Rannsakar feður sem hafa beitt ofbeldi

Rannveig Ágústa Guð­jóns­dóttir, dokt­or­snemi við deild mennt­unar og marg­breyti­leika við Háskóla Íslands, rann­sakar feður sem beitt hafa ofbeldi í nánum sam­böndum.

Rannsakar feður sem hafa beitt ofbeldi

Sér­fræð­ingar sem koma að ofbeld­is­málum og rann­sak­endur sama mála­flokks telja mik­il­vægt að rýna í upp­lifun og reynslu þeirra sem beitt hafa ofbeldi til að öðl­ast dýpri heild­ar­mynd á þeim sam­fé­lags­vanda sem ofbeldi er. Aukin þekk­ing á reynslu og við­horfum þeirra sem beitt hafa ofbeldi geti leitt til áhrifa­ríkra til­lagna að úrbótum og for­vörnum gegn ofbeldi. Gerendur ofbeldis eru enda þeir einu sem geta komið í veg fyrir ofbeldi og því gott ef sam­fé­lagið vissi meira um hugs­anir þeirra og við­horf, eins og Steinunn Gyðu- og Guð­jóns­dóttir, verk­efna­stýra Stíga­móta, sagði í við­tali við Stundina fyrr á árinu.

Rannsókn Rann­veigar Ágústu Guð­jóns­dóttur, dokt­or­snema við deild mennt­unar og marg­breyti­leika við Háskóla Íslands, gengur út á að varpa ljósi á sýn karla sem beitt hafa ofbeldi í nánum sam­böndum á reynslu sína og þá sér­stak­lega föð­ur­hlut­verkið, karl­mennsku og for­varnir. „Talsvert er búið að kort­leggja reynslu kvenna og mik­il­væg inn­sýn um mála­flokk­inn hefur feng­ist …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár