Spurningaþraut 31: Lúxusbílarnir Zil, hvaðan komu þeir?

Þá eru hér spurningarnar tíu, og auka­spurningarnar:

Frá hvaða stað á Íslandi er myndin hér að ofan?

Og hver er karlinn á myndinni að neðan?

1.   Hér er spurt um bandaríska tónlistar­konu, sem hét við fæðingu Angela Trimble en var ættleidd aðeins þriggja mánaða og fékk þá nýtt nafn. Hún er nú að verða hálf­áttræð, en slakar hvergi á í töffara­skapnum. Meðal náinna samverka­manna hennar gegnum tíðina eru Jimmy Destri og Clem Burke og þó allra lengst Chris Stein. Hvað var hið nýja nafn Angelu Trimble?

2.   Hvað heitir hafsvæðið milli Norður- og Suður-Ameríku?

3.   Zil hétu lúxus­bílar sem til skamms tíma voru fram­leiddir í Evrópu­ríki einu. Hvaða ríki var það?

4.   Lili'uokalani hét drottning ein sem steypt var af stóli í heima­landi sínu árið 1893. Sett var á stofn lýðveldi en það fór allt í vaskinn og sex árum seinna innlimuðu Banda­ríkin ríki drottningar. Hvar var það ríki?

5.   Hvað kallaðist sá sænski kóngur sem gerði innrás í Rússland í upphafi 18. aldar en beið lægri hlut og dó loks við umsátur við virki í Noregi?

6.   Hvað hét sú íslenska hljómsveit sem gaf út plötuna Emotional árið 2005, þar sem meðal annars er að finna lögin Nasty Boy og The One.

7.   Þjóð­hátíðar­dagur Íslands er 17. júní. Til minningar um hvað varð hann fyrir valinu?

8.   Hver skrifaði bókina Undan­tekningin, sem út kom 2012?

9.   Frá hvaða landi er fótbolta­maðurinn Robert Lewandowski?

10.   Egg eru afar vítamínrík, eins og allir vita. En hvað af hinum helstu vítamínum er EKKI að finna í eggjum?

Svörin:

1.   Debbie Harry, söngkona Blondie.

2.   Karíbahaf.

3.   Sovét­ríkjunum, síðan Rússlandi, svo hvorttveggja er rétt.

4.   Á Hawaii-eyjum.

5.   Karl 12.

6.   Trabant.

7.   Fæðingu Jóns Sigurðs­sonar árið 1811.

8.   Auður Ava Ólafs­dóttir.

9.   Póllandi.

10.   C.

Og svörin við auka­spurningum:

Myndin að ofan er frá Öskju­vatni.

Karlinn er Hilmir Snær Guðnason í hlutverki sínu í leik­ritinu Fást.

Hér er svo þrautin frá í gær.

        

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár