„Það er svo mikil þögn þarna úti“

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta COVID-19 far­ald­ur­inn og lands­menn virð­ast nú súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla hans virð­ist stjórn­laus. New York-ríki hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi, býr.

„Það er svo mikil þögn þarna úti“
Hund­ur­inn Félags­skapur hans er mik­ils virði á tímum covid-19. Mynd: Úr einkasafni

25. mars 2020

Siobhan Murphy

„Ég vakna alltaf snemma þessa dag­ana. Í morgun var klukkan 4.30. Það er engu lík­ara en að ég sé að reyna að verða á undan raun­veru­leik­anum, kom­ast aftur til ann­ars tíma. Eins og að eftir því fyrr sem ég vakna, því meiri séu lík­urnar á að þetta hafi allt saman bara verið draumur. Eða kannski þarf ég bara að gefa sjálfri mér meiri tíma á morgn­ana til að sætta mig við stöð­una. Það er dimmt í tvo og hálfan tíma í við­bót í Los Angeles, svo ég hef þá trú að ég sé á undan borg­inni þarna úti, sem flýtir sér út í ofboði, til að standa í röð eftir mat­vöru fyrir klukkan sjö. Ég hef aðeins farið í búð tvisvar frá því við fengum fyr­ir­skip­un­ina um að halda okkur heima og í bæði skipti var það kvíða­þrungin reynsla. Ég var með lista yfir allt sem ég þurfti þegar ég gekk inn í búð­ina en þar sem fæst af list­anum var til valdi ég hluti af handa­hófi. Nú á ég í fórum mínum tvö stór eggaldin. Við erum öll að verða hug­mynda­smiðir í eld­hús­inu. Flestar sam­ræður, sem fara fram í gegnum smá­skila­boð eða Facetime, byrja á: „Ég forð­ast að fylgj­ast með fréttum“ en svo virð­ist ekk­ert okkar geta forð­ast þær. Við tölum um að taka til í mat­ar­búr­inu okkar, að end­ur­raða í fata­skápana, hversu mjög við njótum ein­lægra sam­tal­anna … Þyrlumst svo aftur inn í sam­töl um hvar sé best að kaupa kló­sett­pappír, hversu mikið við hötum for­set­ann okkar, hversu inni­lega við elskum Andrew Cuomo, hvað muni ger­ast þegar þetta er allt afstaðið. Verður í lagi með okkur? Við eigum sömu sam­tölin, aftur og aftur, einsog við séum föst í enda­lausri lúppu. Og ætli við séum það ekki? Ég er heppin, því ég bý ein í húsi með bak­garði. Ég ver sífellt meiri tíma í að sitja bara þarna úti og anda. Ég fylgist með hund­inum mínum hlaupa um í alsælu.“

26. mars 2020

„Dagurinn var erf­iður. Ég var samt að skrifa svo­lítið, þökk sé fríl­ans giggi sem er sem betur fer ennþá í gangi. Ég er líka að hjálpa vin­konu með hlað­varp sem hún er að vinna. Það fjallar um miðil sem kann að hafa leyst ráð­gát­una um eitt af fræg­ustu morðum sög­unnar. Það er svo vel unnið hjá henni og ég hugsa um hversu margir eigi eftir að njóta þess þegar það fer í loftið. Það gleður mig. Það er blessun hvernig verk­efnin hjálpa mér að dreifa hug­anum en ég er samt svo afkasta­lítil og vinnu­flæðið slakt. Svona hef ég aldrei verið áður. Ég hugsa einmitt mikið um það sem áður var. Það er und­ar­legt að finna að þetta er að verða hið nýja hrylli­lega eðli­lega ástand. COVID-til­fellin hér í Banda­ríkj­unum eru orðin fleiri en í Kína. Ég og margir í kringum mig erum á þeirri skoðun að það sé vegna þess að Donald Trump var of seinn að bregð­ast við. Það er bók­staf­lega blóð á höndum hans núna. Í fyrsta sinn frá því þetta hófst allt saman er ég hrædd. Hvað ef ég hitti aldrei for­eldra mína aftur?  Það er skrýtið með kvíð­ann, að hann sýnir til­finn­ing­unum enga þol­in­mæði. Hann hrærir í þeim. Kvíðinn ýtir hug­anum bein­ustu leið inn í verstu mögu­lega fram­tíð­ar­mynd­ina. Kvíðinn er þessi pirr­andi vinur sem er allt of dramat­ískur varð­andi alla hluti og þú eyðir allt of miklum tíma í að tala um fyrir honum. Ég hætti mér aftur út fyrir húss­ins dyr í dag og það slær mig hvað loftið í LA er ferskt og gott þessa dag­ana. Borg­ar­hljóðin hafa beðið í lægra haldi fyrir fugla­söng og ljúfum and­vara. Það er engu lík­ara en að nátt­úran sé að vakna til lífs­ins.

27. mars 2020

Ég held þetta sé þriðji föstu­dag­ur­inn minn heima hjá mér, til að halda fjar­lægð við aðra. Í gær­kvöldi var ég ein­mana. Ég er þannig gerð að mínar bestu stundir á ég ein með sjálfri mér, svo ein­mana­leiki er ekki eitt­hvað sem ég þarf að kljást við alla jafna. Ég hafði sam­band við vin­konu. Við töl­uðum um ferða­lag okkar til Íslands fyrir nokkrum árum og hlógum að minn­ing­unni um hvað við skemmtum okkur vel. Dálítið klikkað flögrar að mér: Kannski er nátt­úran að tala við okkur: Þér varð svo illi­lega á að nú berst ég á móti, tek aftur völdin.“ Ég grét í morgun. Öll góð­verkin sem fólk gerir þessa dag­ana hreyfa við mér. Vissan um að ég eigi stór­kost­lega vini og fjöl­skyldu sem ég get stutt mig við – og þau við mig – gerir mig að mold­ríkri mann­eskju. Ég fór í göngutúr með hund­inn minn í morgun. Alltof snemma eins og venju­lega.

„Ég grét í morgun. Öll góð­verkin sem fólk gerir þessa dag­ana hreyfa við mér“

Það er svo mikil þögn þarna úti. Við búum þétt í hverf­inu mínu og það er alltaf mikið af fólki á stjái, nótt sem dag. Þetta er skrýtið og ein­kenni­lega fag­urt. Í dag þarf ég að sækja um atvinnu­leys­is­bætur. Svo mun ég að öllum lík­indum eiga í sam­bæri­legum sam­ræðum og í gær, við vini mína og fjöl­skyldu. Svo reyni ég að halda mig frá frétt­unum á meðan ég velti fyrir mér: Trúir fólk í alvöru botn­lausum lyg­unum sem for­set­inn spýr út úr sér á hverjum degi?

28. mars 2020

Í dag tók ég lengsta hlé frá fréttum frá því að ein­angrun okkar hófst hér í LA. Ég svaf líka fram eftir, vakn­aði klukkan 9. Ég man ekki hvenær ég svaf síð­ast svona lengi. Meira að segja hund­ur­inn minn svaf út. Hann er líka upp­gef­inn, býst ég við. Í sím­anum voru skila­boð frá vinum sem deildu því með mér hvað þeim tókst að kom­ast yfir þennan dag­inn, í mat­vöru­versl­un­inni og á bænda­mark­aði hverf­is­ins sem enn stendur opinn á laug­ar­dögum, við rætur brekkunnar fyrir neðan húsið mitt. Frá New York ber­ast þær fréttir að þar fjölgi dauðs­föllum á ógn­vekj­andi hraða. Enn annar fal­legur dagur hér. Kalt, ferskt loft. Við förum í göngutúr um hverfið. Það er svo þög­ult. Það rennur upp fyrir mér að ég hef ekki heyrt í lög­reglu­sírenu svo klukku­tímum skiptir. Þar sem ég bý, í miðri Los Angeles, eru sírenur bak­grunns­hljóð lífs­ins. Aftur lætur nátt­úran í sér heyra. Hvernig er hægt að láta sér líða illa þegar sólin skín og fugl­arnir syngja? Ég ætl­aði að vakna snemma í dag, til að fara í röð við mat­vöru­versl­un­ina, en lík­ami minn hafði aðrar hug­myndir. Svo ég varði deg­inum í að vinna í garð­inum og taka til í skúffum og skápum. Þegar ég heyrði í vinum mínum og fjöl­skyldu, eins og ég geri á hverjum degi núna, tók ég eftir breyt­ingu á sam­tölum okkar. Þau sner­ust ekki lengur um hvert væri best að fara til að kaupa kló­sett­pappír eða hvernig við ætl­uðum að fara að því að borga reikn­inga. Við vorum farin að tala meira um and­legu hlið þessa alls. Þetta hefur djúp­stæð áhrif og á eftir að breyta næstum því öllum, til fram­búðar. Ekkert verður aftur eins og það var. Ég grét þegar ég tal­aði við bestu vin­konu mína á Facetime í dag. Hún missti móður sína úr krabba­meini fyrir rúm­lega ári síðan. Ég hafði talað við móður mína fyrr í dag og fann fyrir djúpu þakk­læti fyrir að geta talað við hana þegar mig lystir. Vinkona mín getur það ekki núna. Að heyra mömmu þína segja að allt verði í lagi, að við verðum að setja traust á okkur sjálf og guð núna. Ég er ekki sér­stak­lega trúuð mann­eskja en ég finn að alheim­ur­inn er að breyt­ast núna og því verður ekki við­snúið. Mér finnst líka eins og heim­ur­inn sé að færa sig frá hlutum sem við ættum ekki að snúa aftur til. Eins og heim­ur­inn hafi verið villtur og að þessir hræði­legu atburðir séu að leið­beina okkur að því að verða betri. Þegar ég skoða sam­fé­lags­miðla í kvöld sé ég að íbúar New York klöpp­uðu í sjö mín­útur til að heiðra heil­brigð­is­starfs­fólk. Fleiri tár renna. Það er kom­inn tími til að horfa á Tiger King á Netflix og sjá hvað allir eru að tala um. 

29. mars 2020

Ég velti mér fram úr rúm­inu og náði í mat­vöru­versl­un­ina fyrir klukkan 7. Það voru ekki svo margir á ferli. Þeir hafa tak­markað fjölda þeirra sem mega vera inni í búð­inni á sama tíma, afhenda þér sótt­hreinsispritt við inn­gang­inn og strjúka af inn­kaupa­kerrunni þinni. Inni í búð­inni gengur fólk um með grímur og hanska. Ég á enga grímu en ég er með háls­klút fyrir and­lit­inu, eins og hip­ster­a­út­lagi. Ég fer rak­leiðis að kló­sett­papp­írs­hill­unni og heppnin er með mér. Ég gríp pakka með tólf rúllum og nokkrar eld­hús­rúllur líka. Ég finn kvíð­ann lækka um nokkur stig. Nú get ég alla vega skeint mér í tólf rúllur í við­bót, sama hvort hitt sem mig vantar úr þess­ari búð er til eða ekki. Þetta eru sann­ar­lega und­ar­legir dagar. Ólík­leg­ustu hlutir eru ekki til: Vöru­stjór­inn segir mér að það sé eng­inn hvít­laukur til. Það er vegna vanda­máls uppi í Gilroy, þaðan sem mest af hvít­lauknum okkar kemur, og þeir finna hann ekki ann­ars staðar. Það er heldur ekki til hveiti og ger, sem vin­konu mína vant­aði og ég ætl­aði að færa henni. En búðin virð­ist nú hafa nægar birgðir, sem er þægi­legt að sjá.

„Ég á enga grímu en ég er með háls­klút fyrir and­lit­inu, eins og hip­ster­a­út­lagi“

Ég fæ allt það sem ég þarfn­ast. Það eru skilti við nokkrar vörur, þar sem stendur að aðeins megi taka tvö eða þrjú stykki. Það er í góðu lagi mín vegna. Ég kaupi þrjú búnt af gras­lauk því ég veit að vin­kona mín fann engan slíkan, fyrir hrærðu eggin sín og bök­uðu kart­öfl­urnar. Það er fyndið að ég man eftir því hvað fólk sem býr nálægt mér fann ekki í búð­inni, svo ég get keypt það og skilið eftir á dyra­þrep­inu hjá því. Þegar ég kem aftur í bíl­inn hefst ég handa við að keyra út þessar sér­stöku send­ingar. Allar götur eru yfir­gefnar. Þetta er Los Angeles. Já, það er sunnu­dags­morg­unn en hér er alltaf mikil umferð, ekki síst um helgar þegar vinn­andi fólk þeys­ist um til að ljúka erindum sem það hefur ekki tæki­færi til að sinna á virkum dögum. Ég keyri í gegnum Griffith Park – risa­stóra almenn­ings­garð­inn okkar – og sé fjórar mann­eskjur. Venju­lega iðar hann af göngu­fólki, hjól­urum, hlaup­urum. Í róleg­heit­unum býr frið­sæld. Ég skila af mér vör­unum, vit­andi að kannski haldi þær þessum vinum mínum innan dyra örlítið lengur. Ég kem heim og tek upp úr pok­unum, geng frá kló­sett­papp­írnum. Ég er í öruggu skjóli – þangað til kvíð­inn snýr aftur ein­hvern tím­ann fljót­lega. 

30. mars 2020

„Það er aftur kom­inn mánu­dagur. Frétt­irnar verða verri og verri hér í Banda­ríkj­unum, eftir því sem töl­urnar ná brjál­uðum hæðum. Vinir mínir geta sumir hverjir ennþá unnið heiman frá sér á meðan aðrir reyna að kom­ast að því hvernig þeir geti sótt um atvinnu­leys­is­bætur og ræða við leigusal­ana sína og bank­ana. Þeir eru smám saman að átta sig á því að þetta er langt því frá að klár­ast. Borg­ar­stjór­inn okkar hefur ákveðið að fram­lengja fyr­ir­skip­un­ina um að fólk eigi að halda sig heima til loka apr­íl­mán­aðar að minnsta kosti, en und­ir­býr fólk samt sem áður fyrir að þetta geti tekið að minnsta kosti tvo mán­uði í við­bót. Spít­ala­skip hefur lagt að bryggju og er til­búið að taka á móti sjúk­lingum. Ráð­stefnu­hallir og íþrótta­leik­vangar breyt­ast í for­gangs­spít­ala og búa sig undir að taka á móti sjúk­lingum. Spár benda til þess að hér verði jafn­mörg til­felli og í New York innan nokk­urra vikna. Lög­reglu­yf­ir­völd eru farin að sekta fólk sem hlýðir því ekki að halda sig heima. Almenn­ings­garðar, bað­strandir, engi, göngu­stígar, leik­vellir og nú bænda­mark­aðir hafa verið lokuð af. Ég ákveð að búa til beef bourguignon frá grunni og búa til nokk­urs konar kássu. Hún þarf að malla í marga klukku­tíma. Það er fal­legt að ein­beita sér að matseld. Mér verður hugsað til veit­inga­staða og hversu margir þeirra eigi ekki eftir að lifa þetta af. Eftir því sem David Chang full­yrðir munu 90% veit­inga­staða fara á haus­inn til fram­búðar. Ég hugsa um hvað matur er okkur mik­il­vægur, að svo mörgu leyti. Hann nærir okkur en við sækjum veit­inga­staði til að fagna, til að koma saman, til að verða ást­fangin, til að hug­hreysta hvert annað. Hvað ger­ist þegar þessu er öllu lokið og við höfum misst okkar fal­lega, ljúf­fenga og fjöl­breytta mat­ar­sam­fé­lag í Los Angeles? Kássan er til­búin. Hún er svo góm­sæt. Ég deili mynd af henni á sam­fé­lags­miðlum, ekki til þess að grobba mig, heldur til að segja fólki að það geti leitað til mín ef það vantar hjálp við að elda úr þeim fáu inni­halds­efnum sem til eru. Margir svara mér til baka og óska eftir hjálp, svo þetta var til góðs.

„Spár benda til þess að hér verði jafn­mörg til­felli og í New York innan nokk­urra vikna“

Klukkan 8 á hverju kvöldi heyr­ast hróp í hverf­inu mínu, fólk stendur úti, klappar og ber á potta og pönnur til heið­urs heil­brigð­is­starfs­fólki okkar. Við höfum verið að gera þetta í heila í viku og hávað­inn eykst með hverjum deg­inum. Þetta er útrás fyrir okkur líka. Við söknum hvert ann­ars.

31. mars 2020

Á þessum síð­asta degi mars­mán­uðar finnst mér eins og þetta ástand hafi varað að eilífu. Ég er hrædd, kvíðin og dálítið reið í dag. Ég tal­aði við mömmu. Ég tala við for­eldra mína á hverjum degi þessa dag­ana. Hún er líka reið. Yfir­leitt er hún jákvæða mann­eskjan í fjöl­skyld­unni. Hún sér það besta í fólki. Nú er hún hins vegar reið og vill vita hvenær þessu lýkur. Hún fær ekki að sjá og faðma börnin sín og barna­börnin. Við erum komin yfir 3.400 and­lát hérna og það er ekk­ert lát á þeim. Það er brjál­aður fjöldi fólks að deyja vegna víruss­ins í þessu landi. Plástrað heil­brigð­is­kerfið og félags­lega kerfið er aumk­un­ar­vert. Sprungur kerf­anna voru þegar vel sýni­legar en nú eru þau full­kom­lega van­búin. Þetta er rík­is­stjórn­inni að kenna. Ég kaus ekki þetta fólk, sem ákvað að skera niður sótt­varnir, að skera niður félags­lega þjón­ustu, er á móti því að allir fái heil­brigð­is­þjón­ustu og því að hækka lág­marks­laun. Fólk sem ekki ætti að deyja mun deyja. Fleiri munu búa á göt­unum og í bíl­unum sínum. Þetta þurfti ekki að ger­ast. Nú þurfum við að bjarga okkur sjálf og hjálpa hvert öðru. Rík­is­stjórnin okkar kemur ekki til hjálpar. Og við erum með for­seta sem er alveg sama. Það eina sem skiptir hann máli er að ná end­ur­kosn­ingu. Það er tími til kom­inn að horfast í augu við að við gætum þurft að sinna öðrum störfum til að lifa af eftir þetta. Við gætum verið atvinnu­laus svo mán­uðum skiptir.

„Fólk sem ekki ætti að deyja mun deyja“ 

Það er kom­inn tími til að kjósa fólk sem veitir okkur öllum aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu og þeirri félags­legu aðstoð sem við kunnum að þurfa á að halda, veiti okkur nauð­syn­legt skjól. Sós­í­al­ismi er ekki lengur blóts­yrði í þessu landi. Það var það aldrei í mínum huga hvort sem er. Joe Biden er ekki málið. Fleiri og fleiri konur eru að stíga fram og saka hann um kyn­ferð­is­lega áreitni. Ég meina, kommon, Joe. Bernie Sanders er enn í kapp­hlaup­inu. Kannski getum við öll hóp­ast á bak­við hann. Hann er enn að reyna að koma skila­boðum sínum um heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla áfram. Hann býðst til að hjálpa. Hann hefur safnað meira en tveimur millj­ónum doll­ara til hjálpar heil­brigð­is­starfs­fólki. Hvar er Joe? Hvar er Trump? Hann ætti að opna ávís­ana­heftið sitt núna. Hann ætti að skamm­ast sín fyrir það sem hann hefur gert. Á meðan held ég mig heima og tek einn dag í einu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók í útgöngubanni

Dagbækur úr útgöngubanni: „Ekkert verður aftur eins og það var“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Dagbækur úr útgöngu­banni: „Ekkert verður aftur eins og það var“

Róttækar breyt­ingar á dag­legu lífi eru nú veru­leiki fólks um heim allan. Söknuður eftir hvers­dags­lífi, vinum og fjöl­skyldu, ótti við hið ókunna, atvinnu­ó­ör­yggi og tor­tryggni í garð yfir­valda er meðal þess sem lesa má úr dag­bók­ar­færslum sex jarð­ar­búa, skrif­aðar á sjö dögum. Allir búa þeir við útgöngu­bann á sínum bletti jarð­ar­kúl­unnar. En þrátt fyrir að allir lifi þeir nú tíma sem eiga sér enga hlið­stæðu í sög­unni njóta þeir í auknum mæli feg­urðar þess ein­falda, finna til djúp­stæðs náunga­kær­leika og vilja síður snúa aftur til þess mynsturs sem ein­kenndi líf þeirra áður en veiran tók það yfir.
Straujar peningaseðlana til að drepa veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Straujar pen­inga­seðl­ana til að drepa veiruna

Mikil óvissa ríkir hjá íbúum Ung­verja­lands um það hvað stór­aukin völd stjórn­valda í kjöl­far laga­breyt­ingar hafi í för með sér. Einn þeirra er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands. Líf þeirra hefur koll­varp­ast á skömmum tíma. Herald er einn sex jarð­ar­búa sem deila dag­bókum sínum úr útgöngu­banni með les­endum Stund­ar­innar.
Óttast hungrið meira en veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Óttast hungrið meira en veiruna

Stjórn­völd í Argent­ínu hafa stært sig af því að hafa brugð­ist hratt við ógn­inni sem stafar af COVID-19. Frá því 19. mars hefur útgöngu­bann verið í gildi þar. Lucia Maina Waisman er blaða­maður, sam­fé­lags­miðl­ari, kenn­ari og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum, sem er búsett í borg­inni Kordóba í Argent­ínu. Hún deilir dag­bók­ar­færslum sínum með les­endum Stund­ar­innar.
„Getum við farið?“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Getum við farið?“

Í Marra­kesh í Marrokkó búa hjónin Birta og Othman með dætur sínar fjórar. Þarlend yfir­völd brugð­ust hraðar við COVID-vánni en mörg nágranna­ríkin, settu meðal ann­ars á strangt útgöngu­bann og aðrar hömlur á dag­legt líf. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir deilir dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar. Í henni má meðal ann­ars lesa að fjöl­skyldan hafði hug á að koma til Íslands á meðan á heims­far­aldr­inum stendur, sem hefur reynst erfitt hingað til.
Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Býst ekki við að börnin snúi aftur í skól­ann á þessu ári

Í Kata­lóníu hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, eru íbúar ugg­andi enda stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið vegna kór­óna­veirunnar illa. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir. Hún deilir hér dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár