Fór með hjartað í buxunum á fund átrúnaðargoðsins

Fyrir nokkrum mán­uðum, þegar Þóri Snæ Sig­urð­ar­syni áskotn­að­ist allra fyrsta hljóm­platan sem Ragnar Bjarna­son söng inn á, lét hann slag standa og hringdi í átrún­að­ar­goð sitt í þeirri von að fá áritun. Raggi tók vel á móti Þóri á heim­ili sínu, árit­aði plöt­una, sagði honum bransa­sögur og kvaddi að lokum með orð­unum: „Gangi þér vel, elskan!“

Þórir Snær
Þórir Snær Hann á flestar plöt­urnar sem Raggi Bjarna söng inn á í gegnum tíð­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þegar Þórir Snær Sig­urð­ar­son var sextán ára gam­all og nýbyrj­aður í fjöl­brauta­skól­anum Flens­borg varð tón­list­ar­mað­ur­inn Ragnar Bjarna­son sjö­tugur. Þórir Snær þekkti á þeim tíma lítið til Ragga, en það átti heldur betur eftir að breyt­ast eftir eitt mennta­skóla­ball þar sem Raggi var að skemmta. „Á þessum árum fékk hann þetta rosa­lega come-back í brans­ann og verður allt í einu einn af aðal­gaur­unum. Hann verður vin­sæll á mennta­skóla­böllum, skemmtir á sal og svona. Ég las það ein­hvers staðar að hann hefði aldrei haft eins mikið að gera eins og milli sjö­tugs og átt­ræðs. Það eitt og sér er stór­merki­legt.“

Skemmst er frá því að segja að hinn sextán ára Þórir Snær kol­féll fyrir Ragga og varð upp frá því og til ævi­loka söngv­ar­ans ást­sæla hans dygg­asti aðdá­andi. Skipti þá engu að rúm­lega fimm­tíu ár skildu þá að í aldri. „Hann var svo flottur og aðlað­andi per­sónu­leiki. Kannski var það þessi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár