Engin töf á nauðungarsölum þó fallið hafi verið frá lagaákvæði

Stjórn­ar­meiri­hlut­inn dró í land með að heim­ila nauð­ung­ar­sölur í gegnum síma eða fjar­funda­búnað. Heim­ildin var talin óþörf og ekki hafa áhrif á fram­gang mála þar sem sýslu­menn hafi gripið til ráð­staf­ana til að bregð­ast við Covid-far­aldr­inum.

Engin töf á nauðungarsölum þó fallið hafi verið frá lagaákvæði
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Frumvarp dóms­mála­ráð­herra tók breyt­ingum í með­ferð þings­ins. Mynd: xd.is

Meiri­hlut­inn á Alþingi taldi ekki lengur þörf á laga­breyt­ingum til að heim­ila fyr­ir­töku nauð­ung­ar­sölu í gegnum síma eða fjar­funda­búnað vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Frum­varpið varð að lögum þriðju­dag­inn 28. apríl án ákvæð­is­ins, en meiri­hlut­inn telur að „óbreyttur fram­gangur“ verði í nauð­ung­ar­sölum þar sem sýslu­menn hafa gripið til ann­arra ráð­staf­ana til að virða fjar­lægð­ar­tak­mark­anir.

Meiri­hlut­inn segir hins vegar til­efni til að ræða frestun aðfar­ar­gerða eða nauð­ung­ar­sala, en það heyri ekki undir frum­varpið.

Frumvarp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra varð­aði breyt­ingu á ýmsum lögum vegna heims­far­ald­urs kór­óna­veiru og snýr að með­ferð mála hjá sýslu­mönnum og dóm­stólum meðal ann­ars. Flest ákvæði frum­varps­ins vörð­uðu raf­ræna með­ferð mála hjá þessum aðilum og eru þau flest til bráða­birgða.

Áslaug Arna sagði að líta mætti á frum­varpið sem jákvæð áhrif af Covid-19, þar sem stjórn­sýslan færð­ist hraðar á raf­rænt form. Á meðal breyt­ing­anna var bráða­birgð­ar­á­kvæði um að heim­ila fram til 1. októ­ber að taka nauð­ung­ar­sölu fyrir með gerð­ar­beið­anda í gegnum síma eða fjar­funda­búnað, „enda verði fyr­ir­töku máls­ins háttað þannig að allir heyri þau orða­skipti sem fram fara“. Gerð­ar­beið­andi er sá sem krefst nauð­ung­ar­söl­unnar, oft fjár­mála­fyr­ir­tæki, hið opin­bera eða fyr­ir­tæki sem á kröfu á eig­anda eign­ar­innar.

Meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar fjar­lægði ákvæðið fyrir 2. umræðu um málið á Alþingi. „Ákvæðin sættu nokkuð mik­illi gagn­rýni og komu fram ýmis sjón­ar­mið þeirri gagn­rýni til stuðn­ings, m.a. varð­andi stöðu gerð­ar­þola,“ sagði Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og for­maður nefnd­ar­innar, þegar hann gerði grein fyrir áliti meiri­hluta nefnd­ar­innar í umræðum á Alþingi.

„Það er því mat meiri hlut­ans að ekki sé lengur þörf á fram­an­greindri heim­ild í ljósi þess að aðstæður hafa ekki áhrif á með­ferð þess­ara mála“

„Ákvæð­unum er ætlað að tryggja að bæði sýslu­menn og dóm­stólar geti sinnt lög­bundnum verk­efnum sínum,“ sagði Páll. „Hins vegar bár­ust nefnd­inni þær upp­lýs­ingar að frá því að frum­varpið var samið hafi aðstæður sýslu­manns­emb­ætt­anna breyst. Þannig hafi emb­ættin brugð­ist við aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mark­anir á sam­komum og gerðar hafi verið ráð­staf­anir til að virða fjar­lægð­ar­tak­mark­anir til að kleift sé að halda óbreyttum fram­gangi í mála­flokknum. Það er því mat meiri hlut­ans að ekki sé lengur þörf á fram­an­greindri heim­ild í ljósi þess að aðstæður hafa ekki áhrif á með­ferð þess­ara mála.“

Sýslumenn hafi frestað fyrirtökum og byrjun uppboða

Með öðru ákvæði í lög­unum er liðkað fyrir um tíma­fresti svo nauð­ung­ar­sölur falli ekki niður vegna aðstæðna sem Covid-19 far­ald­ur­inn skapar. Varða frest­irnir meðal ann­ars til­felli þar sem upp­boð hefur ekki haf­ist einu ári frá fyr­ir­töku máls­ins eða munir ekki seldir og mundi þá nauð­ung­ar­salan falla niður undir venju­legum kring­um­stæðum. 60 daga frestur er veittur til við­bótar frá þeim tíma­punkti sem hindr­un­inni er rutt úr vegi og er þar átt við far­ald­ur­inn.

„Þannig hefur fyrstu fyr­ir­töku mála verið frestað“

„Við með­ferð máls­ins var gagn­rýnt að þeir frestir væru allir í þágu gerð­ar­beið­enda og að ekki væri gætt að hags­munum gerð­ar­þola í þeim efnum,“ sagði Páll í umræð­unum. „Fram komu sjón­ar­mið um að frekar ætti að stöðva aðfar­ar­gerðir og nauð­ung­ar­sölur um til­tek­inn tíma.“

Vildi meiri­hlut­inn árétta að umræddir frestir vörð­uðu fresti sýslu­manns. „Þó er ljóst að ein­hver sýslu­manns­emb­ætti hafa gripið til ann­arra ráð­staf­ana til að tryggja að ekki verði rétt­ar­spjöll í þeim málum sem nú liggja fyrir hjá þeim. Þannig hefur fyrstu fyr­ir­töku mála verið frestað, byrjun upp­boðs frestað í þeim málum sem eru enn innan frests og fram­halds­sölum frestað á grund­velli óvið­ráð­an­legra atvika. Meiri hlut­inn telur mik­il­vægt að sýslu­manns­emb­ætti geti sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu og telur meiri hlut­inn að umrætt ákvæði tryggi þá fram­kvæmd. Ákvörðun um tíma­bundna stöðvun aðfar­ar­gerða eða nauð­ung­ar­sala varða hins vegar ekki efni þessa frum­varps en meiri hlut­inn tekur undir mik­il­vægi þess að sú umræða eigi sér stað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár