Covid-19 getur gert lungun nær óþekkjanleg

Vís­inda­menn hafa áhyggjur af nið­ur­stöðum krufn­inga þeirra sem lét­ust eftir langa bar­áttu við Covid-19 á Ítalíu. „Arki­tektúr lungn­anna brotnar algjör­lega niður,“ segir pró­fessor.

Covid-19 getur gert lungun nær óþekkjanleg
Covid-19 Vís­inda­menn eru sífellt að auka við þekk­ing­una á því hvernig sjúk­dóm­ur­inn virkar. Mynd: AFP

Covid-19 getur gert lungu þeirra sjúk­linga sem deyja nær óþekkj­an­leg. Vís­inda­menn í Bret­landi segja óvíst hvort þeir sem hafa smit­ast nú þegar geti smit­ast aftur þegar seinni bylgja veirunnar ríður yfir.

Nær átta milljón manns hafa greinst með veiruna á heims­vísu og yfir 435 þús­und lát­ist. Í The Guardian í gær er fjallað um áhyggjur vís­inda­manna af þeim lang­tíma vanda­málum sem fylgt geta veik­ind­unum. Mauro Giacca, pró­fessor við King's College í London, kynnti rann­sóknir fyrir efri deild breska þings­ins sem sýna þann lungnaskaða sem þeir sjúk­lingar á Ítalíu sem lét­ust eftir 30 til 40 daga á gjör­gæslu þurftu að þola.

„Það sem við sjáum í lungum fólks sem þjáð­ist af sjúk­dómnum í meira en mánuð áður en þau lét­ust er eitt­hvað allt annað en venju­leg lungna­bólga, inflú­ensa eða Sars veiran,“ sagði hann. „Við sjáum meiri­háttar blóð­tappa. Arki­tektúr lungn­anna brotnar algjör­lega niður. Í ákveð­inni birtu getur þú ekki greint að þetta hafi verið lunga.“

Giacca sagði veiruna enn að finna í lungum þeirra sem látnir eru. „Ég er sann­færður um að þetta útskýri óvenju­leg ein­kenni Covid-19,“ sagði hann. „Þetta er ekki sjúk­dómur sem er orsak­aður af veiru sem drepur frumur, sem hefur mikla þýð­ingu varð­andi með­ferð.“

Vís­inda­menn ræddu einnig mögu­leik­ann á ónæmi gegn veirunni, nú þegar nær hálft ár er liðið frá því að hún kom fyrst fram í Evrópu. John Bell, pró­fessor við Oxford háskóla, sagði að slíkt mundi koma í ljós þegar seinni bylgja smita ríður yfir Bretland, sem hann telur mjög lík­legt.

„Þar sem sam­komu­banni hefur að miklu leyti verið aflétt er allt farið á fullt aftur og við sjáum enn tölu­vert af smitum í sam­fé­lag­inu,“ sagði hann. „Ég yrði mjög hissa ef við sleppum við aðra bylgju. Ég held að stóra spurn­ingin sé hvort við munum hafa sjá reglu­lega toppa og síðan seinni bylgju eða bara seinni bylgju.“

Slík bylgja mundi gefa heil­brigð­is­yf­ir­völdum í Bret­landi tæki­færi til að gera próf á þeim 100 þús­und starfs­mönnum í heil­brigð­is­geir­anum sem smit­ast hafa af veirunni og gætu því haft mótefni. Það mun auka skiln­ing­inn á ónæmi þegar í ljós kemur hvort þeir smit­ast aftur, en það verður erfitt að kom­ast að því án seinni bylgju, að sögn Bell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár