Sorpa valdi ekki bestu tæknilausnina sem fyrirtækinu bauðst

Í úrskurði kæru­nefndar útboðs­mála kemur fram að bestu tækni­lausnir voru ekki valdar fyrir gas- og jarð­gerð­ar­stöð Sorpu, líkt og fram­kvæmda­stjóri Sorpu heldur fram. Almanna­tenglar hafa verið fengnir til ráð­gjafar til að svara.

Sorpa valdi ekki bestu tæknilausnina sem fyrirtækinu bauðst

Stundin fjall­aði ítar­lega um mál­efni gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar Sorpu í síð­asta tölu­blaði, en verið er að leggja loka­hönd á fram­kvæmd­irnar og er áætlað að form­leg gang­setn­ing stöðv­ar­innar verði þann 16. júní næst­kom­andi. Málefni Sorpu og fram­kvæmdir á gas- og jarð­gerð­ar­stöð­inni voru rædd á borg­ar­stjórn­ar­fundi Reykja­vík­ur­borgar þann 2. júní síð­ast­lið­inn. Í umræð­unum spurðu borg­ar­full­trúar minni­hlut­ans í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur­borgar Líf Magneu­dóttur, borg­ar­full­trúa Vinstri grænna og vara­for­mann stjórnar Sorpu, spurn­inga varð­andi rekstur gas- og jarð­gerð­ar­stöðv­ar­innar. Meðal þeirra spurn­inga sem voru spurðar var hvort ein­hver rekstr­ar­á­ætlun liggi fyrir vegna rekst­urs stöðv­ar­innar og hvað ætti að gera við þau áætl­uðu 15.000 tonn af moltu sem stöðin muni fram­leiða árlega. Eyþór Arnalds Laxdal, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna, spurði Líf nokkrum sinnum að því á fund­inum. Líf svar­aði ekki spurn­ingu Eyþórs á fund­inum.

Segja mörgum spurningum enn ósvarað 

Þann 27. maí síð­ast­lið­inn var hald­inn fundur í umhverfis- og heil­brigð­is­ráði Reykja­vík­ur­borgar. Bókuðu þar full­trúar minni­hlut­ans að mörgum spurn­ingum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár