströng við sjálfa mig um að lesa og fræð­ast um það sem ger­ist í ver­öld­inni og það sem hefur gerst. Vegna þess að það hefur skipt mig mjög miklu máli að vita með sjálfri mér að skoð­anir mínar séu mínar eigin, byggðar á upp­lýstri afstöðu og lif­aðri reynslu.“

Ætlar ekki að verða köld og hörð

Hún segir það gera hana dapra að verða aldrei meira en „strengja­brúða“ í hugum valda­mik­illa manna. „Þessi konu-partur veit og við­ur­kennir að svona orð­færi er and­legt ofbeldi. Notað til að kúga og þagga. Notað til að særa og lít­il­lækka. Mér sárnar að vera kölluð strengja­brúða. Ég upp­lifi van­mátt þegar það ger­ist. Mér finnst leið­in­legt að mamma mín sjái og heyri svona tal. Mér finnst leið­in­legt að dóttir mín sjái það og heyri. Og mér finnst það leið­in­legt mín sjálfrar vegna; leið­in­legt vegna þeirrar stelpu sem ég var, ungu konu og nú full­orðnu konu.“

Sólveig Anna segir til­finn­ingar kvenna vera not­aðar gegn þeim.  „Ég veit að ég er ekki strengja­brúða eins né neins og ég veit að það er frá­leitt að halda því fram. Ég veit líka að því verður aldrei hætt. En ég ákvað í gær­kvöldi að verða samt alltaf leið þegar það ger­ist. Ég ætla ekki að pína konu-part­inn til að verða kaldan og harðan gagn­vart ógeð­inu, heldur halda í til­finn­ing­una og leyfa henni að lifa.“

„Það eru kven­rétt­indi mín að verða leið“

Segist hún því vilja við­ur­kenna til­finn­ingar sínar fyrir sér sjálfri. „Kven-fjand­semin er víða og bar­áttan gegn henni þess­vegna háð útum allt, líka inn í okkar eigin heilum og hjörtum. Ég hef oft fyr­ir­litið sjálfa mig fyrir að vera „of við­væm“. En ég er hætt því. Það eru kven­rétt­indi mín að verða leið. Ég ætla ekki að breyt­ast. Það sem ég ætla að gera er að berj­ast fyrir því að kven-hatandi menn­irnir með ljótu orðin og hugs­an­irnar missi völdin sín. Það er bar­átta sem er þess virði að taka þátt í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár