Liðka fyrir nauðungarsölum vegna faraldursins

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hefur lagt fram frum­varp sem heim­ilar fyr­ir­töku nauð­ung­ar­sölu í gegnum síma eða fjar­funda­búnað fram á haust. Þá eru fram­lengdir frestir þar sem nauð­ung­ar­sala hefði ann­ars fallið niður vegna aðstæðna sem Covid-19 far­ald­ur­inn skapar.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir Dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp sem snýr að með­ferð mála hjá sýslu­mönnum og dóm­stólum. Mynd: xd.is

Sýslu­mönnum verður heim­ilt að taka fyrir nauð­ung­ar­sölur í gegnum síma eða fjar­funda­búnað fram á haust, verði stjórn­ar­frum­varp Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra að lögum. Þá er liðkað fyrir um tíma­fresti svo nauð­ung­ar­sölur falli ekki niður vegna aðstæðna sem Covid-19 far­ald­ur­inn skapar.

Frum­varpið hefur verið afgreitt af rík­is­stjórn og var það lagt fram á Alþingi á laug­ar­dag. Frum­varpið varðar breyt­ingu á ýmsum lögum vegna heims­far­ald­urs kór­óna­veiru og snýr að með­ferð mála hjá sýslu­mönnum og dóm­stólum meðal ann­ars. Flest ákvæði frum­varps­ins varða raf­ræna með­ferð mála hjá þessum aðilum og eru þau flest til bráða­birgða.

„Það er hægt að líta til ein­hverra breyt­inga líkt og þess­ara sem jákvæð áhrif af COVID-19, sú reynsla sem kemst á hin ýmsu fjar­fund­ar­form og raf­ræn sam­skipti verður von­andi til þess að stjórn­sýslan fær­ist hraðar á raf­rænt form, sem bætir þjón­ustu fyrir almenn­ing og sparar rík­inu gríð­ar­lega fjár­muni til lengri tíma,“ til­kynnti Áslaug Arna á Facebook-síðu sinni.

„Það er hægt að líta til ein­hverra breyt­inga líkt og þess­ara sem jákvæð áhrif af COVID-19“

Þá segir Áslaug að verið sé að „ryðja úr vegi hindr­unum í lög­unum, meðal ann­ars um dán­ar­vott­orð, ætt­leið­ingar og á barna- og útlend­inga­lögum“.

Breyt­ingar á lögum um nauð­ung­ar­sölu eru meðal þess­ara bráða­birgða­á­kvæða. Samkvæmt þeirri grein frum­varps­ins verður heim­ilt fram til 1. októ­ber að taka nauð­ung­ar­sölu fyrir með gerð­ar­beið­anda í gegnum síma eða fjar­funda­búnað, „enda verði fyr­ir­töku máls­ins háttað þannig að allir heyri þau orða­skipti sem fram fara“. Gerð­ar­beið­andi er sá sem krefst nauð­ung­ar­söl­unnar, oft fjár­mála­fyr­ir­tæki, hið opin­bera eða fyr­ir­tæki sem á kröfu á eig­anda eign­ar­innar. „Við þessar aðstæður telst gerð­ar­beið­andi hafa mætt við fyr­ir­tök­una í skiln­ingi 1. tölul. 2. mgr. 15. gr. lag­anna,“ segir í frum­varp­inu.

„Í þess­ari grein er lagt til að við bæt­ist nýtt ákvæði til bráða­birgða sem heim­ilar fyr­ir­tökur með gerð­ar­beið­endum í gegnum síma eða fjar­funda­búnað til að fækka komum til sýslu­manna og dóm­stóla á meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gengur yfir,“ segir í skýr­ingum með grein­inni. „Af sömu ástæðu er lagt til að heim­ilt verði að bjóða upp á raf­rænar lausnir við með­ferð mála.“

Þá eru fram­lengdir frestir til að ljúka nauð­ung­ar­sölum án þess að þær falli niður, enda sé um að ræða tafir vegna þeirra aðstæðna sem far­ald­ur­inn skapar. Varða frest­irnir meðal ann­ars til­felli þar sem upp­boð hefur ekki haf­ist einu ári frá fyr­ir­töku máls­ins eða munir ekki seldir og mundi þá nauð­ung­ar­salan falla niður undir venju­legum kring­um­stæðum. 60 daga frestur er veittur til við­bótar frá þeim tíma­punkti sem „óyf­ir­stíg­an­legri hindrun“ lýkur og er þar átt við aðstæð­urnar vegna far­ald­urs­ins.

„Til að koma í veg fyrir rétt­ar­spjöll vegna óvæntra og óyf­ir­stíg­an­legra hind­r­ana sem ekki byggj­ast á atvikum er varða máls­að­ila sjálfan, svo sem kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, er lagt til að til­teknum frestum sem lýkur fram til 1. októ­ber 2020 verði fram­lengt þar til hindr­un­inni hefur verið rutt úr vegi,“ segir í skýr­ingum með frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár