Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári

Í Kata­lóníu hefur verið strangt úti­vist­ar­bann í gildi frá því um miðjan mars. Þar, eins og víðar í land­inu, eru íbúar ugg­andi enda stand­ast heil­brigð­is­stofn­anir álagið vegna kór­óna­veirunnar illa. Í Barcelona býr Judit Porta, blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari, með eig­in­manni og tveimur börnum. Þau búa í lít­illi íbúð í Gracia-hverf­inu og hafa ekki stigið út fyrir húss­ins dyr svo vikum skiptir. Hún deilir hér dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar.

Býst ekki við að börnin snúi aftur í skólann á þessu ári

25. mars 2020

„Þetta er fimmt­ándi dag­ur­inn sem við erum lokuð inni á heim­ili okkar. Við erum fjögur. Börnin brosa og ærsl­ast um íbúð­ina. Eftir morg­un­mat eiga þau að læra heima eftir þeim fyr­ir­mælum sem ber­ast frá skól­anum þeirra dag­lega. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er hrygg frá því far­ald­ur­inn hófst. Pabbi var að hringja í mig til að segja mér frá því að föð­ur­bróðir minn hafi greinst með COVID-19 og hafi verið lagður inn á gjör­gæslu. Ég get ekki ímyndað mér and­lát án hinstu kveðju. Talan yfir fjölda lát­inna og smit­aðra á Spáni hækkar stjórn­laust. Í dag eru 4.089 dánir og 56.188 smit­aðir, sam­kvæmt opin­berum tölum. Tölurnar verða hærri á morgun. For­sæt­is­ráð­herr­ann, Pedro Sánchez, hefur ekki enn fyr­ir­skipað algjöra ein­angrun á lands­vísu. Ég hef á til­finn­ing­unni að þeir vilji frekar að fólkið lát­ist heldur en efna­hags­lífið veik­ist. Það lítur út fyrir að Spánn fylgi for­dæmi Donalds Trump. Það hjálpar mér að horfa á hverjum degi á risa­vax­inn sítru­svið­inn sem breiðir úr sér fyrir framan glugg­ann hjá okkur. Ég held að þetta séu tvö tré sem hafa verið svo lengi í faðm­lögum að nú er ómögu­legt að þekkja þau í sundur. Í dag sá ég í því fugla í hreið­ur­gerð. Þvílík gleði! Dagurinn hófst í sól­skini. Nú byrjar að rigna. Ég tek þvott­inn af snúr­unni.“ 

Mann­laust torg

26. mars 2020

„Í dag tal­aði ég í síma við frænku mínu, Gemmu Mateus, sem er hjarta­læknir á spít­al­anum í Bell­vitge í Barcelona. Ég fékk hnút í mag­ann. Það er ekki nógu mikið pláss á gjör­gæsl­unni til að sinna öllum sjúk­ling­unum. Svo margir hafa sýkst að það hefur lamað heil­brigð­is­kerfið. Rík­is­stjórnir Spánar og Kata­lóníu hafa á und­an­förnum árum leyft heil­brigð­is­kerf­inu að hrynja og núna treysta þeir á heil­brigð­is­starfs­fólk eins og her­menn í fremstu víg­línu. Þvílík skömm. Jesús, sam­býl­is­maður minn, er að baka. Við hömstr­uðum ekki mat­vöru eins og svo margir aðrir, jafn­vel þó að við ótt­umst það versta. Á morgun verður kaka í morg­un­mat! Ég er blaða­maður og menn­ing­ar­miðl­ari. Að und­an­förnu hefur menn­ing­ar­lífið sýnt á sér gjaf­mildu hlið­ina og boðið ýmsa ókeypis við­burði á net­inu. Bransi sem hið opin­bera hefur gert lítið úr veitir inni­lok­uðum sálum neyð­ar­að­stoð. Þvílík skömm! Frændi minn sem er sýktur af COVID er ennþá á gjör­gæslu og ástand hans er alvar­legt. Klukkan er orðin fimm. Samkvæmt rútín­unni er nú komið að Jane Fonda-æfingum. Ég hef stundað þær í tvær vikur og fylgi nú æfingum fyrir lengra komna. Ég fer í leik­fimi­fötin mín. Börnin mín klæð­ast þegar íþrótta­fötum. Ég elska þegar Jane Fonda segir: „Resist!“ 

Mæðgur

27. mars 2020

Aldrei hafa fleiri lát­ist á einum degi á Spáni: 832 á 24 tímum.“ Þannig er fyr­ir­sögnin á for­síðu El País klukkan 16.16. Ég les í vef­út­gáfu La Vangu­ar­dia að vinnu­mála­ráð­erra Spánar greinir frá því að atvinnu­leys­is­bætur hafi náð hæstu hæðum. Simó, eldra barnið mitt sem er 10 ára, var í bolta­leik og eyði­lagði óvart fígúru úr Dragon Ball-safn­inu sínu. Hann hrundi saman. Ég man ekki eftir því að hafa séð hann gráta svona mikið, nokkurn tím­ann. Á meðan pabbi hans hug­hreysti hann hugs­aði ég um þann til­finn­inga­lega skaða sem hlýst af þessum heims­far­aldri, bæði fyrir ein­stak­linga og sam­fé­lagið. Við eigum ekki bara eftir að þurfa að end­ur­reisa efna­hags­kerfið, heldur mann­eskjur líka, sam­fé­lög.

„Ég man ekki eftir því að hafa séð hann gráta svona mikið, nokkurn tím­ann“

Við erum alltaf með kveikt á útvarp­inu. Það tengir okkur umhverf­inu, meira núna en nokkru sinni. Já, við erum ímyndin fjöl­skyld­unnar sem situr límd við útvarpið, eins og í seinni heims­styrj­öld­inni. Frétt­irnar eru ekki allar slæmar. Í dag voru sagðar fréttir af litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum, sem með hraða og ótrú­legri aðlög­un­ar­hæfni hafa breytt starf­semi sinni og hafa nú tvö­falt mark­mið: Að koma í veg fyrir að fara á haus­inn sjálf en berj­ast í leið­inni gegn far­aldr­inum. Hrukku­kremið mitt er búið. Undir venju­legum kring­um­stæðum færi ég út á götu til að kaupa nýja krukku, en þetta eru ekki dagar lág­kúru. Sem betur fer á ég á svöl­unum ynd­is­lega Aloe Vera-plöntu sem hefur verið í fjöl­skyld­unni í margar kyn­slóðir. Hún gefur mér raka þessa dag­ana og er ánægð með að verða til gagns. 

28. mars 2020

„Loksins hefur rík­is­stjórn Spánar tekið ákvörðun um að stöðva alla starf­semi sem ekki er bráð­nauð­syn­leg í land­inu, frá og með mánu­degi. Þannig hefur það verið hér í Kata­lóníu frá því að form­lega var lýst yfir heims­far­aldri. Líkt og ég geri alla daga hringdi ég í pabba. Hann er 79 ára og býr einn. Hann er verk­fræð­ingur en er mik­ill heim­spek­ingur í sér, meðal ann­ars vegna aðdá­unar sinnar á löngum göngut­úrum, sem hann klárar nú sam­visku­sam­lega inni í 90 fer­metra íbúð­inni sinni. Í dag spurði hann mig: „Af hverju tölum við um inni­lokun fyrst núna, þegar við erum í raun og veru alltaf inni­lokuð? Í íbúðum okkar, í vinn­unni, í borg­unum. Ginebra, dóttir mín sem er sjö ára, er búin að finna geisla­diska­safnið mitt. Hún bað mig að hlusta á tón­list með sér. Sem betur fer á ég ennþá geisla­diska­spil­ar­ann minn. Við döns­uðum af krafti við Radi­ohead, Pixies, The Cardigans. Ég deildi líka með henni und­ar­legri aðdáun minni á söng­leikjum Andrew Lloyd Webber. Ég skemmti mér stór­kost­lega. Klukkan átta um kvöldið fórum við upp á þaksval­irnar og klöpp­uðum fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki. Þetta er orðin helgi­at­höfn sem við end­ur­tökum á hverjum degi, alltaf á sama tíma. Við klöppum í sam­hljómi með hund­ruðum ann­arra sem frá þökum sínum, svölum og bak­görðum stappa stál­inu í lækn­ana, hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana og hitt heil­brigð­is­starfs­fólkið, svo það geti haldið áfram bar­átt­unni gegn þessum ósýni­lega, lit­lausa og þögla óvini. Þetta er allt svo und­ar­legt.“

29. mars 2020

Maðurinn minn þarf að fara út að kaupa í mat­inn. Hann reynir að fara einu sinni í viku. Hann fer út á götu í latex­hönskum, með grímu fyrir and­lit­inu og með gler­augu. Þegar hann kemur aftur heim sótt­hreinsar hann allar vör­urnar, bæði þær pökk­uðu og þær fersku. Svo fer hann úr öllum föt­unum, lokar þau ofan í poka og fer svo í sturtu. Í þessu fylgjum við leið­bein­ingum heil­brigð­is­yf­ir­valda. Það tekur tíma að kaupa inn. Krakk­arnir hafa ekki farið í skól­ann síðan 13. mars en þau sækja staf­rænar kennslu­stundir og fá heima­vinnu frá skól­anum. Ég á ekki von á að þau snúi aftur þangað á þessu ári. Ég ótt­ast að mennta­kerfið eigi eftir að versna við þessa kreppu, sem herjar bæði á heilsu og efna­hag.

„Hann fer út á götu í latex­hönskum, með grímu fyrir and­lit­inu og með gler­augu“

Ég lýk deg­inum með því að lesa úrval af bestu sögum hans Chekhovs og ímynda mér rúss­neska lækn­inn skrifa af sinni ein­stöku skerpu og ein­fald­leika um hvers­dags­leika heim­il­anna meðan á inni­lok­un­inni stendur. Til­hugs­unin gerir mig dapra. Nágranni minn leikur á píanóið af meiri ákafa en áður. Hann hefur breytt efn­is­skránni. Áður hljóm­aði Mánaskin Debussy, nú er það Mamma, hans Freddie Mercury. 

30. mars 2020

Ég las hríf­andi grein um dag­inn. Sögu 89 ára gam­als afa, Don Rafael, sem flúði hjúkr­un­ar­heim­ilið þar sem hann bjó, til þess að koma í veg fyrir að hans tími kæmi. Sá gamli komst svo að því að margir vina hans höfðu lát­ist úr COVID-19. Ég komst ekki hjá því að hugsa um Gaml­ingj­ann sem skreið út um glugg­ann og hvarf eftir Jonas Jonasson. Annar rign­ing­ar­dagur og veð­ur­stofan spáir vatns­veðri alla vik­una. Við munum ekki geta farið upp á þaksval­irnar með tjald­stól­ana okkar til að njóta sól­ar­innar þessa vik­una. Á Spáni eru 849 látnir til við­bótar og aftur er met slegið. Rík­is­stjórnin sam­þykkir aðgerðir til að styðja við efna­hags­lífið. Eftir að þetta er allt saman yfir­staðið þarf að taka djúpa umræðu um hvers konar land við viljum vera. Við höfum tekið ákvörðun um að planta tré í íbúð­inni. Stóru tré með vor­blómum á. Sagt er að ef þú faðmir tré líði þér betur. Við eigum engan garð, né nokkra mold en við eigum hvítan vegg, máln­ingu og ímynd­un­ar­afl. 

31. mars 2020

Síðasta færslan í þessa dag­bók. Það eru margir mán­uður fram undan, áður en ástandið verður aftur eðli­legt. Ég vona – og það segi ég af ein­lægni – að það verði annar veru­leiki en sá sem var, áður en þessi heims­far­aldur hófst, með sínum afleið­ingum fyrir heilsu, sam­fé­lag og efna­hag, sem enn er óljóst hverjar verða. En ég ótt­ast að minni okkar muni slævast og þynn­ast út og að við verðum ófær um að rök­ræða og skapa nýjar sviðs­myndir og ný tæki­færi. Ég er skept­ísk vegna þess að rík­is­stjórnir okkar forð­ast sjálfs­skoðun og sam­fé­lagið er upp­tekið af því að kom­ast upp úr efna­hag­skrepp­unni. Núna tengj­umst við hvert öðru í gegnum sýnd­ar­veru­leika og mér finnst það hörmu­legt. Í dag sat ég fjar­kennslu­stund í menn­ing­ar­fræði. Fimmtán mann­eskjur tengdar í fjórar klukku­stundir, gagn­gert til að rök­ræða mál­efni safna. En engar rök­ræður áttu sér stað og það fannst mér hug­hreystandi. Við erum teg­und sem þarfn­ast raun­veru­legs staðar til að eiga í sam­ræðum og gera til­raunir. Ég loka dag­bók­inni í íbúð­inni minni í Gracia í Barcelona, þar sem stöðug þögn ríkir á götum og torgum. Á morgun kemur nýr dagur, svip­aður þeim í dag: Fjar­vinna, börnin læra heima, ég geri leik­fimi og les. Hann verður lit­aður af djúpum sökn­uði til vina okkar og fjöl­skyldu. Ég ber þá von í brjósti að fram­tíðin verði öðru­vísi. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Það er svo mikil þögn þarna úti“

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum fóru hægt af stað með aðgerðir til að hefta COVID-19 far­ald­ur­inn og lands­menn virð­ast nú súpa nú seyðið af því, þegar útbreiðsla hans virð­ist stjórn­laus. New York-ríki hefur hingað til farið verst út úr far­aldr­inum en til­fell­unum fjölgar hins vegar hratt í fleiri ríkjum, meðal ann­ars í Los Angeles þar sem Siobhan Murphy, rit­höf­undur og fram­leið­andi, býr.
Dagbækur úr útgöngubanni: „Ekkert verður aftur eins og það var“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Dagbækur úr útgöngu­banni: „Ekkert verður aftur eins og það var“

Róttækar breyt­ingar á dag­legu lífi eru nú veru­leiki fólks um heim allan. Söknuður eftir hvers­dags­lífi, vinum og fjöl­skyldu, ótti við hið ókunna, atvinnu­ó­ör­yggi og tor­tryggni í garð yfir­valda er meðal þess sem lesa má úr dag­bók­ar­færslum sex jarð­ar­búa, skrif­aðar á sjö dögum. Allir búa þeir við útgöngu­bann á sínum bletti jarð­ar­kúl­unnar. En þrátt fyrir að allir lifi þeir nú tíma sem eiga sér enga hlið­stæðu í sög­unni njóta þeir í auknum mæli feg­urðar þess ein­falda, finna til djúp­stæðs náunga­kær­leika og vilja síður snúa aftur til þess mynsturs sem ein­kenndi líf þeirra áður en veiran tók það yfir.
Straujar peningaseðlana til að drepa veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Straujar pen­inga­seðl­ana til að drepa veiruna

Mikil óvissa ríkir hjá íbúum Ung­verja­lands um það hvað stór­aukin völd stjórn­valda í kjöl­far laga­breyt­ingar hafi í för með sér. Einn þeirra er Herald Magyar, rit­höf­undur, þýð­andi, leik­ari og lista­maður frá Ung­verja­landi, sem býr ásamt eig­in­konu sinni í litlu húsi í útjaðri smá­bæjar í norð­ur­hluta Ung­verja­lands. Líf þeirra hefur koll­varp­ast á skömmum tíma. Herald er einn sex jarð­ar­búa sem deila dag­bókum sínum úr útgöngu­banni með les­endum Stund­ar­innar.
Óttast hungrið meira en veiruna
VettvangurDagbók í útgöngubanni

Óttast hungrið meira en veiruna

Stjórn­völd í Argent­ínu hafa stært sig af því að hafa brugð­ist hratt við ógn­inni sem stafar af COVID-19. Frá því 19. mars hefur útgöngu­bann verið í gildi þar. Lucia Maina Waisman er blaða­maður, sam­fé­lags­miðl­ari, kenn­ari og bar­áttu­kona fyrir mann­rétt­indum, sem er búsett í borg­inni Kordóba í Argent­ínu. Hún deilir dag­bók­ar­færslum sínum með les­endum Stund­ar­innar.
„Getum við farið?“
VettvangurDagbók í útgöngubanni

„Getum við farið?“

Í Marra­kesh í Marrokkó búa hjónin Birta og Othman með dætur sínar fjórar. Þarlend yfir­völd brugð­ust hraðar við COVID-vánni en mörg nágranna­ríkin, settu meðal ann­ars á strangt útgöngu­bann og aðrar hömlur á dag­legt líf. Þrátt fyrir aðgerð­irnar hefur til­fellum kór­óna­veirunnar fjölgað þar hratt á und­an­förnum dögum. Birta Ár­dal Nóra Berg­steins­dótt­ir deilir dag­bók sinni með les­endum Stund­ar­innar. Í henni má meðal ann­ars lesa að fjöl­skyldan hafði hug á að koma til Íslands á meðan á heims­far­aldr­inum stendur, sem hefur reynst erfitt hingað til.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár