Dagbækur úr útgöngubanni: „Ekkert verður aftur eins og það var“

Róttækar breyt­ingar á dag­legu lífi eru nú veru­leiki fólks um heim allan. Söknuður eftir hvers­dags­lífi, vinum og fjöl­skyldu, ótti við hið ókunna, atvinnu­ó­ör­yggi og tor­tryggni í garð yfir­valda er meðal þess sem lesa má úr dag­bók­ar­færslum sex jarð­ar­búa, skrif­aðar á sjö dögum. Allir búa þeir við útgöngu­bann á sínum bletti jarð­ar­kúl­unnar. En þrátt fyrir að allir lifi þeir nú tíma sem eiga sér enga hlið­stæðu í sög­unni njóta þeir í auknum mæli feg­urðar þess ein­falda, finna til djúp­stæðs náunga­kær­leika og vilja síður snúa aftur til þess mynsturs sem ein­kenndi líf þeirra áður en veiran tók það yfir.

Dagbækur úr útgöngubanni: „Ekkert verður aftur eins og það var“
Sól í Barcelona Íbúar í Barcelona hafa ekki mátt fara út fyrir húss­ins dyr síðan 14. mars. Judit, Jesus og börnin þeirra tvö mega telj­ast heppin, því að í íbúð­inni þeirra eru svalir, þar sem koma má fyrir einum stól, svo njóta megi geisla sól­ar­innar. Mynd: Úr einkasafni

Búdapest, Ungverjalandi

Miðvikudagurinn 25. mars 2020 

„Stjórn­völd í Ung­verja­landi hafa sett lýð­ræðið í sótt­kví.“ Einhvern veg­inn á þá leið hljóm­uðu fyr­ir­sagnir fjöl­miðla, í kjöl­far þess að þing lands­ins, með Viktor Urban í stóli for­sæt­is­ráð­herra, sam­þykkti lög sem veita honum stór­aukin völd og gera honum meðal ann­ars kleift að stjórna með til­skip­unum. Margir hafa lýst yfir áhyggjum af þessu, þeirra á meðal Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Sagðist hún ótt­ast að Ung­verjar væru að ganga of langt í að taka til sín völd, sem við­brögð við far­aldr­inum. Mikil óvissa ríkir hjá íbúum lands­ins, um hvað þessi laga­breyt­ing hefur í för með sér. Einn af þeim sem býr við hana er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands.

Hér á eftir fara brot úr dag­bókum sex jarð­ar­búa sem allir eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið í útgöngu­banni í lengri eða skemmri tíma. Aðeins einn þeirra, Herald, skrifar dag­bók sína undir dul­nefni og birtir ekki mynd af and­liti sínu. Það er vegna þess að hann er hræddur við refs­ingar stjórn­valda, sem geta eftir laga­breyt­ing­una dæmt fólk í allt að fimm ára fang­elsi, dreifi það „lygum“ um ástandið í land­inu. Herald er þegar far­inn að finna veru­lega fyrir áhrifum kór­óna­víruss­ins, and­lega, sam­fé­lags­lega og efna­hags­lega. 

Garð­ur­innHörð við­ur­lög eru nú við því að brjóta gegn skyldu­sótt­kví í Ung­verja­landi. Hjónin eru heppin að hafa garð sem þau mega nota, því hann telst til heim­ilis þeirra.

„Ég bý í útjaðri smá­bæjar sem er í klukku­stundar fjar­lægð frá höf­uð­borg Ung­verja­lands, ekki langt frá sló­vensku landa­mær­unum. Und­an­farna ára­tugi hafa þessi landa­mæri milli tveggja landa í Evr­ópu­sam­band­inu ekki haft mikla þýð­ingu. Nú eru þau allt í einu næstum áþreif­an­leg. Við konan mín erum bæði sjálf­stætt starf­andi. Tekjur okkar koma að mestu leyti úr kvik­mynda­iðn­að­inum sem hefur farið hratt vax­andi í land­inu. Við vorum full­bókuð í hin ýmsu verk­efni fyrir kvik­myndir þegar útgöngu­bannið skall á. Fyrst fannst okkur ofsa­hræðslan sem var að brjót­ast út vegna COVID-19 bæði yfir­drifin og ýkt.

Þau hug­rökku myndu halda áfram að vinna á meðan hinir færu í felur. Skiln­ingur okkar jókst smám saman, nokkuð hratt í raun­inni. Vonandi nógu hratt til að bjarga manns­lífum. Svo kom að því að upp­tökum kvik­mynd­anna var frestað einni af annarri. Í dag átti ég að vera í hlut­verki þýsks her­manns í hol­lenskri kvik­mynd um Önnu Frank. Konan mín átti að leika gyð­inga­konu í útrým­ing­ar­búðum. Við vorum búin að klippa okkur og bún­ing­arnir voru til­búnir. Tökum hefur nú verið frestað, ef það verður nú ein­hvern tím­ann af þeim. Meðan á óviss­unni stendur þurfa ein­stak­lingar að stand­ast próf­raun­ina um það hvort þeir geti borið ábyrgð á sjálfum sér og öðrum. For­eldrar eiga að loka sig af með börnum sínum. Búðir eru enn opnar en afgreiðslu­tím­inn er tak­mark­aður. Fjöldi þeirra sem mega dvelja á sama stað er veru­lega tak­mark­aður. Fólk stendur í röðum á göt­unni, fyrir framan apó­tekið eða verslun slátr­ar­ans. Ef fólk væri ekki farið að hamstra nauð­synjar væri eng­inn skortur á mat eða vítamínum. Ekki þó af grímum og öðrum varn­ar­bún­aði. Það er ekki einu sinni til nóg af slíkum vörum fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk. Við reynum að sýna skyn­semi og söfnum dálitlum birgðum. Það eru sögu­sagnir um að brátt skelli á strangt úti­vist­ar­bann.

Herinn er þegar orð­inn mjög sjá­an­legur í sumum hlutum lands­ins. Við búum í litlum bæ sem hefur lítið hern­að­ar­legt mik­il­vægi. Í höf­uð­borg­inni er lög­reglan og her­inn sjá­an­leg á göt­unum. Það er ekki hug­hreystandi, heldur gerir það flesta óró­lega.

Konan mín kennir þung­uðum konum hug­leiðslu. Aug­ljós­lega getur hún ekki hitt þær núna. Hún kennir sinn fyrsta tíma í gegnum fjar­funda­búnað í dag. Mömmunni til­von­andi virð­ist þykja það þægi­leg leið. Ég kenni kon­unni minni hvernig hún geti betur notað mynda­vél­ina í sím­anum sínum. Svona aðlög­umst við.

Ég reyni að sann­færa mömmu mína um að fara ekki út að kaupa í mat­inn, heldur biðja ein­hvern að gera það fyrir hana. Hún býr langt í burtu, í suð­ur­hluta Ung­verja­lands. Hún fékk einu sinni krabba­mein. Hún jafn­aði sig á því en hún er við­kvæm. Allir sem eru eldri en við eru á okkar ábyrgð núna. Fyrir nokkrum dögum var lagt fram frum­varp á þing­inu um að rík­is­stjórnin fái veru­lega aukið vald í ótak­mark­aðan tíma. Það fór ekki í gegn en sumir, eins og sam­tök og stofn­anir Evr­ópu­sam­bands­ins, hafa lýst yfir áhyggjum. Á tímum útgöngu­banns getur fólk ekki hóp­ast saman úti á götu og sagt hug sinn í mót­mælum. Ég held þetta væri auð­veld­ara ef það ríkti traust á milli almenn­ings og stjórn­valda. Það reynir á and­lega þegar heims­far­aldri og póli­tískum óróa er skellt saman. Suma daga er þetta óbæri­legt. Aðra daga virð­ist ástandið óraun­veru­legt, eins og þegar við gleymum okkur í nýjum dag­legum rútínum. Það hafa aldrei fleiri greinst sýktir af veirunni en í dag. Það var áfall. Ungur breskur diplómati léstu úr COVID-19. Hann var yngri en ég. Tálsýnin um að ungur aldur verji okkur gegn vírusnum er að leys­ast upp. Þeir sögðu að aðeins gamla fólkið væri í hættu. Nú er ungt og sterkt fólk að gefa eftir. Sorgin vegna allra þeirra sem láta lífið liggur á hjarta mínu. Við konan mín umgöng­umst ekki annað fólk. Við reynum að faðma hvert annað oftar en venju­lega. Í dag föðm­uð­umst við átta sinnum.“





Chennai, Indlandi

Fimmtudagurinn 26. mars 2020

Græn­met­is­búð í ChennaiÞær eru alla jafna sneisa­fullar af fólki en nú er eng­inn á ferli enda strangt útgöngu­bann í gildi.
Priya Desikan

Þann 24. mars var algjört útgöngu­bann sett á alla íbúa Indlands, eins fjöl­menn­asta ríkis heims þar sem 1,3 millj­arðar manna búa. Útgöngu­bannið tók gildi sam­stundis, sem leiddi til öng­þveitis, þar sem gríð­ar­mik­ill fjöldi fólks sem starfað hefur fjarri heima­bæjum sínum var nú orðið atvinnu­laust og þurfti jafn­vel að fara fót­gang­andi nokkrar dag­leiðir heim til sín. Aðgerðir ind­verskra stjórn­valda voru sagðar fyr­ir­byggj­andi, þar sem ákvörðun um þær voru teknar áður en fóru að ber­ast stað­festar fréttir af smitum inn­an­lands. Fljót­lega fóru þó fréttir af slíkum smitum að ber­ast og ferð­ast vírus­inn nú hratt milli hér­aða. Í borg­inni Chennai í suð­ur­hluta Indlands, sem er fjórða stærsta borg lands­ins, býr ljóð­skáldið og bar­áttu­konan fyrir hreinu vatni, Priya Desikan, ásamt syni sínum og eig­in­manni. 

„Ég fór út fyrir húss­ins dyr í fyrsta sinn í dag eftir langan tíma og í fyrsta sinn eftir að úti­vist­ar­bannið var sett á. Það var und­ar­legt að vera úti. Algjör­lega yfir­gefnar götur.

Næstum hver ein­asta mann­eskja sem var á ferli var með grímu fyrir and­lit­inu. Ekki ég. Allar versl­anir lok­aðar, nema þær sem selja algjörar nauð­synja­vörur, eins og stórar mat­vöru­versl­anir og græn­met­is­búðir, apó­tek, bens­ín­sjoppur og örfáir veit­inga­staðir, sem voru með hálf­dregið fyrir hjá sér. Allir nema KFC. Í öllum versl­unum var hand­spritt áber­andi.

Í sumum þeirra var meira að segja mann­eskja fyrir utan sem spraut­aði í lóf­ana á öllum sem gengu inn. Við máttum vera tvö eða þrjú á sama tíma innan í versl­un­unum. Það eru merk­ingar á göt­unum sem sýna hvernig við eigum að standa í röð og halda fjar­lægð hvert við annað. Hillur mat­vöru­versl­un­ar­innar sem ég fór í voru næstum tómar.

Ekkert brauð til. Ég hafði ekki farið af stað til að kaupa mat­vöru, þegar allir hinir ruku til. Mér tókst að fá næstum allt á list­anum mínum í dag. Ég vil ekki hamstra mat. Keypti bara nóg til að duga okkur í viku eða tvær. Frá og með morg­un­deg­inum verða versl­anir aðeins opnar í þrjár klukku­stundir á morgn­ana, á meðan birgðir end­ast. Enginn virð­ist vita hvenær vörur taka aftur að ber­ast. Ég stóð í röð með hinum og lék rólega tón­list í sím­anum mínum, bara til að bæta svo­lít­illi feg­urð og friði við líf okkar allra. Þegar ég var að keyra heim sá ég nokkra götu­hunda með tung­urnar lafandi út um munn­inn. Þyrsta. Hungraða. Enginn til að gefa þeim að borða. Meira að segja götu­sal­arnir voru hvergi sjá­an­legir. Einn heim­il­is­laus maður að fara í gegnum rusl. Eflaust svangur. Ég veit ekki hvað verður um þau. Ég veit ekki hvað þau eru að ganga í gegnum.

Ég get aðeins ímyndað mér það. Hluta af mér langar að loka aug­unum fyrir raun­veru­leik­anum og ganga í burtu. Mér finnst ég hjálp­ar­vana og örvingluð, því ég finn að mig langar ekki að finna sárs­auka þeirra að fullu. Sársauka þeirra sem eru að svelta til dauða. Fólks og dýra sem hafa verið skilin eftir. En samt finn ég ekki til hræðslu, aðeins til þög­ullar rósemdar, vit­andi að svona hefur nátt­úran alltaf virkað. Eitt högg og hún er búin að afgreiða allar hindr­anir og vanda­mál heims­ins: Mengun, óheftar lang­anir, jafn­væg­is­leysi, ann­ríki, að langa ekki til að vera heima hjá sér, hræðsl­una við ein­semd, hræðsl­una við að vera iðju­laus, að finna til óró­leika í þögn­inni, ótt­ann við að eiga ekki nóg, að láta aðra sjá um alla hluti, að vera ofur­upp­tek­inn af landa­mærum, marka­leysi og svo margt annað. Svona sé ég þetta. Svona er nátt­úran afkasta­mikil. Og ég hvíli í viss­unni um að allt verði í lagi, sama hvað ger­ist. Það eina sem ég get gert fyrir sjálfa mig og sam­fé­lagið er að halda í trúna, dvelja róleg í núinu.“





Marrakech, Marokkó

Föstudagurinn 27. mars 2020

Fjöl­skyldanOthman er eig­in­maður íslenskrar konu og saman eiga þau fjórar ungar dætur. Samt sem áður hefur honum reynst erfitt að fá útgefið ferða­leyfi, svo þau geti verið á Íslandi á meðan á far­aldr­inum stendur.

Mikil óvissa ríkir um raun­veru­lega útbreiðslu COVID-19 í Afríku, þar sem heil­brigð­is­kerfi land­anna í álf­unni eru flest illa í stakk búin til að takast á við far­aldur. Mun færri sýni hafa verið tekin í vel­flestum Afr­íku­ríkjum en víða ann­ars staðar. Opin­berar tölur gefa því til kynna að aðeins fáeinar mann­eskjur hafi smit­ast af veirunni í sumum þeirra, sem sýnir að lítið er í raun vitað um útbreiðsl­una. Staðan er skárri í Norður-Afr­íku­rík­inu Marrokkó, þar sem yfir­völd brugð­ust hraðar við vánni en mörg nágranna­ríkj­anna. Þar var útgöngu­bann sett á og settar veru­legar hömlur á sam­göngur, jafn­vel þó að fá sýni hefðu greinst jákvæð. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Í smábæ í útjaðri Marrakech býr Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir, ásamt mar­rokkóskum eig­in­manni sínum, móð­ur­systur sinni og fjórum ungum dætrum. Fjöl­skyldan hafði hug á að koma sér heim til Íslands þegar útbreiðsla veirunnar var að taka flugið, en það hefur ekki gengið hingað til. Það kann því að vera að fjöl­skyldan þurfi að halda sig innan dyra í Marokkó,  þar til far­ald­ur­inn gengur yfir.

„Getum við farið? Við skelltum okkur í ágætan til­finn­inga­rús­sí­bana í dag og himn­arnir héldu áfram að gefa af sér. Það rigndi og rigndi. Við fórum yfir stöð­una. Getum við farið? Getum við bara hoppað upp í flug­vél með tveggja daga fyr­ir­vara? Við erum hér með íbúð í leigu, starf­semi í gangi. Getum við bara labbað í burtu frá þessu án þess að skilja við allt eins og við viljum?

Helst þyrftum við að skila af okkur íbúð­inni, flytja búslóð­ina til tengdó, binda fyrir ýmsa lausa enda en við getum ekki gert neitt í þessu útgöngu­banni til þess að und­ir­búa brott­för. Othman stakk aftur upp á því að ég myndi fara með stelp­urnar og hann yrði eftir til þess að binda fyrir lausa enda. Ég tek fyrir það vegna þess að ég vil alls ekki slíta fjöl­skyld­una í sundur á þessum óvissu­tímum.

Ef guð lofar fer allt á besta veg en óvissan er sann­ar­lega mikil. Ég íhug­aði að draga til baka ósk um hjálp frá borg­ara­þjón­ust­unni á Íslandi, vegna þess að við gætum ekki farið. Á milli spennu­þrung­inna sam­ræðna gerðum við leik­fimi með stelp­unum inni í stofu, stóðum á haus, fífl­uð­umst og hlógum saman. Það létti lund­ina umtals­vert. Seinni part­ur­inn var rólegur. Litlu stelp­urnar lögðu sig í fyrsta skipti í nokkra daga. Það er búið að vera mikil slags­mál að fá þær til að leggja sig þessa dag­ana, en í dag fengum við smá frið og stóru stelp­urnar fengu að horfa á mynd.

Á meðan sátum við Berglind úti í garði í fugla­söng innan um katta­hjörð sem hefur ákveðið að búa í garð­inum vegna þess að þær fá alltaf eitt­hvað gott að borða hér. Við áttum fal­legar sam­ræður um lífið, traustið og trúna. Það var eins og að sam­ræð­urnar löð­uðu að okkur dýrin vegna þess að þegar við skiptum um umræðu­efni færðu allir kett­irnir sig.

Við fengum póst frá sænska sendi­ráð­inu í Marokkó þess efnis að það væri ekki víst hvort þau gætu skrifað út vísa fyrir Othman til þess að ferð­ast til Íslands. Þau bentu aftur á Útlend­inga­stofnun. Við höfum verið send í ótal hringi. Það er eins og eng­inn vilji taka ábyrgð á því að gefa út þetta ferða­leyfi þrátt fyrir það að lög­unum hafi verið breytt tíma­bundið hjá íslenskum yfir­völdum. Þar segir: „All for­eign nationals with immigration status in Iceland or another Schengen State, or those who have family mem­bers in the same countries, are allowed to enter Iceland.“ Við erum svo lang­þreytt á þess­ari vísa­flækju. Othman eld­aði dýr­indis kvöld­mat en ég hafði enga lyst. Leið mjög skringi­lega, með höfðu­verk og bein­verki. Ég fer alltaf að hugsa um kór­óna­vírus­inn þegar ég er ekki alveg með sjálfri mér.“





Barcelona, Spáni

Laugardagurinn 27. mars 2020

Eina úti­vistin í boðiJudit hefur ekki stigið fæti niður á götu í á þriðju viku. Hún nýtur þess þó að sitja á svöl­unum þegar sólin skín.

Spánn er eitt þeirra landa sem hefur farið hvað verst út úr kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Dag eftir dag ber­ast fréttir þaðan um að metið í gær hafi verið slegið í dag, aldrei hafi fleiri lát­ist af völdum veirunnar. Þegar þetta er skrifað nálg­ast tala lát­inna 11 þús­und. Í Kata­lóníu, sjálfs­stjórn­ar­hér­aði í norð­ur­hluta lands­ins, hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið illa, meðal ann­ars vegna þess að sjúkra­gögn skortir. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir.

„Loksins hefur rík­is­stjórn Spánar tekið ákvörðun um að stöðva alla starf­semi sem ekki er bráð­nauð­syn­leg í land­inu, frá og með mánu­degi. Þannig hefur það verið hér í Kata­lóníu frá því að form­lega var lýst yfir heims­far­aldri. Líkt og ég geri alla daga hringdi ég í pabba. Hann er 79 ára og býr einn. Hann er verk­fræð­ingur en er mik­ill heim­spek­ingur í sér, meðal ann­ars vegna aðdá­unar sinnar á löngum göngut­úrum, sem hann klárar nú sam­visku­sam­lega inni í 90 fer­metra íbúð­inni sinni. Í dag spurði hann mig: „Af hverju tölum við um inni­lokun fyrst núna, þegar við erum í raun og veru alltaf inni­lokuð? Í íbúðum okkar, í vinn­unni, í borg­unum.

Ginebra, dóttir mín sem er sjö ára, er búin að finna geisla­diska­safnið mitt. Hún bað mig að hlusta á tón­list með sér. Sem betur fer á ég ennþá geisla­diska­spil­ar­ann minn. Við döns­uðum af krafti við Radi­ohead, Pixies, The Cardigans. Ég deildi líka með henni und­ar­legri aðdáun minni á söng­leikjum Andrew Lloyd Webber. Ég skemmti mér stór­kost­lega. Klukkan átta um kvöldið fórum við upp á þaksval­irnar og klöpp­uðum fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki. Þetta er orðin helgi­at­höfn sem við end­ur­tökum á hverjum degi, alltaf á sama tíma. Við klöppum í sam­hljómi með hund­ruðum ann­arra sem frá þökum sínum, svölum og bak­görðum stappa stál­inu í lækn­ana, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana og hitt heil­brigð­is­starfs­fólkið, svo það geti haldið áfram bar­átt­unni gegn þessum ósýni­lega, lit­lausa og þögla óvini. Þetta er allt svo und­ar­legt.“





Cordóba, Argentínu

Sunnudagurinn 28. mars 2020

Heima­skrif­stofanLucia býr ein lít­illi íbúð í tíu hæða blokk í Kordóba.

Fyrsta til­felli kór­óna­veirunnar í Suður-Ameríku kom upp í febr­ú­ar­lok, þegar smit var stað­fest í São Paulo í Brasilíu. Það var hins vegar í Argent­ínu sem til­kynnt var um fyrsta dauðs­fallið hennar vegna. Þann 7. mars til­kynntu stjórn­völd þar að 64 ára karl­maður hefði lát­ist í kjöl­far sýk­ingar af völdum COVID-19. Nú, skömmu eftir mán­aða­mót, er tala lát­inna að nálg­ast 40. Stjórn­völd í Argent­ínu hafa stært sig af því að hafa brugð­ist hratt við ástand­inu. Viku eftir að fyrsta dauðs­fallið var stað­fest var búið að setja á strangar ferða­tak­mark­anir, loka landa­mær­unum og skella í lás í öllum mennta­stofn­unum. Frá því 19. mars hefur svo útgöngu­bann verið í gildi. Lucia Maina Waisman er blaða­maður, sam­fé­lags­miðl­ari, kenn­ari og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum, sem er búsett í borg­inni Kordóba í Argent­ínu.

Lucia Maina Waisman

„Þrátt fyrir að það sé sunnu­dagur afreka ég að gera lík­ams­æf­ing­arnar sem ég hef ein­sett mér að gera á hverjum degi en stend sjaldan við. Dálítið jóga á þaksvöl­unum, hlaupa upp og niður tröpp­urnar þær tíu hæðir sem eru á milli íbúð­ar­innar minnar og úti­dyra­hurðar fjöl­býl­is­húss­ins.  Á net­inu gengur mynd­band sem sýnir lög­reglu­mann skjóta á mann­eskju úti á miðri götu í annarri borga sýsl­unnar, fyrir að hafa brotið gegn sótt­kví. Sem betur fer fann skotið sér ekki leið inn í lík­ama hennar. Ég vel mér bíó­mynd til að horfa á af lista sem stjórn­andi kvik­mynda­klúbbs í borg­inni minni setti á sam­fé­lags­miðla. Að ég skuli vera ein að horfa á bíó­mynd heima hjá mér í miðjum heims­far­aldri kallar á gam­an­mynd. For­set­inn til­kynnir að útgöngu­bannið sem átti að ljúka eftir tvo daga verði fram­lengt til 13. apríl, eftir páska. Það þýðir að við erum ekki einu sinni hálfnuð. Eftir lófatak kvölds­ins ríkir algjör þögn. Klukkan 1 eftir mið­nætti vakna ég við hávaða og fer út á svalir: Tveir karl­menn hlaupa eftir yfir­gef­inni göt­unni og kasta rusla­pok­unum okkar upp í vöru­bíl í lausa­gangi.





Los Angeles, Bandaríkjunum

Mánudagurinn 30. mars 2020

Siobhan MurphyHún býr í Los Angeles og ótt­ast að staðan þar verði svipuð og í New York eftir nokkrar vikur.

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta far­ald­ur­inn og lengi vel virt­ist Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ekki ætla að horfast í augu við að hann ætti eftir að hafa djúp­stæð áhrif þar líkt og víðar. Lands­menn súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla víruss­ins virð­ist stjórn­laus. Þar hafa nær 7000 manns lát­ist og 266 þús­und greinst með veiruna. New York borg hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi býr.

„Það er aftur kom­inn mánu­dagur. Frétt­irnar verða verri og verri hér í Banda­ríkj­unum, eftir því sem töl­urnar ná brjál­uðum hæðum. Vinir mínir geta sumir hverjir ennþá unnið heiman frá sér á meðan aðrir reyna að kom­ast að því hvernig þeir geti sótt um atvinnu­leys­is­bætur og ræða við leigusal­ana sína og bank­ana.

Þeir eru smám saman að átta sig á því að þetta er langt því frá að klár­ast. Borg­ar­stjór­inn okkar hefur ákveðið að fram­lengja fyr­ir­skip­un­ina um að fólk eigi að halda sig heima til loka apr­íl­mán­aðar að minnsta kosti, en und­ir­býr fólk samt sem áður fyrir að þetta geti tekið að minnsta kosti tvo mán­uði í við­bót. Spít­ala­skip hefur lagt að bryggju og er til­búið að taka á móti sjúk­lingum. Ráð­stefnu­hallir og íþrótta­leik­vangar breyt­ast í for­gangs­spít­ala og búa sig undir að taka á móti sjúk­lingum.

Spár benda til þess að hér verði jafn­mörg til­felli og í New York innan nokk­urra vikna. Lög­reglu­yf­ir­völd eru farin að sekta fólk sem hlýðir því ekki að halda sig heima. Almenn­ings­garðar, bað­strandir, engi, göngu­stígar, leik­vellir og nú bænda­mark­aðir hafa verið lokuð af. Ég ákveð að búa til beef bourguignon frá grunni og búa til nokk­urs konar kássu. Hún þarf að malla í marga klukku­tíma. Það er fal­legt að ein­beita sér að matseld. Mér verður hugsað til veit­inga­staða og hversu margir þeirra eigi ekki eftir að lifa þetta af. Eftir því sem David Chang full­yrðir munu 90% veit­inga­staða fara á haus­inn til fram­búðar. Ég hugsa um hvað matur er okkur mik­il­vægur, að svo mörgu leyti. Hann nærir okkur en við sækjum veit­inga­staði til að fagna, til að koma saman, til að verða ást­fangin, til að hug­hreysta hvert annað. Hvað ger­ist þegar þessu er öllu lokið og við höfum misst okkar fal­lega, ljúf­fenga og fjöl­breytta mat­ar­sam­fé­lag í Los Angeles? Kássan er til­búin. Hún er svo góm­sæt. Ég deili mynd af henni á sam­fé­lags­miðlum, ekki til þess að grobba mig, heldur til að segja fólki að það geti leitað til mín ef því vantar hjálp við að elda úr þeim fáu inni­halds­efnum sem til eru. Margir svara mér til baka og óska eftir hjálp, svo þetta var til góðs. Klukkan 8 á hverju kvöldi heyr­ast hróp í hverf­inu mínu, fólk stendur úti, klappar og ber á potta og pönnur til heið­urs heil­brigð­is­starfs­fólki okkar. Við höfum verið að gera þetta í heila í viku og hávað­inn eykst með hverjum deg­inum. Þetta er útrás fyrir okkur líka. Við söknum hvert ann­ars.“





Búdapest, Ungverjalandi

Þriðjudagur 31. mars 2020

Áhyggj­urnar fara vax­andiRými til að hug­leiða kemur sér vel fyrir Herald þegar þörf er á að hemja kvíð­ann sem lætur á sér kræla um þessar mundir.

Í þess­ari síð­ustu viku mars­mán­aðar stytti Herald Magyar sér stundir í útgöngu­bann­inu með því að halda dag­bók fyrir les­endur Stund­ar­innar á Íslandi. Þegar hann byrj­aði skrifin var það enn í hans huga bara fjar­lægur mögu­leiki að rík­is­stjórn Ung­verja­lands ætti eftir að breyta lögum og taka sér því sem næst alræð­is­vald um óákveð­inn tíma.Það gerð­ist hins vegar með laga­breyt­ingu sem tók gildi á síð­asta degi mán­að­ar­ins. Hann seg­ist strax vera far­inn að aðlag­ast ástand­inu. Segir hug­ann ekki geta verið á stöð­ugum verði, heldur sætti hann sig við hið óásætt­an­lega, ef engu er hægt að breyta. „Fram að þessu var ekki ólög­legt að vera á annarri skoðun. Nú er það það,“ segir hann.

„Við erum öll í þessu saman. Kór­óna­vírus­inn kennir okkur að það kemur okkur við hvað er að ger­ast hjá fólki í öðrum heims­hlutum. Eða í næsta húsi. Það sem við gerum hefur bein áhrif á líf ann­arra. Ég get bjargað manns­lífum með því að halda mig heima. Ég get sett sjálfan mig og aðra í hættu með því að hitta þá. Heil­brigð­is­starfs­fólk berst fyrir ein­hvern sem gæti verið ég sjálf eftir nokkrar vikur. Eldri borg­ari lætur lífið. Gæti hafa verið annað for­eldra minna. Það er erfitt að halda sig heima. Þannig er það líka fyrir millj­ónir ann­arra um allan heim. Við göngum gegnum fjár­hags­lega erf­ið­leika. Það gerir líka millj­arður manna um allan heim. Hver þeirra er ein­stak­lingur, mann­eskja. Þetta er ekk­ert venju­legt vanda­mál. Það er í senn alþjóð­legt og per­sónu­legt. Mér líður illa en það er for­vitni­legt að vita að til­finn­ingar mínar eru þær sömu og svo margra ann­arra. Þjáning mín er sú sama og þeirra. Nú er ekki erfitt að ímynda sér hvernig þeim líður eða hvað þau eru að gera. Ég finn til nándar með svo mörgum og ég veit að þeim líður eins, að þeir geta ímyndað sér sárs­auka minn og erf­ið­leika, því hann er sam­tímis og sam­bæri­legur þeirra. Við erum saman. Aðskilin lík­am­lega og sam­fé­lags­lega en sam­ein­umst í lífs­reynsl­unni. Ég finn sterkt fyrir orku augna­blikanna. Hún er yfir­þyrm­andi. Á sama tíma ein­stök. Við erum að vakna. Ég býst ekki við að gleyma þessu nokkurn tím­ann. Né að ég vilji gleyma því. 

Laga­breyt­ingin sem gefur rík­is­stjórn­inni völd til að stjórna með til­skip­unum hefur verið sam­þykkt og hafa þegar tekið gildi. Það er áhuga­vert hvað ég vand­ist hug­mynd­inni hratt, því það er ekk­ert sem hægt er að gera til að sporna við þessu strax. Ég hef ekki fundið til kvíða vegna þessa síð­ustu daga en fyrir viku var ég í upp­námi og virki­lega hræddur. Svo hætti ég því. Hugurinn aðlag­ast ástand­inu. Hann getur ekki verið stöðugt á verði, sættir sig við hið óásætt­an­lega ef engu er hægt að breyta. En ég get ekki sýnt and­lit mitt né gefið upp rétt nafn. Fram að þessu var ekki ólög­legt að vera á annarri skoðun. Nú er það það. Við lærum að lifa með þessu og sjáum til hvort rík­is­stjórnin gefur völdin aftur þegar ástand­inu lýkur. Því miður hefur hún ekki haft til­hneig­ingu til þess að gefa eftir völd hingað til. Ég fæ skyndi­legt kvíða­kast. Haus­verkur, kaldur sviti, ein­beit­ing­ar­leysi, spenna. Ég get ekki andað eðli­lega, pirr­ingur og skap­sveiflur. Það er ógn­andi skuggi yfir öllu. Lát­bragðs­leikur er lausnin. Í dýra­rík­inu reynir bráðin að blanda sér í hóp rán­dýr­anna þegar hún er í hættu. Ég er ekki frels­is­bar­áttu­maður. Ég er frið­ar­sinni. Ég mun blanda mér í hóp­inn og lúta höfði. Ég lýk þess­ari dag­bók með and­varpi. Það er góð til­finn­ing að vita að ég geti deilt sann­leika mínum með öðrum. Að vera ein rödd í kór ólíkra radda á einmitt þessu augna­bliki. Að þeir sem heyra raddir okkar finni fyrir okkur, þekki okkur og tengi við okkur. Sögur okkar eru eins. Þeirra, okkar.“

Dagbækur frá sex löndum

Smelltu á manneskju til að lesa dagbókarfærslu hennar í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók í útgöngubanni

Straujar peningaseðlana til að drepa veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Straujar pen­inga­seðl­ana til að drepa veiruna

Mikil óvissa ríkir hjá íbúum Ung­verja­lands um það hvað stór­aukin völd stjórn­valda í kjöl­far laga­breyt­ingar hafi í för með sér. Einn þeirra er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands. Líf þeirra hefur koll­varp­ast á skömmum tíma. Herald er einn sex jarð­ar­búa sem deila dag­bókum sínum úr útgöngu­banni með les­endum Stund­ar­innar.
Óttast hungrið meira en veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Óttast hungrið meira en veiruna

Stjórn­völd í Argent­ínu hafa stært sig af því að hafa brugð­ist hratt við ógn­inni sem stafar af COVID-19. Frá því 19. mars hefur útgöngu­bann verið í gildi þar. Lucia Maina Waisman er blaða­maður, sam­fé­lags­miðl­ari, kenn­ari og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum, sem er búsett í borg­inni Kordóba í Argent­ínu. Hún deilir dag­bók­ar­færslum sínum með les­endum Stund­ar­innar.
„Það er svo mikil þögn þarna úti“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta COVID-19 far­ald­ur­inn og lands­menn virð­ast nú súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla hans virð­ist stjórn­laus. New York-ríki hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi, býr.
„Getum við farið?“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Getum við farið?“

Í Marra­kesh í Marrokkó búa hjónin Birta og Othman með dætur sínar fjórar. Þarlend yfir­völd brugð­ust hraðar við COVID-vánni en mörg nágranna­ríkin, settu meðal ann­ars á strangt útgöngu­bann og aðrar hömlur á dag­legt líf. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir deilir dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar. Í henni má meðal ann­ars lesa að fjöl­skyldan hafði hug á að koma til Íslands á meðan á heims­far­aldr­inum stendur, sem hefur reynst erfitt hingað til.
Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Býst ekki við að börnin snúi aftur í skól­ann á þessu ári

Í Kata­lóníu hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, eru íbúar ugg­andi enda stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið vegna kór­óna­veirunnar illa. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir. Hún deilir hér dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár