Eggjum grýtt í Veganbúðina

„Þetta eru vænti ég ein­hverjir ung­lingar að reyna að vera fyndnir,“ segir eig­and­inn.

Eggjum grýtt í Veganbúðina
Óskemmti­leg aðkoma Eggjum hafði verið grýtt í Vegan­búð­ina þegar að var komið í morgun.

Aðkoman að Vegan­búð­inni í Faxafeni í morgun var óskemmti­leg en ein­hverjir höfðu þá gert sér að leik að grýta eggjum í versl­un­ina. Magnús Reyr Agn­ars­son, einn eig­enda búð­ar­innar, seg­ist vænta þess að ein­hver hafi verið að gera til­raun til að vera fynd­inn, frekar en að um andúð á vegan­isma og ein­hvers konar mót­mæli gegn honum sé að ræða. 

Aðkoman í morgun var með þeim hætti að eggjum hafði verið kastað í rúður búð­ar­innar og tómur eggja­bakki lá á stétt­inni. Eftir því sem Magnús best vissi, þegar Stundin ræddi við hann, höfðu ekki orðið skemmdir á hús­næð­inu, ein­ungis óþrifn­aður. Sagði hann að þetta væri í fyrsta skipti sem þau hefðu orðið fyrir ein­hverju ónæði en Vegan­búðin var opnuð í Faxafeni fyrir um tveimur vikum. 

„Þetta eru vænti ég ein­hverjir ung­lingar að reyna að vera fyndnir, ég gef mér það. Það voru ein­hverjir ung­lingar sem komu í búð­ina í gær og voru að að reyna að vera snið­ugir og ætli þetta séu ekki bara þeir. Við höfum ekki áður lent í beinum skemmd­ar­verkum eða öðru í þeim dúr, þessi fífla­skapur er það fyrsta sem við höfum lent í. Auðvitað er ómögu­legt að segja hvort það búi eitt­hvað meira að baki en mér þykir það þó ólík­legt í þessu til­viki,“ segir Magnús.

Hann segir að afar vel hafi gengið í rekstr­inum síðan búðin opn­aði. Hún var áður í formi net­versl­unar og opin á laug­ar­dögum í Hafn­ar­firði en það hús­næði var orðið allt of lítið. „Það er búið að vera marg­falt meiri aðsókn en við gerðum ráð fyrir og við þurfum bara að gæta að því að birgja okkur upp, til að eiga nóg af vörum, því það gengur svo hratt á þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár