Katrín segir þá ríku verða ríkari: „Þeir sóa ekki góðri kreppu“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ávarp­aði stofn­við­burð Progressive International, alþjóða­sam­taka vinstri­s­inn­aðra stjórn­mála­manna og aðgerða­sinna.

Katrín segir þá ríku verða ríkari: „Þeir sóa ekki góðri kreppu“
Yanis Varoufakis, Bernie Sanders og Katrín Jak­obs­dóttir Katrín og VG hafa verið hluti af Progressive International frá stofnun.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, varar við upp­gangi þjóð­ern­is­sinna og hægri öfga­manna á tímum Covid-19 far­ald­urs­ins. Segir hún þá ríku munu nýta sér aðstæð­urnar til að efn­ast frekar.

Þetta kom fram í máli hennar á stofn­við­burði Progressive International, alþjóða­sam­taka vinstri­s­inn­aðra stjórn­mála­manna og aðgerða­sinna, á föstu­dag sem fram fór á net­inu. Helstu hvata­menn að stofnun sam­tak­anna eru Bernie Sanders, þing­maður og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi í Banda­ríkj­unum og Yanis Varoufakis, þing­maður og fyrrum fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands.

Katrín sagð­ist á fund­inum hafa tekið þátt í mótun sam­tak­anna frá upp­hafi og að mikil þörf væri á alþjóða­sam­starfi vinstri­s­inn­aðra afla. „Ekki síst vegna auk­inna áhrifa hægriöfga­stefnu í heim­inum sem ógnar mann­rétt­indum og lýð­ræð­is­legri fram­kvæmd, en einnig fjöl­miðla­frelsi og sjálf­stæði dóm­stóla,“ sagði hún á ensku í íslenskri þýð­ingu blaða­manns.

Hún sagði að draga ætti lær­dóm af síð­ustu kreppu þegar ráð­ist var í mik­inn nið­ur­skurð í mörgum löndum. Sagði hún afleið­ingar þess enn vera að koma í ljós í dag. „Við vitum að á tímum sem þessum er alltaf mikið um hags­muni sem eru í húfi. Þeir ríku munu finna leið til að verða rík­ari. Þeir sóa ekki góðri kreppu. Við ættum ekki heldur að sóa góðri kreppu,“ sagði hún og hvatti þar sam­tökin til dáða.

„[...] lík­lega munu sum stjórn­mála­öfl reyna að nýta sér áhyggjur fólks“

Katrín sagði að auk­inn þrýst­ingur muni verða á einka­væð­ingu á þessum tímum. „Ef for­tíðin er vís­bend­ing þá þurfum við líka að búa okkur undir við­brögð þjóð­ern­is­sinna, því lík­lega munu sum stjórn­mála­öfl reyna að nýta sér áhyggjur fólks sem spretta upp í nið­ur­sveiflu.“

Katrín á fund­inumFor­sæt­is­ráð­herra var fyrst til við­tals á stofn­við­burði sam­tak­anna sem fór fram á net­inu vegna far­ald­urs­ins.

Varoufakis tók til máls í fram­hald­inu og sagð­ist hlakka til að starfa með Katrínu, hennar fólki og rík­is­stjórn hennar.

Bætti Katrín því við að lokum að far­ald­ur­inn hefði víða um heim verst áhrif á lægri stétt­irnar og sýndi fram á mik­il­vægi sterkra vel­ferð­ar­kerfa. „Þegar þú talar um krepp­una 2008, Yanis, og allt sem Ísland og Grikk­land gengu í gegnum, þá var mikil blessun að við gátum valið okkur leið út úr henni og farið bland­aða leið,“ sagði hún. „Auðvitað var nið­ur­skurður á Íslandi en við gátum líka hækkað skatta og gert aðra mik­il­væga hluti til að end­ur­byggja sam­fé­lagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár