Óráðsdraumar, drag og stóru spurningar lífsins

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 10.–23. jan­úar.

Óráðsdraumar, drag og stóru spurningar lífsins

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Ljósmyndahátíð Íslands 2020

Hvar? Höf­uð­borg­ar­svæðið
Hvenær? 16.–18. jan­úar
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði

Ljós­mynda­há­tíð Íslands hefur verið haldin annað hvert ár frá 2012. Markmið hátíð­ar­innar er að vinna að fram­þróun ljós­mynd­unar sem list­forms, en erlendir og íslenskir lista­menn og ljós­mynd­arar sýna verk á sex stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar á meðal er til­rauna­kennda sýn­ingin Afrit í Gerð­ar­safni sem kannar ann­marka ljós­mynda­mið­ils­ins; sýn­ingin Í ljós­mál­inu í Þjóð­minja­safn­inu sýnir hvernig Gunnar heit­inn Pét­urs­son fang­aði ljós og hreyf­ingu í myndum sínum; sýn­ing Valdi­mars Thoralacius … í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur er í senn heim­ild um lífið í þorp­inu og sjón­ræn túlkun af þeirri ver­und; í Hafn­ar­borg nálg­ast þrír ljós­mynd­arar við­kvæma nátt­úru af alúð í sýn­ing­unni Þögult vor.

Meistarinn og Margaríta

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 10. jan.–1. feb.
Aðgangs­eyrir: frá 3.000 kr.

Skáldsagan Meist­ar­inn og Margar­íta er ein af ást­sæl­ustu skáld­verkum 20. ald­ar­innar. Þessi hnyttna og beitta háðsá­deila um eilífa bar­áttu góðs og ills og heim­sókn kölska til Moskvu er vin­sælt verk­efni leik­húsa víða um heim og birt­ist hér í nýrri leik­gerð sem var frum­flutt á Dramaten í Svíþjóð árið 2014.

Nokkur uppáhalds verk

Hvar? Nýlista­safnið
Hvenær? 10. jan - 23. feb
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Nýlista­safnið á stærstu saf­n­eign af sjálf­stæðu söfnum eða rýmum á Íslandi, en í þess­ari sýn­ingu eru valin verk sem eru í upp­á­haldi saf­n­eign­ar­full­trúa dregin fram og stillt upp án þess að gerð sé krafa um að þau passi inn í fyrir fram valið sam­hengi. Það er ekki þar með sagt að þau tali ekki saman.

Krossfest I

Hvar? Andrými
Hvenær? 11. jan­úar kl. 19.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Tón­leika­ser­ían Kross­fest er í senn upp­hit­unar- og fjár­öfl­un­ar­kvöld fyrir Norð­an­paunk, DIY árs­há­tíð pönk­ara þar sem spiluð er erfið tón­list fyrir gott fólk. Á þessu kvöldi koma fram pönk­sveitin D7Y, ungu rokk­ar­arnir í Gróu sem unnu Kraumsverð­launin 2019, bíl­skúrs­rokk­ar­arnir í Phlegm og gjörn­inga­sveitin GÓÐxÆRI. Engum verður vísað frá vegna fjár­skorts.

Mikael Lind útgáfutónleikar

Hvar? Mengi
Hvenær? 11. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Mikael Lind hefur gefið út fjölda platna af til­rauna­kenndri ambient tón­list sem fer ann­að­hvort í átt­ina að hljóð­heimi Warp raf­tón­listar eða að nútíma klass­ískri tón­list. Snemma á árinu 2019 skrif­aði Mikael tón­list með fiðlu­leik­ar­anum og tón­skáld­inu Hoshiko Yamane úr hljóm­sveit­inni Tan­gerine Dream og afrakst­ur­inn varð platan Spaces in Between.

Drag-Súgur: Söngleikur

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 11. jan­úar kl. 21.30
Aðgangs­eyrir: 2.900 kr.

Dragdrottn­ing­arnar (og -kon­ung­arnir) í hópnum Drag-Súgur fagna nýju ári með sér­stakri sýn­ingu þar sem þemað er söng­leikir í öllum sínum fjöl­breyttu myndum. Búast má við gríni og glensi, sam­fé­lags­á­deilum, metn­að­ar­fullum til­þrifum og hugs­an­lega ofgnótt af gor­djöss dans- og söng­at­riðum.

Svartir Sunnudagar: Dead Ringers

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 12. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Kanadíski leik­stjór­inn David Cronenberg er þekkt­astur fyrir súr­r­eal­ískar hryll­ings­myndir þar sem mörk á milli raun­veru­leik­ans og óráðs­drauma eru óskýr. Dead Ringers er einmitt slík mynd, en hún fjallar um ást­ar­þrí­hyrn­ing ein­eggja tví­bura og frægrar leikkonu, vímu­efni, kyn­líf, sam­skipti kynj­anna, brotna sjálfs­mynd og geð­veiki. Myndin er inn­blásin af sannri sögu.

Eyður

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 15. & 20. jan­úar kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 6.200 kr.

Í Eyðum skoðar sviðs­lista­hóp­ur­inn Marm­ara­börn sam­bandið milli eyja og minnis. Hver staður hefur minni, hvert ein­asta sker marglaga mörg þús­und ára sögu og líkt skerja­garð­inum eru minn­ingar okkar bara efstu lögin á djúp­skornu neð­an­sjáv­ar­lands­lagi. Hvers er minnst og hverju reynum við að gleyma í sög­unni um okkur?

Sinfó: Ungir einleikarar

Hvar? Harpa
Hvenær? 16. jan­úar kl. 19:30
Aðgangs­eyrir: frá 2.600 kr.

Ár hvert fer fram keppni ungra ein­leik­ara þar sem upp­renn­andi nem­endur fá að leika konsert eða syngja ein­söng með Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Fjórir ungir ein­leik­arar keppa í ár, allir á sitt­hvoru hljóð­færi. Stjórn­andi tón­leik­anna er hin finnska Anna-Maria Helsing, en hún var fyrsta konan til að vera aðal­stjórn­andi í sin­fón­íu­hljóm­sveit í Finn­landi.

Af fingrum fram: Jónas Sig

Hvar? Salurinn
Hvenær? 16. & 17. jan­úar kl. 20.30
Aðgangs­eyrir: 5.500 kr.

Fyrrum Sól­strandagæinn Jónas Sig hóf sól­ó­feril sinn 2007, en hann hefur vakið mikla athygli fyrir bein­skeytta texta og til­finn­inga­þrungna tón­list þar sem er fjallað á opin­skáan máta um þung­lyndi og áskor­anir lífs­ins. Hann mætir í Salinn þar sem hann tekur þátt í spjalltón­leika­röð­inni Af fingrum fram.

Mannfjöldinn hverfur sporlaust um stund

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 16. jan­úar–8. mars
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Titill sýn­ing­ar­innar dregur heiti sitt af töfra­bragði David Copperfields þar sem hann lætur hóp áhorf­enda hverfa fyrir augum ann­arra áhorf­enda og birt­ast á ný á öðrum stað. Mynd­list­ar­konan Una Björg Magn­ús­dóttir gerir ekki slíka til­raun á sýn­ing­unni en hún varpar fram hug­myndum um skyn­villu og blekk­ingar í inn­setn­ingu sinni sem er aðlað­andi en frá­hrind­andi á sama tíma. 

Röð og regla: Skissa að íslenskri samtímalistasögu [IV]

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 16. jan­úar–17. maí
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Þessi sýn­ing er fjórða skissan að íslenskri sam­tíma­lista­sögu sem bygg­ist á verkum úr saf­n­eign Lista­safns Reykja­víkur. Valin eru saman verk og sett í þemat­ískt sam­hengi í til­raun til að end­ur­spegla lista­sög­una jafn­óðum, en þemað í þess­ari skissu er óhlut­bundin mynd­list, einnig þekkt sem abstrakt­list, og mínimal­ismi.

Helgi Þór rofnar

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 16. jan­úar–2. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Frá 3.500 kr.

Þessi leik­sýn­ing er lítið verk sem fjallar um epískar stærðir í líf­inu og veltir fyrir sér spurn­ing­unni hvort hægt sé að rjúfa víta­hring. Leik­ritið fjallar um ungan mann sem vinnur í lík­brennslu föður síns og æsku­fé­laga sem rekur bak­arí. Síðan bæt­ist ný mann­eskja inn í líf hans og allt fer á hlið­ina.

Fjáröflunartónleikar S78: Laura Secord, Brött Brekka, BSÍ, K.óla

Hvar? Iðnó
Hvenær? 23. jan­úar kl. 19.30
Aðgangs­eyrir: 1.500 kr.

Rokksveit­irnar Laura Secord og Brött Brekka eru meðal mest spenn­andi flytj­enda lands­ins, en þær gáfu báðar út kynn­gi­magn­aðar plötur í fyrra og fagna þeim á þessum fjár­öfl­un­ar­tón­leikum. Auk þeirra spila líka indí-sveitin BSÍ og popp­ar­inn K.óla. Allur ágóði úr miða­sölu rennur til ráð­gjaf­ar­þjón­ustu Sam­tak­anna ‘78, en engum verður vísað frá vegna fjár­skorts.

Chromo Sapiens

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 23. jan­úar–22. mars
Aðgangs­eyrir: 1.840 kr.

Þessi inn­setn­ing eftir Hrafn­hildi Arn­ar­dóttur, sem er einnig þekkt undir lista­manns­nafn­inu Shoplifter, var fram­lag Íslands á Fen­eyjat­ví­ær­ingnum árið 2019. Listsköpun Hrafn­hildar liggur á mörkum mynd­listar, gjörn­inga og tísku og sækir hún áhrif frá dæg­ur­menn­ingu og fjölda­fram­leiðslu, auk alþýðu­listar og hand­verks­sögu. Tónverk eftir hljóm­sveit­ina HAM hljómar í verk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár