Óttast hungrið meira en veiruna

Stjórn­völd í Argent­ínu hafa stært sig af því að hafa brugð­ist hratt við ógn­inni sem stafar af COVID-19. Frá því 19. mars hefur útgöngu­bann verið í gildi þar. Lucia Maina Waisman er blaða­maður, sam­fé­lags­miðl­ari, kenn­ari og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum, sem er búsett í borg­inni Kordóba í Argent­ínu. Hún deilir dag­bók­ar­færslum sínum með les­endum Stund­ar­innar.

Óttast hungrið meira en veiruna

25. mars 2020

Lucia Maina Waisman

„Það fyrsta sem ég tek eftir þegar ég opna augun er regnið sem bylur á svöl­unum. Rign­ingin kveikir í mér ann­ars konar ánægju en önnur veður, líkt og ég finni í því heil­brigða afsökun, minna dramat­íska, fyrir því að halda mig hér alein og inni­lokuð heima hjá mér. Í gær var fimmti dag­ur­inn í útgöngu­bann­inu hér í Argent­ínu en þögn borg­ar­innar var öðru­vísi, mann­lausar göt­urnar enn tóm­ari en áður. Það er minn­ing­ar­dagur sann­leika og rétt­lætis (Día Nacional de la Memoria por la Verdad y la Justicia), afmæl­is­dagur valda­ráns­ins sem leiddi af sér pynt­ingar og morð. 30 millj­ónir manns hurfu spor­laust. Þetta er í fyrsta sinn í meira en 36 ár sem Argent­ínu­menn koma ekki saman úti á götu 24. mars og ganga saman fyrir mann­rétt­indi. Á grind­verk og svalir hafa hund­ruð mann­eskja hengt hvíta vasa­klúta sem skrifað hefur verið á: Aldrei aftur! Annar eins fjöldi deilir ljós­myndum og minn­ingum af hryðju­verkum rík­is­ins. Undir kvöld heyr­ast hróp til minn­ingar um þá horfnu út um fjölda glugga. Sam­starfs­kona mín, sem býr í smábæ í útjaðri Kórdóbu, skrifar og óskar eftir aðstoð. Segir að í hús­inu hennar dvelji nú fjórar mann­eskjur sem geta ekki farið aftur til sinna heima, vegna sótt­kví­ar­innar sem yfir­völd skylda alla til að hlýða. „Í nótt sváfu þau úti í rign­ing­unni. Ég tal­aði við lög­regl­una og eng­inn tekur ábyrgð á þessu ástandi,“ segir hún og skila­boðin umbreyta litlu ánægju­stund­inni minni í djúpa dep­urð. Hjálp­ar­stofn­anir óska eftir fram­lögum til þess að þær geti haldið mötu­neytum sínum opnum, en í þeim eru búnar til mál­tíðir sem síðan er dreift í fátæk­ustu hverfi borg­ar­innar. Í mörg ár hafa þau verið eina leiðin til að seðja hungur fjöl­skyldna í þús­unda­vís. Þeim fer hratt fjölg­andi núna sem þurfa hjálp, því margir hafa misst vinn­una.

„Hjálp­ar­stofn­anir óska eftir fram­lögum til þess að þær geti haldið mötu­neytum sínum opnum“

117 ný til­felli af kór­óna­vírusnum voru stað­fest í land­inu í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem talan er þriggja stafa á einum degi. Orðið á göt­unni er að útgöngu­bannið verði fram­lengt. Á sama tíma ber­ast fréttir af því að byrjað sé að aflétta henni í Wuhan, borg­inni þar sem vírus­inn átti upp­tök sín. Ég fæ mynd­sím­tal frá for­eldrum mínum. Þau eru bæði læknar og stjórna ásamt öðrum heilsu­gæslu í suð­ur­hluta hér­aðs­ins, en þar sem þau eru bæði yfir sjö­tugu mega þau bara vinna að heiman. Þau segja mér að hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem vinnur með þeim sé smituð. Í kvöld, líkt og öll kvöld klukkan 9, byrjar berg­mál lófataks að end­ur­kast­ast á milli bygg­inga hverf­is­ins. Við bæt­umst eitt og eitt í hóp­inn, klöppum með og sýnum með því sam­stöðu með heil­brigð­is­starfs­fólki í bar­átt­unni gegn heims­far­aldr­inum.“

26. mars 2020

„Kakt­us­inn á svöl­unum mínum blómstrar rauðu blómi. Plönt­urnar sem ég sáði hér á tíundu hæð í blokk­inni minni eru mitt skjól. Ég held mér upp­tek­inni með því að vinna og leið­rétti verk­efni sextán ára nem­enda minna sem skrifa um gildi á borð við gleði og sam­fé­lags­vit­und. Það eru tvær vikur frá því að ég hætti að kenna þeim í skól­anum. Ég svara fyr­ir­spurnum þeirra í gegnum staf­ræna kennslu­stofu og finn fyrir tak­mörk­unum tækn­innar. Í gamla veru­leik­anum búa sam­ræð­urnar, und­ir­staða allrar mennt­unar. Í dag fór ég út að kaupa í mat­inn. Hér í Argent­ínu erum við vön löngum röðum í bönkum, á strætó­stoppi­stöðvum og opin­berum skrif­stofum, en ekki við apó­tek og mat­vöru­versl­anir eins og núna. Ég nálg­ast nokkrar mann­eskjur sem standa á gang­stétt­inni og bíða þess að starfs­maður færi þeim græn­meti. Þær halda sig frá hver annarri, helm­ingur þeirra með hanska og and­lits­grímur. „Það er ekki til neitt kjöt lengur,“ segir starfs­mað­ur­inn. Úti á götu­horni standa grímu­klæddir lög­reglu­menn og tala saman. 1.983 mann­eskjur eru nú þegar í haldi lög­regl­unnar í Kordóba, fyrir að brjóta sótt­kví, 6.100 manns í land­inu öllu. Fréttir af lög­reglu­of­beldi hafa verið að ber­ast. Í ein­hverjum til­fellum hafa þau hand­teknu verið lokuð inni í básum með rimlum, úti á miðri götu. Tvisvar í dag hef ég heyrt í lög­reglu­þyrl­unum sveima yfir okkur. Það er langt síðan ég hef heyrt í þeim hring­sóla yfir borg­inni. Í gær var til­kynnt um 87 ný smit í land­inu. 589 eru nú smit­aðir af vírusnum og tólf látnir. Það er til­kynnt að Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin hafi valið Argent­ínu til að vera eitt tíu landa sem prófa nýja með­ferð gegn kór­óna­vírusnum.

„Það er ekki til neitt kjöt lengur“

Klukkan er níu að kvöldi og lófatakið berst mér inn um glugg­ann. Áður fyrr voru einu hljóðin sem bár­ust á milli glugga bygg­ing­anna í hverf­inu fagn­að­ar­ópin þegar skorað var í mik­il­vægum fót­bolta­leikjum. Núna er það orðið hvers­dags­leg helgi­at­höfn að heiðra heil­brigð­is­starfs­fólk. Í þetta sinn hljómar frá trompet­inu lagið Yester­day með Bítlunum.“ 

27. mars 2020

„Á sam­eig­in­legri þakver­önd húss­ins leikur lítið barn sér með for­eldrum sínum. Veröndin hefur aldrei verið í eins mik­illi notkun og nú. Ég bý á efstu hæð og heyri nágranna­konu mína spjalla við fjöl­skyld­una. Niðri á götu hring­sóla örfáir bílar og mót­or­hjól frá heim­send­ing­ar­fyr­ir­tækjum á borð við PedidosYa, Glovo eða Rappi. Vörur þeirra telj­ast nú til nauð­synja og þess vegna fá sendl­arnir und­an­þágu frá sótt­kví. Þeir bera ekki hanska, eru ekki með grímur né nota nokkurn annan hlífð­ar­búnað. Fyr­ir­tækin sem þeir vinna fyrir kaupa ekki heil­brigð­is­trygg­ingu fyrir þá. Ég fæ skila­boð frá hjálp­ar­sam­tökum: Í dag lést ein frum­byggja­stúlkan í við­bót úr vannær­ingu. Hún var fimm ára. Bróðir hennar, eins árs, lést í gær af sömu ástæðu. Ég tek ákvörðun um að fylgj­ast ekki með því í dag hversu margir í við­bót hafi smit­ast af kór­óna­veirunni. Sögu fyrsta manns­ins sem smit­að­ist af vírusnum í borg­inni þar sem ég fædd­ist hefur verið dreift á sam­fé­lags­miðlum. Hann er eins og brenni­merktur. Hann liggur enn á spít­ala en konan hans, sem hefur jafnað sig, getur ekki snúið aftur á heima­slóðir. Mamma mín, lækn­ir­inn, segir mér í mynd­sím­tali að margt sam­starfs­fólk hennar hafi byrjað að þróa með sér and­lega erf­ið­leika: hræðslu og kvíða, fái jafn­vel kvíða­köst. Einhver þeirra, þau yngstu í hópnum, hafa ákveðið að hætta að mæta til vinnu. Eftir að hafa hyllt heil­brigð­is­starfs­fólk með lófa­klappi reynir trompetið að leika fyrir okkur lag en annar nágranni hefur sett hátal­ara út í glugga. Hann spilar lag á hæsta styrk og feg­urðin gufar upp.“ 

28. mars 2020

„Á fjöl­miðl­inum þar sem ég starfa fáum við stöðugt meira af upp­lýs­ingum frá ólíkum hér­uðum, borgum og bæjum. Kollegar okkar vilja segja frá því sem er að eiga sér stað í þeirra nærum­hverfi, sér­fræð­ingar sem vilja segja sína skoðun, sam­tök sem óska eftir hjálp eða benda á órétt­læti, stétt­ar­fé­lög sem berj­ast fyrir rétti sinna skjól­stæð­inga. Það er laug­ar­dagur og þess vegna nýti ég hluta dags­ins í félags­leg sam­skipti. Nú eru það staf­rænar stundir með stór­fjöl­skyld­unni og seinna með góðum vin­konum. Þetta eru fyrstu skiptin sem ég prófa hópsam­töl á net­inu. Mér líður eins og útlend­ingi sem skilur ekki tungu­mál hinna þegar ég horfi á and­lit alls þessa fólks sem mér þykir svo vænt um og það horfir til baka á mig af skjánum. Í dag greindust 55 ný til­felli af kór­óna­vírusnum í Argent­ínu. Það er helm­ingi minna en í gær. Það er létt yfir frétta­tímum dags­ins. Í þeim er síend­ur­tekið að rík­is­stjórnin hafi brugð­ist nógu tím­an­lega við heims­far­aldr­inum til að geta haldið honum í skefjum. Þetta kvöld læt ég duga að hlusta á lófatakið utan frá, meðan ég á mynd­sím­tal við vin­konu mína. Hún segir mér frá því að í þorp­inu hennar, stað­settu uppi í fjöll­unum, aðeins nokkra kíló­metra í burtu, hafi dag­legt líf nær ekk­ert breyst frá því að útgöngu­bannið skall á.“

„Í dag greindust 55 ný til­felli af kór­óna­vírusnum í Argent­ínu“

29. mars 2020

„Þrátt fyrir að það sé sunnu­dagur afreka ég að gera lík­ams­æf­ing­arnar sem ég hef ein­sett mér að gera á hverjum degi en stend sjaldan við. Dálítið jóga á þaksvöl­unum, hlaupa upp og niður tröpp­urnar þær tíu hæðir sem eru á milli íbúð­ar­innar minnar og úti­dyra­hurðar fjöl­býl­is­húss­ins.  Á net­inu gengur mynd­band sem sýnir lög­reglu­mann skjóta á mann­eskju úti á miðri götu í annarri borga sýsl­unnar, fyrir að hafa brotið gegn sótt­kví. Sem betur fer fann skotið sér ekki leið inn í lík­ama hennar. Ég vel mér bíó­mynd til að horfa á af lista sem stjórn­andi kvik­mynda­klúbbs í borg­inni minni setti á sam­fé­lags­miðla. Að ég skuli vera ein að horfa á bíó­mynd heima hjá mér í miðjum heims­far­aldri kallar á gam­an­mynd. For­set­inn til­kynnir að útgöngu­bannið sem átti að ljúka eftir tvo daga verði fram­lengt til 13. apríl, eftir páska. Það þýðir að við erum ekki einu sinni hálfnuð. Eftir lófatak kvölds­ins ríkir algjör þögn. Klukkan 1 eftir mið­nætti vakna ég við hávaða og fer út á svalir: Tveir karl­menn hlaupa eftir yfir­gef­inni göt­unni og kasta rusla­pok­unum okkar upp í vöru­bíl í lausa­gangi.“

30. mars 2020

„Það fyrsta sem ég heyri í útvarp­inu á meðan ég drekk morgun-mate-ið mitt er að stór­fyr­ir­tæki eru byrjuð að segja upp starfs­fólki sínu. Stétt­ar­fé­lögin kvarta og rík­is­stjórnin full­yrðir að fyr­ir­tækin verð sektuð. Ég er að skrifa grein fyrir tíma­rit í Buenas Aires og ver deg­inum í að taka við­töl við fólk og félaga­sam­tök sem reka mötu­neyti í fátækra­hverfum Kórdóbu. Sögur þeirra eru allar á sömu leið: Fólkið má ekki fara út til að vinna fyrir sér. Það er svangt og það er ekki til nógu mik­ill matur fyrir alla. Klukkan sex ber­ast öskur og læti inn til mín. Ég finn mér pott og skeið og læt líka heyra í mér út um glugg­ann. Sú sem stendur fyrir hávað­anum lét orðið ber­ast um sam­fé­lags­miðla. Við mót­mælum kyn­bundnu ofbeldi heiman frá okkur. Eftir 11 daga útgöngu­bann hafa 12 konur verið myrtar í land­inu og til­kynn­ingum kvenna sem eru lok­aðar inni með árás­ar­mönnum sínum fjölgar. Það er komið haust en plönt­urnar á svöl­unum mínum blómstra enn, fjólu­bláu og rauðu. Ég anda þeim djúpt að mér.“

31. mars 2020

„Útgöngu­bann­inu átti að ljúka í dag en eftir til­kynn­ingu for­set­ans í gær er þetta bara enn einn dag­ur­inn. Það eru tvær vikur fram undan í útgöngu­banni og nú þegar gengur sagan að þetta komi til með að vara enn lengur. Á meðan átta­tíu mann­eskjur eru smit­aðar af kór­óna­vírusnum í Kordóba herjar annar far­aldur á þús­undir ann­arra í hér­að­inu: Bein­bruna­sóttin. Þetta er veiki sem smit­ast með moskítóflugum og hefur mest áhrif á fátæk­asta fólkið í land­inu sem býr ekki við hrein­læti. Kannski er það af því að þau eru fátæk að lítið er talað um þetta og fólkið sem þjá­ist af sótt­inni fær ekki heil­brigð­is­þjón­ustu?

„Eftir 11 daga útgöngu­bann hafa 12 konur verið myrtar í land­inu“

Ég fer inn á heima­bank­ann minn til þess að leggja mitt af mörkum til að halda mötu­neytum fátækra­hverf­anna starf­andi en finn ekki fyrir neinu nema van­mætti. Ég hef ekki mestar áhyggjur af heims­far­aldr­inum lengur, heldur af hungr­inu. Í nokkrum borgum byrja að ber­ast sögur um grip­deildir en þær hafa ekki verið stað­festar. Úr trompet­inu hljómar lag­lína My Way hans Frank Sinatra og bland­ast saman við lófatak fólks­ins sem heiðrar heil­brigð­is­starfs­fólk. En í kvöld finnst mér ég vera langt í burtu frá nágrönnum mínum. Það eina sem ég heyri er rödd vinar míns í sím­anum. Hann veltir því fyrir sér hvernig er hægt að heim­færa þessa nýfæddu sam­fé­lags­næmi sem fædd­ist með heims­far­aldr­inum yfir á sára­fá­tæka fólkið sem býr aðeins nokkrum húsa­röðum héðan og fær ekki nokkra heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta COVID-19 far­ald­ur­inn og lands­menn virð­ast nú súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla hans virð­ist stjórn­laus. New York-ríki hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi, býr.
Dagbækur úr útgöngubanni: „Ekkert verður aftur eins og það var“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Dagbækur úr útgöngu­banni: „Ekkert verður aftur eins og það var“

Róttækar breyt­ingar á dag­legu lífi eru nú veru­leiki fólks um heim allan. Söknuður eftir hvers­dags­lífi, vinum og fjöl­skyldu, ótti við hið ókunna, atvinnu­ó­ör­yggi og tor­tryggni í garð yfir­valda er meðal þess sem lesa má úr dag­bók­ar­færslum sex jarð­ar­búa, skrif­aðar á sjö dögum. Allir búa þeir við útgöngu­bann á sínum bletti jarð­ar­kúl­unnar. En þrátt fyrir að allir lifi þeir nú tíma sem eiga sér enga hlið­stæðu í sög­unni njóta þeir í auknum mæli feg­urðar þess ein­falda, finna til djúp­stæðs náunga­kær­leika og vilja síður snúa aftur til þess mynsturs sem ein­kenndi líf þeirra áður en veiran tók það yfir.
Straujar peningaseðlana til að drepa veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Straujar pen­inga­seðl­ana til að drepa veiruna

Mikil óvissa ríkir hjá íbúum Ung­verja­lands um það hvað stór­aukin völd stjórn­valda í kjöl­far laga­breyt­ingar hafi í för með sér. Einn þeirra er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands. Líf þeirra hefur koll­varp­ast á skömmum tíma. Herald er einn sex jarð­ar­búa sem deila dag­bókum sínum úr útgöngu­banni með les­endum Stund­ar­innar.
Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Býst ekki við að börnin snúi aftur í skól­ann á þessu ári

Í Kata­lóníu hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, eru íbúar ugg­andi enda stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið vegna kór­óna­veirunnar illa. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir. Hún deilir hér dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar.
„Getum við farið?“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Getum við farið?“

Í Marra­kesh í Marrokkó búa hjónin Birta og Othman með dætur sínar fjórar. Þarlend yfir­völd brugð­ust hraðar við COVID-vánni en mörg nágranna­ríkin, settu meðal ann­ars á strangt útgöngu­bann og aðrar hömlur á dag­legt líf. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir deilir dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar. Í henni má meðal ann­ars lesa að fjöl­skyldan hafði hug á að koma til Íslands á meðan á heims­far­aldr­inum stendur, sem hefur reynst erfitt hingað til.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár