Fjórar af útgerðunum sjö sem vilja milljarða í bætur frá ríkinu hafa ekki nýtt sér hlutabótaleiðina

Að minnsta kosti fjórar af útgerð­unum sjö sem vilja fá 10 millj­arða í skaða­bætur frá íslenska rík­inu hafi ekki nýtt sér rík­is­að­stoð­ina hluta­bóta­leið­ina í rekstri sínum. Skaða­bóta­kröf­urnar hafa vakið mikla athygli og við­brögð og gæti málið tekið mörg ár í dóms­kerf­inu.

Fjórar af útgerðunum sjö sem vilja milljarða í bætur frá ríkinu hafa ekki nýtt sér hlutabótaleiðina
Þrjár úr Eyjum Þrjár af útgerð­unum sjö eru í Vest­manna­eyjum. Engin þeirra hefur nýtt sér hluta­bóta­úr­ræðið vegna COVID-far­ald­urs­ins. Guðbjörg Matth­í­as­dóttir er eig­andi Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum.

Fjórar af útgerð­unum sjö sem krefj­ast sam­tals 10,2 millj­arða króna í skaða­bóta­bætur frá rík­inu hafa ekki nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uðu út af COVID-far­aldr­inum. Þetta segja fram­kvæmda­stjórar þess­ara fjög­urra útgerða: Ísfélags Vest­manna­eyja, Hugins, Vinnslu­stöðv­ar­innar og Loðnu­vinnsl­unnar  Stundin hefur ekki náð í for­svars­menn hinna þriggja útgerð­anna, Gjögurs, Eskju og Skinn­eyjar-Þinga­ness, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. Mögulegt er því að engin af útgerð­unum hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina. 

Samkvæmt hluta­bóta­leið­inni geta fyr­ir­tæki sem verða fyrir tekju­falli og sam­drætti í starf­semi sinni út af COVID-far­aldr­inum lækkað starfs­hlut starfs­fólks síns niður í allt að 25 pró­sent og látið ríkið greiða meiri­hluta launa við­kom­andi tíma­bundið. Komið hefur fram í Kjarn­anum að Samherji hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina fyrir starfs­fólk í fisk­vinnslu sinni.  Mögulegt er að fleiri stór­út­gerðir en Samherji  nýti sér þessa leið en það hefur ekki komið fram ennþá. 

Aft­ur­kalli kröf­urnarKatrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur kallað eftir því að útgerð­irnar aft­ur­kalli skaða­bóta­kröfur sínar.

Gæti tekið mörg ár

Skaða­bóta­kröfur útgerð­anna sjö hafa vakið mikla athygli í vik­unni eftir að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra birti svar um fjár­hæðir stefn­anna nú um helg­ina. 

Á þessu stigi er óljóst hvernig mál­unum lyktar og gæti liðið nokkur ár þar til þetta liggur fyrir þar sem málin munu fara fyrir dóm­stóla ef ekki verður samið um þau áður.  Umrætt mál er í raun­inni margra ára gam­alt þar sem útgerð­irnar hafa reynt að sækja rétt sinn um langt skeið.

Vatna­skil urðu í mál­inu í lok árs 2018 þegar Hæsti­réttur felldi dóma þess efnis að Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum og Hugin ehf. hefðu orðið fyrir fjár­tjóni út af mak­rílút­hlut­unum á árunum 2011 til 2018 sem byggðu á reglu­gerðum sem þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Jón Bjarna­son, setti. Nið­ur­staða hæsta­réttar var að mak­rílnum hafi ekki verið úthlutað að fullu út frá veiði­reynslu útgerð­anna á mak­ríl, líkt og gera hefði átt. 

Málið er því ekki nýtt og hefur margoft verið rætt í fjöl­miðlum en opin­ber­unin á stefnu­fjár­hæðum útgerð­anna sem og COVID-far­ald­ur­inn setja málið í nýtt sam­hengi. 

Ríkið stígur niður fæti

Miðað við orð Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra á Alþingi í gær þá telur ríkið sig hafa góðan mál­stað að verja. Í ræðu á Alþingi í gær sagði hann: „Nú höfum við tekið til varna í þessu svo­kall­aða mak­ríl­máli. Við munum taka til fullra varna og ég hef reyndar góðar vænt­ingar um að við munum hafa sigur í því máli. En ef svo ólík­lega vill til að það mál fari rík­inu í óhag þá er það ein­falt mál í mínum huga að reikn­ing­ur­inn vegna þess verður ekki sendur á skatt­greið­end­ur. Reikn­ing­ur­inn vegna þess verður þá að koma frá grein­inni. Það er bara svo ein­falt.“

„Við munum taka til fullra varna og ég hef reyndar góðar vænt­ingar um að við munum hafa sigur í því máli“

Með síð­ast­nefndu orð­unum virt­ist Bjarni ýja að því að ef ríkið þyrfti að greiða skaða­bætur til útgerð­anna þá myndi slíkt leiða til auk­innar gjald­töku á atvinnu­veg­inn til að fjár­magna þann reikn­ing. 

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kall­aði sömu­leiðis eftir því að útgerð­irnar myndu aft­ur­kalla skaða­bóta­kröf­urnar. „Þó ég telji að ríkið hafi góðan mál­stað í þessu máli þá finnst mér eðli­legt að þessi fyr­ir­tæki íhugi það að draga þessar kröfur á til baka. Nú reynir nefni­lega á ábyrgð okkar allra,“ sagði Katrín og tengdi kröfu­gerð­ina þar  með við COVID-far­ald­ur­inn. 

Tekju­fall en full starf­semiFriðrik Már Guð­munds­son segir að sam­drátttur hafi orðið í rekstri Loðnu­vinnsl­unnar á Fáskrúðs­firði en að starf­semin sé óbreyt þrátt fyrir COVID.

Tekjusamdráttur en allir í vinnu

Friðrik Már Guð­munds­son, fram­kvæmd­ast Loðnu­vinnsl­unnar á Fáskrúðs­firði, segir að fyr­ir­tækið hafi ekki farið í neinar upp­sagnir út af COVID-far­aldr­inum, fyr­ir­tækið sé með fulla starf­semi: „Ekki eitt stykki hefur farið á hluta­bætur,“ segir Friðrik Már.  „Það eru ekki almenn smit í sam­fé­lag­inu hér. Við höfum bara aðlagað okkur að breyttum aðstæðum og breytt vakta­fyr­ir­komu­lagi i fisk­vinnsl­unni. Auðvitað er tekju­sam­dráttur, það gefur auga­leið. En við aðlög­umst því. Enn sem komið er þá er full vinna í fyr­ir­tæk­inu.“

Aðspurður um hvað honum finn­ist um þau ummæli for­sæt­is­ráð­herra að útgerð­irnar aft­ur­kalli skaða­bóta­kröf­urnar segir hann: „Það er bara ekk­ert hægt að segja um þetta á þessu stigi. Auðvitað ráða menn sínum ráðum. Bjarni [Bene­dikts­son] segir að ríkið sé með góðan mál­stað og það er bara gott mál. En ég vek bara athygli á því að það er alveg óljóst hvernig þetta mál mun fara. Það á eftir að kalla til dómskvadda mats­menn og svo fram­vegis,“ segir Friðrik. 

Sig­ur­geir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, segir að fyr­ir­tækið hafi ekki nýtt sér hluta­bóta­leið­ina og að engum hafi verið sagt upp störfum. Hann segir að fyr­ir­tækið sé á fullu að fram­leiða fisk sem er óseldur. „Við erum bara að fram­leiða birgðir sem eru óseldar. Það mun verða tekju­sam­dráttur, það mun verða verð­fall á fiski. Starf­semin hefur verið í fullum gangi í gegnum alla kór­óna­veiruna,“ segir Sig­ur­geir, sem aldrei er kall­aður annað en Binni. Hann segir að fyr­ir­tækið hafi sent nokkra starfs­menn með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma heim vegna smit­hættu en að fyr­ir­tækið hafi greitt laun við­kom­andi á meðan. „Við höfum ekki nýtt hluta­bóta­leið­ina og vorum að ljúka hérna stórri salt­fisk­ver­tíð og náð að halda öllu gang­andi hérna,“ segir hann. 

Vilji útgerðanna að klára málið eftir lögformlegum leiðum

Páll Þór Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri og einn af hlut­höfum Hugins ehf. í Vest­manna­eyjum, segir aðspurður að fyr­ir­tækið hafi ekki nýtt sér hluta­bóta­leið­ina.  Raunar liggur þetta í augum uppi hvað varðar Huginn þar sem fyr­ir­tækið er ekki með fisk­vinnslu í landi líkt og hinar útgerð­irnar og lætur aðra frysta fisk­inn fyrir sig. Mögu­leiki útgerða til að nýta sér hluta­bóta­leið­ina snýst fyrst og síð­ast um starfs­fólk þeirra í landi, aðal­lega í fisk­vinnslum. „Spurn­ingin er okkur eig­in­lega algjör­lega óvið­kom­andi þar sem við erum ekki með neina starf­semi í landi,“ segir Páll. Vinnslu­stöðin er stærsti hlut­hafi Hugins með tæp­lega 50 pró­sent eign­ar­hlut og er því einn allri stærsti hags­muna­að­il­inn í mál­inu. 

„Við búum í rétt­ar­ríki“

Aðspurður um hvað honum finn­ist um umræð­urnar um skaða­bóta­kröfur útgerð­anna sjö segir hann að málið sé í far­vegi og að eðli­leg­ast sé að klára það fyrir dóm­stólum eða með öðrum lög­form­legum hætti en ekki í fjöl­miðlum. „Við búum í rétt­ar­ríki og það er vilji til þess að þetta verði klárað þar en ekki í fjöl­miðlum. En við skulum sjá til hvernig þetta þró­ast,“ segir Páll. 

Stefán Frið­riks­son, fram­kvæmda­stjóri Ísfé­lags­ins í Vest­mann­eyjum, segir að fyr­ir­tækið hafi ekki og muni lík­lega ekki nýta sér hluta­bóta­leið­ina. Aðspurður um tekju­sam­drátt Ísfé­lags­ins segir Stefán að vissu­lega hafi orðið tekju­fall í rekstr­inum en hvaða áhrif það hafi til lengdar liggi ekki fyrir. „Það er erfitt að svara því. Það er sam­dráttur til skemmri tíma en ég treysti mér ekki til að svara því til lengri tíma litið. Það stendur ekki til að nýtum okkur þessa leið eins og staðan er í dag. Við höfum sagt starfs­fólk­inu okkar að það standi ekki til að fara í neinar upp­sagnir. Hér eru allir í vinnu,“ segir Stefán. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Makríldómsmál

SkýringMakríldómsmál

Kenning um spill­ingu Krist­jáns Þórs í mak­ríl­máli sett fram í Hæsta­rétti

Félag mak­ríl­veiði­manna hefur staðið í dóms­máli við íslenska ríkið sem byggir á að því hafi verið mis­munað við kvóta­setn­ingu mak­ríls árið 2019. Samkvæmt mála­til­bún­aði félags­ins gerði ríkið bak­samn­ing við nokkrar stórar útgerðir um að þær fengju meiri mak­ríl­kvóta þegar hann var kvóta­settur 2019 gegn því að sleppa því að fara í mál við ríkið vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018.
FréttirMakríldómsmál

Kaup­fé­lagið fékk mak­ríl­kvóta vegna reglu­gerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaða­bóta út af sömu reglu­gerð

Útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ár­króki, FISK Seafood, er annar stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðv­airnnar sem vill skaða­bætur frá íslenska rík­inu út af úthlutun á mak­ríl­kvótum 2011 til 2018. Útgerð­ar­fé­lag Kaup­fé­lags­ins hóf sjálft mak­ríl­veiðar á grund­velli reglu­gerð­anna sem Vinnslu­stöðin vill fá skaða­bætur út af.
FréttirMakríldómsmál

Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“

Páll Þór Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Hugins ehf. í Eyjum, segir að hans skoðun í dag sé að útgerðin sæki áfram skaða­bætur til rík­is­ins í mak­ríl­mál­inu. Hæsti­réttur kvað upp dóm í árs­lok 2018 þess efnis að Huginn hefði orðið fyrir fjár­tjóni við úthlutun á mak­ríl 2011 til 2018. 5 af 7 útgerðum hafa hætt við skaða­bóta­málin en Huginn og Vinnslu­stöðin ráða ráðum sínum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár