Nauðsynlegar aðgerðir, segir Bogi Nils

Þeir 240 starfs­menn Icelandair, sem verður sagt upp, munu fá að vita það síðar í dag. Í til­kynn­ingu sem Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, sendi starfs­mönnum félag­ins núna í morgun segir að aðgerð­irnar hafi verið nauð­syn­legar.

Nauðsynlegar aðgerðir, segir Bogi Nils
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Félagið segir upp 240 starfs­mönnum og verður þeim, sem sagt verður upp, til­kynnt um það síðar í dag.

Þeir 240 starfs­menn Icelandair, sem verður sagt upp, munu fá að vita það síðar í dag.  Í til­kynn­ingu sem Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, sendi starfs­mönnum félag­ins núna í morgun segir að aðgerð­irnar hafi verið nauð­syn­legar.

Félagið sendi frá sér til­kynn­ingu í morgun þar sem fram kom að 240 starfs­mönnum yrði sagt upp störfum og að 92% starfs­manna þar myndu taka á sig skert starfs­hlut­fall.  Þessi hópur fellur undir úrræði um mót­fram­lag vegna skerst starfs­hlut­falls sem rík­is­stjórnin hefur kynnt. 

Þar sem upp­sagn­ar­frestur er greiddur hefur þessi leið, að svo margir taki á sig skert starfs­hlut­fall, betri áhrif á sjóðs­streymi félags­ins en upp­sagnir.

Í til­kynn­ing­unni til starfs­mann­anna segir Bogi að stærsti ein­staki kostn­að­ar­liður félags­ins sé launa­kostn­aður og því sé nauð­syn­legt að bregð­ast við í starfs­manna­málum þegar tekj­urnar minnki veru­lega. Óskað verði eftir því að starfs­menn skrifi undir tíma­bundna lækkun á starfs­hlut­falli með raf­rænu sam­komu­lagi. Þeir starfs­menn sem áfram verði í starfi muni lækka um 20% í launum, fram­kvæmda­stjórar um 25% og for­stjóri og stjórn um 30%.

„Ég legg áherslu á að þessar aðgerðir eru nauð­syn­legar til að tryggja fram­tíð­ar­rekstur félags­ins. Við höfum stað­ist ýmis konar áföll í gengum tíð­ina, hvort sem það hafa verið bar­átta við nátt­úru­öflin, efna­hagslægðir eða aðrir utana­að­kom­andi þættir. Það hefur tek­ist með sam­stöðu og útsjón­ar­semi og síð­ast en ekki síst þeim ein­staka bar­áttu­anda og krafti sem svo sann­ar­lega hefur sýnt sig und­an­farna daga og vikur. Ég er stoltur og þakk­látur að til­heyra þeirri öfl­ugu liðs­heild sem við myndum saman. Ég er sann­færður um að við munum kom­ast í gegnum þessar krefj­andi aðstæður og búa þannig í hag­inn að félagið geti gripið tæki­færi á mörk­uðum okkar þegar ástandið verður eðli­legt aftur,“  skrifar Bogi Nils.

„Ég er sann­færður um að við munum kom­ast í gegnum þessar krefj­andi aðstæður“

Eitt mikilvægasta fyrirtækið

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í við­tali á RÚV í morgun að ríkið yrði að stíga inn í í ein­hverri mynd, yrði röskun á flugi og öðrum sam­göngum og vöru­flutn­ingum til og frá land­inu. Hann sagði að fyr­ir­tækið væri að vinna með sínar eigin áætl­anir og byggja á sinni sterku lausa­fjár­stöðu. En hann hefði heyrt frá stjórn­endum félags­ins að þeir þyrftu að vera í stöð­ugu end­ur­mati á sinni stöðu vegna þess að það eru að birt­ast aðgerðir ein­stakra þjóð­ríkja. Hann ítrek­aði að stað­inn yrði vörður um sam­göngur til Íslands. „Ég er sam­mála því að þetta er eitt mik­il­væg­asta, ef ekki mik­il­væg­asta fyr­ir­tækið sem starfar á Íslandi í dag,“ sagði Bjarni.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu