Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

GerðarStundin klukkan 13: Skapandi fjölskyldusmiðja

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur fyrsta Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

GerðarStundin Myndlistarmennirnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunnarsson og Una Margrét Árnadóttir leiða skapandi fjölskyldusmiðju í Stúdíói Gerðar.

Stundin mun á næstu vikum senda út menningarviðburði í samstarfi við Menningarhúsin í Kópavogi. Viðburðirnir verða haldnir klukkan 13 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum á meðan samkomubanni stendur vegna COVID-19 heimsfaraldursins. Hægt verður að sjá viðburðina á forsíðu Stundarinnar, á Facebook-síðu Stundarinnar og Facebook-síðu Menningarhúsanna í Kópavogi.

Meðal þeirra sem koma fram í viðburðaröðinni eru Sævar Helgi Bragason stjörnufræðingur, Gerður Kristný skáld,  Jógvan, Matti Matt, Vignir Snær, Ragna Fróðadóttir, Andri Snær Magnason rithöfundur, Sigurbjörn Bernharðsson, Halla Oddný, Þorgrímur Þráinsson, Elín Björk Jónasdóttir, Einar Falur, Kordo kvartettinn og Hrönn Egilsdóttir.

Í dag verður fyrsta GerðarStundin send út frá Gerðarsafni þar sem myndlistarmennirnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunnarsson og Una Margrét Árnadóttir leiða skapandi fjölskyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Þau koma með skemmtilegar hugmyndir sem börn og fullorðnir geta búið til úr einföldum og aðgengilegum efnivið heima hjá sér. Útsendingin hefst klukkan 13. Streymi af viðburðinum verður birt í þessari frétt og á fyrrgreindum Facebook-síðum ásamt forsíðu Stundarinnar. Þá verður upptaka tiltæk á sömu stöðum í kjölfarið.

Eftirfarandi er tilkynning frá menningarhúsunum í Kópavogi um viðburðinn:

Kúltúr klukkan 13 | GerðarStundin

Föstudaginn 3. apríl kl. 13 verður fyrsta GerðarStundin send út frá Gerðarsafni þar sem myndlistarmennirnir Bergur Thomas Anderson, Logi Leó Gunnarsson og Una Margrét Árnadóttir leiða skapandi fjölskyldusmiðju í Stúdíói Gerðar. Þau koma með skemmtilegar hugmyndir sem börn og fullorðnir geta búið til úr einföldum og aðgengilegum efnivið heima hjá sér.

Fólk er hvatt til að deila listaverkum sínum með öllum með því að taka mynd og deila á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #gerdarstundin.

GerðarStundin gefur fólkinu í landinu góðar hugmyndir fyrir samverustundir með börnunum þar sem allir fá tækifæri til að skapa saman!

Í þessum fyrsta þætti munu þau Bergur, Logi og Una kenna áhorfendum að búa til skúlptúra, annars vegar úr salernisrúllum og matarlit og hins vegar úr kartöflum, grillpinnum og álpappír.

Nánar um umsjónarmennina:

Bergur Thomas Anderson er myndlistar- og tónlistarmaður frá Reykjavík. Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2011 og stundaði framhaldsnám við Master Artistic Research deildina í Royal Academy of Art the Hague í Hollandi, þaðan sem hann útskrifaðist 2017. Verk hans kynna skáldaða heima og persónur í gegnum tóna og tal, keramík, teikningar og textíl. Bergur hefur sýnt víða innanlands sem erlendis. Hann hefur haldið fjölskyldusmiðjur fyrir Gerðarsafn og á eigin vegum.

Una Margrét Árnadóttir útskrifaðist með meistaragráðu frá Listaháskólanum í Malmö árið 2013 og hefur starfað við myndlist síðan þá. Hún hefur sýnt víðsvegar bæði hérlendis og erlendis. Samhliða myndlistinni hefur hún m.a kennt við Myndlistarskóla Reykjavíkur, sýningarstýrt í Harbinger ásamt því að sinna barna- og unglingafræðslu fyrir Listasafn Reykjavíkur. Auk þess má geta að Una er einn af aðstandendum sýningarýmisins OPEN í Reykjavík. 

Logi Leó Gunnarsson útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2014. Hann vinnur í ýmsa miðla, en flest verka hans gefa frá sér hljóð. Logi hefur sýnt víða, en nýlegar sýningar sem hann hefur tekið þátt í eru Hljóðön – sýning tónlistar í Hafnarborg og Deep Inside: fimmta alþjóðlega tvíæringnum fyrir unga myndlistarmenn í Moskvu. Logi Leó hefur starfað fyrir fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur ásamt því að hafa sinnt ýmsum verkefnum fyrir Gerðarsafn og Listasafn Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kúltúr klukkan 13

GerðarStundin klukkan 13: Mósaík úr matvælum
MenningKúltúr klukkan 13

Gerð­ar­Stund­in klukk­an 13: Mósaík úr mat­væl­um

Stund­in send­ir út menn­ing­ar­við­burði á veg­um Menn­ing­ar­hús­anna í Kópa­vogi á með­an sam­komu­banni stend­ur. Í dag verð­ur þriðja Gerð­ar­Stund­in send út frá Gerð­arsafni þar sem mynd­list­ar­menn­irn­ir Berg­ur Thom­as And­er­son, Logi Leó Gunn­ars­son og Una Mar­grét Árna­dótt­ir leiða skap­andi fjöl­skyldu­smiðju í Stúd­íói Gerð­ar. Út­send­ing­in hefst klukk­an 13.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Erla Björg hættir sem ritstjóri: „Stundum hef ég þurft að minna mig á æðruleysið“
2
Innlent

Erla Björg hætt­ir sem rit­stjóri: „Stund­um hef ég þurft að minna mig á æðru­leys­ið“

Erla Björg Gunn­ars­dótt­ir er hætt sem rit­stjóri á frétta­stofu Sýn­ar. Í færslu á sam­fé­lags­miðl­um seg­ir hún að í ár­anna rás hafi hún unn­ið eins og hún gat með sí­breyti­leg­an far­veg þar sem hún hafi stund­um þurft að minna sig á æðru­leys­ið og hverju hún gæti stjórn­að. „Eft­ir marga slíka hringi kem­ur að þeim tíma­punkti að það er best að kveðja og hleypa nýj­um kröft­um í bar­átt­una.“

Mest lesið í mánuðinum

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“
5
Innlent

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörð­inni“

Und­ir­skrifta­söfn­un er haf­in til að mó­mæla fram­kvæmd­um í Skafta­felli. Fund­ur um breyt­ing­ar fram­kvæmd­anna var hald­inn um há­sum­ar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ seg­ir íbúi á svæð­inu. Íbú­ar ótt­ast að sam­keppn­is­hæfni muni minnka ef fyr­ir­hug­uð ferða­g­ist­ing rís. „Ég sé ekki ann­að en að þetta auki tekj­ur og at­vinnu á svæð­inu,“ seg­ir Pálm­ar Harð­ar­son, sem stend­ur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Advent­ur­es.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár