Fjöldi kvenna lýsir ítrekuðum og alvarlegum kynferðisbrotum Jóhannesar

Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir nauðg­anir og önnur kyn­ferð­is­brot sem sam­kvæmt vitn­is­burði áttu sér stað allt frá árinu 2005 og til árs­ins 2017. Yngsta stúlkan var aðeins 14 ára þegar hún kærði Jóhannes. Hann hefur nú verið ákærður fyrir fjórar nauðg­anir. Þrjár kvenn­anna sem kærðu Jóhannes stíga fram í Stund­inni og segja sögu sína. Sjálfur neitar hann að hafa brotið gegn kon­unum og segir þær ljúga.

Fjöldi kvenna lýsir ítrekuðum og alvarlegum kynferðisbrotum Jóhannesar
Ákærður fyrir fjórar nauðg­anir Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært Jóhannes fyrir fjórar nauðg­anir, með því að hafa sett fingur inn í leggöng og enda­þarm kvenna. Fjöldi ann­arra kvenna lýsir sams konar brotum.

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á árunum 2009 til 2015. Jóhannes, sem starf­aði við að með­höndla fólk vegna stoð­kerf­is­vanda þess, er ákærður fyrir brot gegn kon­unum á með­ferð­ar­stofu fyr­ir­tækis síns, Postura, með því að hafa farið með fingur inn í leggöng þeirra og enda­þarm, án þeirra sam­þykkis og þeim að óvörum. Gögn Stund­ar­innar og sam­töl við fjölda kvenna benda til að ákær­urnar fjórar séu aðeins topp­ur­inn á ísjak­anum hvað varðar meint kyn­ferð­is­brot Jóhann­esar.

Fimmtán konur kærðu Jóhannes Tryggva Svein­björns­son með­höndl­ara fyrir að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn þeim, í flestum til­fellum þegar hann var að með­höndla stoð­kerf­is­vanda þeirra. Samkvæmt kær­unum áttu brotin sér stað um langt ára­bil, í yfir ára­tug. Þegar árið 2005 var Jóhannes kærður fyrir að nauðga stúlku sem þá var aðeins 14 ára gömul en það mál var látið niður falla eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Meðhöndlari kærður

„Hann heilaþvoði mig algjörlega“
FréttirMeðhöndlari kærður

„Hann heila­þvoði mig algjör­lega“

Frænka Jóhann­esar Tryggva Svein­björns­sonar kærði hann árið 2018 fyrir ítrekuð kyn­ferðs­brot gegn sér, frá 15 ára aldri og þar til hún var orðin 19 ára. Í skýrslu­tökum lýsir hún því hvernig Jóhannes hafi brotið margoft á henni í félagi við fjölda ann­arra karl­manna og hvernig hann hafi átt frum­kvæði að þeim brotum. Þá ber hún að Jóhannes hafi einnig brotið á henni þegar hann veitti henni hnykk­með­ferð líkt og á annan tug kvenna kærði hann fyrir.
Fann fyrir mikilli sektarkennd vegna hinna kvennanna
FréttirMeðhöndlari kærður

Fann fyrir mik­illi sekt­ar­kennd vegna hinna kvenn­anna

Ragn­hildur Eik Árna­dóttir kærði Jóhannes Tryggva Svein­björns­son fyrir að hafa brotið gegn sér kyn­ferð­is­lega í tvígang. Hún er óánægð með vinnu­brögð lög­reglu við rann­sókn máls­ins og óar við því að Jóhannes sé enn að með­höndla ungar konur. Það að fjöldi kvenna lýsi sams konar brotum af hálfu Jóhann­esar hljóti að eiga að hafa eitt­hvað að segja við máls­með­ferð­ina.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár