Svartar bókmenntir

Bækur svartra höf­unda geyma mik­il­vægan lykil að skiln­ingi okkar á sögu, félags­stöðu og upp­lifun þeirra. Það er því til­valið að leggja hug sinn að mál­staðnum í sumar með góða bók í hönd, en hér fyrir neðan eru fimm svartir höf­undar frá Banda­ríkj­unum sem eng­inn ætti að láta fram­hjá sér fara.

Svartar bókmenntir

Óeirð­irnar vest­an­hafs tákna upp­reisn fólks gegn form­gerðum sem kúga, jað­ar­setja og drepa svart fólk. Mótmælin hafa nú dreifst víða um heim­inn, þar sem önnur lönd stíga fram til stuðn­ings við mál­stað­inn, en neyð­ast í senn til þess að líta í eigin barm. Það hefur oft verið sagt að penn­inn sé mátt­ug­ari en sverðið, en þó svo að deila megi um praktískt gildi þeirra í beinum handa­lög­málum er ljóst að ritað orð hefur meiri mátt en nokkuð annað í mótun orð­ræðu og hug­lægni manna. Með því að festa orð í rit getum við fangað og miðlað veru­leik­anum á hátt sem end­ur­ómar kyn­slóða á milli. Baráttan fyrir jafn­rétti kyn­þátta hefur verið löng og hæg­vinn, en hún hefur alltaf verið í gangi – ekki síst í gegnum bók­menntir. 

Samtalið sem við þurfum að eiga til þess að takast á við vanda­málin verður engum auð­velt, en það er nauð­syn­leg for­senda breyt­inga. Skila­boðin eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár