Hárgreiðslustofum lokað: „Við setjum bara upp nýja tísku“

„Ekki átti maður von á að upp­lifa þetta,“ segir Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir hár­greiðslu­meist­ari sem á og rekur hár­greiðslu­stof­una Greiðuna á Háa­leit­is­braut. Stofunni verður lokað á mið­nætti í kvöld, eins og öllum öðrum hágreiðslu­stofum á land­inu, og verða lokuð að minnsta kosti fram yfir páska vegna herts sam­komu­banns til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

„Það er mjög sér­stakt. Ekki átti maður von á að upp­lifa þetta,“ segir Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir hár­greiðslu­meist­ari. Hún hefur átt og rekið hár­greiðslu­stof­una Greiðuna á Háa­leit­is­braut und­an­farin 13 ár, en stofan var stofnuð fyrir meira 60 árum og þar starfa 5-6 að jafn­aði. Dyrum hennar verður lokað á mið­nætti í kvöld og verða lok­aðar að minnsta kosti fram yfir páska vegna herts sam­komu­banns til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar.

„Þetta er auð­vitað pínu sjokk. Ég er með nokkra í vinnu og maður þarf að spá í hvað maður gerir,“ segir Hrafn­hildur.

Í gær var til­kynnt um hertar tak­mark­anir á sam­komum og í því felst meðal ann­ars að starf­semi og þjón­ustu sem krefst mik­illar nálægðar við við­skipta­vini verður lokað frá og með mið­nætti í kvöld. Til slíkrar þjón­ustu telj­ast meðal ann­ars hár­greiðslu­stofur.

Heyrði fyrst  þessari ákvörðun í fréttum

Hrafn­hildur seg­ist hafa heyrt af þess­ari ákvörðun í fréttum eins og allir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár