Fréttamál

Makríldómsmál

Skýring

Kenning um spillingu Kristjáns Þórs í makríl­máli sett fram í Hæstarétti

Félag makríl­veiðimanna hefur staðið í dómsmáli við íslenska ríkið sem byggir á að því hafi verið mismunað við kvóta­setningu makríls árið 2019. Samkvæmt mála­tilbúnaði félagsins gerði ríkið baksamning við nokkrar stórar útgerðir um að þær fengju meiri makríl­kvóta þegar hann var kvóta­settur 2019 gegn því að sleppa því að fara í mál við ríkið vegna úthlutunar makríl­kvóta á árunum 2011 til 2018.
Fréttir

Kaup­félagið fékk makríl­kvóta vegna reglu­gerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaðabóta út af sömu reglugerð

Útgerð­ar­armur Kaup­félags Skagfirðinga á Sauðár­króki, FISK Seafood, er annar stærsti hluthafi Vinnslu­stöðv­airnnar sem vill skaða­bætur frá íslenska ríkinu út af úthlutun á makríl­kvótum 2011 til 2018. Útgerðar­félag Kaup­félagsins hóf sjálft makríl­veiðar á grund­velli reglu­gerðanna sem Vinnslu­stöðin vill fá skaða­bætur út af.
Fréttir

Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“

Páll Þór Guðmundsson, framkvæmda­stjóri Hugins ehf. í Eyjum, segir að hans skoðun í dag sé að útgerðin sæki áfram skaða­bætur til ríkisins í makríl­málinu. Hæstiréttur kvað upp dóm í árslok 2018 þess efnis að Huginn hefði orðið fyrir fjártjóni við úthlutun á makríl 2011 til 2018. 5 af 7 útgerðum hafa hætt við skaða­bótamálin en Huginn og Vinnslu­stöðin ráða ráðum sínum.

Mest lesið undanfarið ár