Útgerðirnar sem krefjast bóta fengu 50 milljarða makrílkvóta frá ríkinu

Jón Bjarna­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, segir að ákvörðun sjö útgerða að krefj­ast skaða­bóta út af úthlutun á mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018 sé „gjör­sam­lega sið­laus“. Jón setti reglu­gerð­ina sem kvóta­út­hlut­unin byggði á áður en mak­ríll­inn var kvóta­settur í fyrra­sumar.

Útgerðirnar sem krefjast bóta fengu 50 milljarða makrílkvóta frá ríkinu
Einka­hags­munir teknir fram yfir þjóð­ar­hag Jón Bjarna­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, breytti út af van­anum við úthlutun afla­heim­ilda í mak­ríl þegar hann var ráð­herra og vildi að minni útgerðir án veiði­reynslu gætu einnig veitt mak­ríl. Hæsti­réttur taldi þetta ólögl­mætt og gagn­rýndi Jón dóm­stól­inn fyrir að taka einka­hags­muni fram yfir þjóð­ar­hag. Mynd: Pressphotos

Mak­ríl­kvóti útgerð­anna sjö sem stefnt hafa íslenska rík­inu fyrir að hafa ekki fengið úthlutað nægi­lega miklum mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018 er rúm­lega 50 millj­arða króna virði. Þetta er mat byggir á áætl­uðu sölu­verð­mæti mak­ríl­kvóta þeirra á mark­aði þar sem kíló­verðið á slíkum kvóta er 700 krónur.

Þessum rúm­lega 50 millj­arða króna kvóta fengu útgerð­irnar úthlutað á grund­velli veiði­reynslu, og án end­ur­gjalds, þegar þessi fisk­teg­und var kvóta­sett í fyrra. Kvóta­setn­ingin byggði á veiði­reynslu síð­ustu 10 ára.

Stundin fjall­aði um kvóta­út­hlutun og verð­mæti afla­heim­ilda á mak­ríl í febr­úar síð­ast­liðnum. Samkvæmt mati blaðs­ins er veð­mæti mak­ríl­kvóta fjórtán stærstu útgerð­anna sem veiða þessa fisk­teg­und um 90 millj­arðar króna.

Umræddar sjö útgerðir vilja hins vegar fá skaða­bætur upp á 10,2 millj­arða króna vegna þess að þær telja sig hafa borið skarðan hlut frá borði í kvóta­út­hlut­un­unum á mak­ríl á árunum 2011 til 2018, áður en mak­ríll­inn var kvóta­settur end­an­lega. Hæsta skaða­bótakrafan er frá Ísfélagi Vest­manna­eyja, útgerð­ar­fé­lagi Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, upp á tæp­lega 3,9 millj­arða króna. 

Svar Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um upp­hæðir kröfu­gerða útgerð­anna var birt á vef Alþingis nú um pásk­ana. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, beindi fyr­ir­isp­urn til hans um skaða­bóta­kröf­urnar í jan­úar. Kjarninn greindi fyrst frá svari Krist­jáns Þórs eftir að það var birt en vef­mið­ill­inn hefur án árang­urs reynt að fá stefnur útgerð­anna gegn rík­inu afhentar. 

Rúmlega 60 milljarða gæði frá ríkinu

Á þessum árum, 2011 til 2018, var mak­ríl úthlutað á grund­velli reglu­gerðar frá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Skaða­bóta­kröfur útgerð­anna byggja á hæsta­rétt­ar­dómum sem féllu í árs­lok 2018 þar sem fall­ist var á mála­til­búnað tveggja af útgerð­unum sjö, Ísfélags Vest­manna­eyja og Hugins sem einnig er stað­sett í Eyjum.  

Hæsti­réttur snéri þar með við dómum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í mál­unum en hann hafði dæmt íslenska rík­inu í hag í maí 2017. 

„Þetta er gjör­sam­lega sið­laust.“

Samtals nemur virði mak­ríl­kvót­ans sem umræddar sjö útgerðir ráða yfir, og umræddar skaða­bóta­kröfur, rúm­lega 60 millj­örðum króna. Útgerð­irnar hafa svo auð­vitað hagn­ast vel á mak­ríl­veiðum síð­ast­liðin 10 ár. Enda hafa veiðar á þessarri fisk­teg­und verið ein af ástæð­unum fyrir ótrú­legum hagn­aði margra íslenskra útgerða síð­astlliðin ára­tug. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Makríldómsmál

Kenning um spillingu Kristjáns Þórs í makrílmáli sett fram í Hæstarétti
SkýringMakríldómsmál

Kenning um spill­ingu Krist­jáns Þórs í mak­ríl­máli sett fram í Hæsta­rétti

Félag mak­ríl­veiði­manna hefur staðið í dóms­máli við íslenska ríkið sem byggir á að því hafi verið mis­munað við kvóta­setn­ingu mak­ríls árið 2019. Samkvæmt mála­til­bún­aði félags­ins gerði ríkið bak­samn­ing við nokkrar stórar útgerðir um að þær fengju meiri mak­ríl­kvóta þegar hann var kvóta­settur 2019 gegn því að sleppa því að fara í mál við ríkið vegna úthlut­unar mak­ríl­kvóta á árunum 2011 til 2018.
Kaupfélagið fékk makrílkvóta vegna reglugerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaðabóta út af sömu reglugerð
FréttirMakríldómsmál

Kaup­fé­lagið fékk mak­ríl­kvóta vegna reglu­gerðar Jóns og á útgerð sem krefst skaða­bóta út af sömu reglu­gerð

Útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Sauð­ár­króki, FISK Seafood, er annar stærsti hlut­hafi Vinnslu­stöðv­airnnar sem vill skaða­bætur frá íslenska rík­inu út af úthlutun á mak­ríl­kvótum 2011 til 2018. Útgerð­ar­fé­lag Kaup­fé­lags­ins hóf sjálft mak­ríl­veiðar á grund­velli reglu­gerð­anna sem Vinnslu­stöðin vill fá skaða­bætur út af.
Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“
FréttirMakríldómsmál

Huginn hyggst sækja bætur þó fimm útgerðir hafi hætt við: „Minn hugur er að klára þetta“

Páll Þór Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Hugins ehf. í Eyjum, segir að hans skoðun í dag sé að útgerðin sæki áfram skaða­bætur til rík­is­ins í mak­ríl­mál­inu. Hæsti­réttur kvað upp dóm í árs­lok 2018 þess efnis að Huginn hefði orðið fyrir fjár­tjóni við úthlutun á mak­ríl 2011 til 2018. 5 af 7 útgerðum hafa hætt við skaða­bóta­málin en Huginn og Vinnslu­stöðin ráða ráðum sínum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár