Fyrir réttri öld fór fram hátíðleg athöfn í borginni Nairobi sem liggur nánast á miðbaug í Austur-Afríku. Kakíklæddur breskur dáti gekk hermannlega að flaggstöng og hóf að draga niður fána svonefnds „Austur-afríska verndarsvæðisins“ sem Bretar höfðu haldið úti á svæðinu í aldarfjórðung í krafti hervalds og tæknilegra yfirburða. Þetta var blár fáni, uppi í vinstra horninu var mynd breska fánans Union Jack en hægra megin var rautt ljón í hvítri sporöskju.
Viðstaddir – aðallega breskir embættismenn og silkihúfur en einnig slæðingur innfæddra samstarfsmanna þeirra – biðu þegjandi meðan fáninn var dreginn niður.
Dátinn braut fánann snyrtilega saman. Einhverjar ókunnugir sem horfðu á þetta kynnu að hafa talið að þarna væru Bretar að hverfa frá hernámi sínu á landi sem þeir áttu ekkert með. Hverfa frá því að ræna löndum innfæddra.
En það var nú eitthvað annað.
Krúnunýlenda stofnuð
Annar dáti steig nú fram og …






















































Athugasemdir