Héraðssaksóknari hefur ákært Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á árunum 2009 til 2015. Jóhannes, sem starfaði við að meðhöndla fólk vegna stoðkerfisvanda þess, er ákærður fyrir brot gegn konunum á meðferðarstofu fyrirtækis síns, Postura, með því að hafa farið með fingur inn í leggöng þeirra og endaþarm, án þeirra samþykkis og þeim að óvörum. Gögn Stundarinnar og samtöl við fjölda kvenna benda til að ákærurnar fjórar séu aðeins toppurinn á ísjakanum hvað varðar meint kynferðisbrot Jóhannesar.
Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Sveinbjörnsson meðhöndlara fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn þeim, í flestum tilfellum þegar hann var að meðhöndla stoðkerfisvanda þeirra. Samkvæmt kærunum áttu brotin sér stað um langt árabil, í yfir áratug. Þegar árið 2005 var Jóhannes kærður fyrir að nauðga stúlku sem þá var aðeins 14 ára gömul en það mál var látið niður falla eftir að vinkona stúlkunnar bar við skýrslutöku að …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir