Spurningaþraut 5: Hver þetta? og fleiri spurningar

Enn er komin hér spurninga­þraut (sú næsta á undan er hérna), tíu spurningar og svörin eru hér fyrir neðan myndina af apanum.

Auka­spurningar eru svo tvær: Hver er ungi maðurinn hér að ofan og hver er apategundin á neðri myndinni?

1.   „True Detective“ heitir rómuð bandarísk glæpa­sería í sjónvarpi sem hóf göngu sína 2014. Íslenskur leikari lék í einum þætti fyrstu þáttaraðarinnar, en persóna leikarans varð að vísu heldur skammlíf. Hver var leikarinn?

2.   Í hvaða íþrótta­grein keppti Úkraínu­maðurinn Sergei Bubka og átti fjölda heimsmeta á sínum tíma?

3.  Blóð-María nefndist ein illræmd drottning úti í heimi fyrr á tíð. Hvað hét systir hennar?

4.   63 þingmenn sitja á Alþingi Íslendinga. Aðeins einn þeirra ber nafn sem byrjar á bókstafnum I. Hver er sá þingmaður?

5.   Tölvuleikja­fyrirtækið CCP var stofnað og byggt upp af Íslendingum en fyrir tveim árum keypti suður-kóreskt fyrir­tækið það. Hvað heitir lang­vinsælasti tölvu­leikur CCP?

6.   Að fá sér pítu er góð skemmtun. Orðið „píta“ er komið úr grísku. Hvað þýðir það?

7.  Allir vita að Júpíter er stærsta reikistjarnan og að Satúrnus er sú næst­stærsta. En hver er þriðja í röðinni?

8.   Víkingur Heiðar Ólafsson píanó­leikari gaf fyrir skömmu út plötu þar sem hann túlkaði verk eftir tvö frönsk tónskáld. Annað hét Jean-Philippe Rameau, en hvað hét hitt tónskáldið, sem er öllu frægara?

9.   Hvað heitir höfuðborg Finnlands?

10.   „Hungur­leikarnir“ eru vinsældar skáldsögur fyrir unga lesendur sem urðu hráefni í enn vinsælli kvik­myndaflokk. Margar persónur koma við sögu, en ung stúlka er þó fremst í flokki og í bíómyndunum var hún leikin af Jennifer Lawrence. En hvað kallast persónan?

Hér eru svörin, langþráð:

1.    Ólafur Darri Ólafsson

2.   Stangar­stökki

3.   Elísabet og varð einnig drottning á Englandi, líkt og María

4.   Inga Sæland

5.   Eve Online

6.   Brauð

7.   Neptúnus

8.   Claude Debussy

9.   Helsinki

10.   Katniss Everdeen

Þá er og frá því að greina að ungi maðurinn er vitanlega Winston Churchill á sínum yngri árum en aparnir eru af tegundinni organgútan.

Næsta spurninga­þraut er svo hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár